Íslendingaþættir Tímans - 14.09.1974, Page 8
Áttræður
Sveinbjörn Jónsson
Snorrastöðum
Sveinbjörn Jónsson bóndi og fyrr-
verandi kennari á Snorrastöðum i
Kolbeinsstaðahreppi varð áttræður 4.
sept. næstliðinn. Hann er fæddur á
Snorrastöðum 4.9.1894 og hefur átt þar
heima frá fæðingu. Foreldrar hans
voru Jón Guðmundsson bóndi þar,
Borgfirðingur aö ætt og kona hans
Sólveig Magnúsdóttir, en hún var
ættuð úr Húnavatns- og Stranda-
sýslum. Sveinbjörn ólst upp I stórum
systkinahópi á Snorrastöðum, sem
jafnan var talið fyrirmyndarheimili og
þótti snemma efnismaður, en það voru
bæði bræður hans og systur. Tveir af
bræðrum Sveinbjarnar urðu þjóð-
kunnir, þeir Stefán námsstjóri og
Kristján á Snorrastöðum, sem margir
útvarpshlustendur munu kannast við i
sambandi við þáttinn „Islenzkt mál”.
Kristján hefur eins og Sveinbjörn átt
heima á Snorrastöðum frá fæðingu og
þaðan fer hann ekki lifandi. Hann er
nú kominn hátt á áttræöisaldur og er
enn furðu hress og alltaf sivinnandi.
Sveinbjörn stundaði nám i Hvitár-
bakkaskóla i tvo vetur, 1914-15 og
1915-16. Þótti hann ágætur námsmaður
og sérstaklega vinsæll af skóla-
systkinum sinum. Iþróttamaður var
hann góður og lagði aðallega stund á
spretthlaup og leikfimi, sem hann
kenndi eitthvað siðar, ég held i
Stykkishólmi. Hann stundaði barna-
kennslu i full 40 ár i fæðingarhreppi
sinum og kenndi lika eitthvað i
Stykkishólmi og Miklaholtshreppi.
Hann var einnig prófdómari um hriö
m.a. I Staðarsveit. Sveinbjörn hóf
búskap á Snorrastöðum vorið 1922 i
félagi við systkini sin Margréti,
Kristján og Magnús sem var elztur
þeirra bræöra. Býr Sveinbjörn þar enn
og hefur gert garö sinn frægan. Nú er
þar tvibýli eða félagsbúskapur og býr
Haukur elzti sonur hans i félagi við
fööur sin að ég held. Er þar vel hýst og
ræktunarframkvæmdir miklar.
Sveinbjörn var forgöngumaöur aö
stofnun U.M.F. Eldborg, sem enn er
við lýði, og stofnaði ásamt Guðmundi
Illugasyni og undirrituöum héraös-
samband ungmennafélaga i Snæfells-
ness- og Hnappadalssýslum (H.S.H.)
haustið 1922. Var hann um skeið
formaður þess og oft i stjórn. Er H.S.
H. nú orðið allöflugt en aðeins þrjú
félög voru I þvi fyrst.
Sveinbjörn hefur gegnt ýmsum
trúnaðarstörfum fyrir sveit sina, og
sýslu. Atti lengi sæti i hreppsnefnd, og
um hrið var hann i sýslunefnd að mig
minnir. Hann sat lengi i yfirskatta-
nefnd Snæfellsness og Hnappadals-
sýslu, og fleiri opinberum störfum
hefur hann gegnt. Sveinbjörn er
einlægur samvinnumaður og hefur oft
setið sem fulltrúi á aðalfundum
Kaupfélags Borgfirðinga. 011 sin störf
hefur hann leyst af hendi með ágætum
og hlotið þakklæti allra^sem rétt kunna
að meta þau.
Sveinbjörn kvæntist 26/6. 1931
ágætri konu, Margréti Jóhannesdóttur
úr Kolbeinsstaðahreppi og varð það
hans stærsta gæfa. Móöir Margrétar
var Kristin Benjaminsdóttir, sem bæði
var fróöleikskona og vel hagorð og
prýðiskona á margan hátt. Geta skal
þess áð Margrét er allmiklu yngri en
Sveinbjörn (f. 30/6. 1905) Börn þeirra
hjóna eru: Haukur, Friðjón Jóhannes,
Kristin Sólveig, Helga Steinunn, Elisa-
bet Jóna, sem er þeirra yngst. Son átti
Margrét áður en hún giftist Sveinbirni
og heitir hann Kristján og var að sjálf-
sögðu uppalinn hjá þeim á Snorra-
stöðum. öll eru áðurtalin börn þeirra
hjóna mesta myndar- og gæðafólk eins
og þau eiga ættir til og öll eru þau gift
og eiga börn. Eins og sést á framan-
skráðu þá er dagsverk þeirra hjóna
mikið og á Margrét þar ekki siður hlut
að máli. Svo má heldur ekki gleyma
hlutdeild Kristjáns i velferð
heimilisins. Kynni okkar Svein
bjarnar hófust fyrir meira en 55
árum og urðu strax góð, en hafa orðið
æ meiri og betri sem æviárum okkar
hefur fjölgað. Um hrið höfðum við
talsvert saman að sælda, en það var
á meðan við vorum báðir i stjórn
H.S.H. Var Sveinbjörn sérstaklega
samvinnuþýður og vildi gera það eitt
sem var heilladrýgst fyrir H.S.H.
Sfðan það skeði hefur mikið vatn
runnið til sjávar og margt breytzt, og
þvi var okkur fyrstu stjórnendum
H.S.H. ósegjanleg gleði aö hittast allir
glaðir og hressir þegar H.S.H. hélt
hátiðlegt 50 ára afmæli sitt að Breiða-
bliki siðla hausts 1972. Þótti ýmsum
þetta talsvert merkilegt. Var þar gleð-
skapur góöur og fór hóf þetta hið bezta
fram, enda vel stjórnað.
Sveinbirni vini minum og fjölskyldu
hans færi ég minar beztu þakkir fyrir
góö kynni á liönum árum. Óska ég
þeim innilega til hamingju og auðvitað
Sveinbirni sjálfum með áttræðis-
afmæli hans.
Þessi stutta afmælisgrein min
kemur þvi miður seinna fram en ég
heföi viljaö eða máski eftir „dúk og
disk”, en ég vona samt að hún komi
fram þó siðar verði.
Guð blessi þig Sveinbjörn minn.
30/8.1974
Bragi Jónsson
frá Hoftúnuni
íslendingaþættir