Íslendingaþættir Tímans - 28.09.1974, Qupperneq 1
ÍSLENDINGAÞÆTTIR
Laugardagur 28. sept. 1974 — 29. tbl. — 7. árg.—nr. 180 TIMAIVIS
Giinnar Guðmimdsson
fyrrverandi skólastjóri
Fæddur 16. des. 1913
Dáinn 16. sept. 1974.
Meö Gunnari Guðmundssyni er
genginn óvenjulega gáfaður og traust-
ur skólamaður. Maður, sem allir báru
virðingu fyrir og tóku mikið tillit til.
Siðustu árin átti hann við vanheilsu að
striða. Hann andaðist á Landspitalan-
um 16. þ.m. eftir langa og stranga
sjúkdómslegu. t hinni erfiðu legu
leyndi sér ekki hans mikla karl
mennska og sálarkraftur.
Ég vil nota tækifærið og láta i ljós
aðdáun mina á þeirri miklu umhyggju
og fórnfýsi, sem eiginkona hans og
nánustu ættingjarog vinir sýndu, með
þvi að skiptast á um að vera hjá hon-
um dag og nótt siöustu vikurnar, sem
hann lifði. Ég veit, að fyrir það var
hinn látni mjög þakklátur.
Gunnar Guðmundsson fæddist 16.
des. 1913 að Fagradal i Dalasýslu.
Foreldrar hans voru hjónin Guðm. Ari
Gislason kennari og Sigriður Gisla-
dóttir.
Kennarapróf tók Gunnar vorið 1937.
Hann stundaði nám i nútima hljóð-
fræöi við heimspekideild Háskóla ís-
lands 1943-45 og tók próf i þeirri grein.
Fróðleiksfýsn og námsþorsti mun
snemma hafa sótt að Gunnari. Á
unglingsárum hans var kreppan i
algleymingi. Þá voru öll skilyrði til
menntunar önnur og lakari en nú á
dögum. Þá var ekki árennilegt fyrir
börn fátækra alþýðumanna að ganga
menntaveginn. Unglingar urðu fljótt
aðstanda á eigin fótum fjóarhagslega.
Það fékk Gunnar snemma að reyna.
Til allrar hamingju fyrir skólamál
okkar lá leið Gunnars i Kennaraskól-
ann. Þar komu fljótt i ljós og duldist
engum hans miklu námshæfileikar og
gáfur.
Að loknu kennaraprófi 1937 gerðist
Gunnar kennari viö Laugarnesskól-
ann. Fyrstu átta árin var hann
almennur kennari, næstu tuttugu ár
yfirkennari og skólastjóri siðustu 8
árin frá 1965-73. Þau urðu þvi mörg
sporin hans i Laugarnesskóla, og
þeirra munu lengi sjást merki.
Það fór strax mikið orð af Gunnari
sem kennara. Hann var með af-
brigðum vinsæll meðal nemenda
sinna, og þeir báru mikla virðingu
fyrir honum. Allir nemendur hans,
sem ég hef hitt, ljúka upp einum
munni um, hvað þeir hafi mikið lært
hjá Gunnari. Það lá svo vel fyrir
honum að útskýra og gera allt létt og
auðskilið.
Sú námsgrein, sem Gunnar tók
mestu ástfóstri við og kenndi mest
var móðurmáliö okkar. Ast Gunnars á
islenzkunni var án efa tengd hans
sterku þjóðerniskennd. Sérkenni
okkar sem þjóðar er fyrst og fremst
málið, sem við tölum, ásamt sögunni
og bókmenntunum.
Þegar Gunnar hóf kennslu var lftið
um kennslubækur i islenzku. Mikil
framför hefur orðið á því sviði hin sið-
ari ár. Mér virðist núna vera tiltölu-
lega vel séö fyrir bókakosti i islenzku,
a.m.k. á barnaskólastiginu. Það
eigum við Gunnari manna mest að
þakka, þó að fleiri hafi þar lagt hönd á
plóginn og unnið gott verk. Vil ég
nefna nokkur dæmi i þvi sambandi.
Snemma tók Gunnar að sér eftirlit
með islenzkukennslu við Laugarnes-
skólann og hafði það á hendi um nokk-
urra ára skeið. Þá mun honum hafa
fljótlega orðið ljóst, að þörf var á hent-
ugri kennslubók i stafsetningu. Hann
réðst þvi i það, ásamt Arna Þórðar-
syni, að semja kennslubók i staf-
setningu fyrir barna- og unglinga-
stigið. Sú bók kom fyrst út árið 1947.
Þessi kennslubók bætti úr brýnni þörf
og var vel tekið bæði af kennurum og
nemendum. Siðar var þessari bók
skipt i tvennt, sérbók fyrir barnaskól-
anna og önnur fyrir gagnfræðaskól-
ana.
Ég efast um, að við gerum okkur
ljóst, hve gifurlega mikil vinna liggur
að baki samningu slikra bóka. Þessar
bækur hafa oft verið endurprentaöar.
Siðustu útgáfurnar eru endurskoðaðar
og nokkru bætt við, auk þess dálitið
myndskreyttar. Þessar bækur hafa
um aldarfjórðung verið kenndar i öll-
um barna- og gagnfræðaskólum
landsins og mörgum sérskólum.
Um 1950 samdi Arsæll Sigurðsson
ritæfingar fyrir yngri börn. Arsæll
mun hafa haft hug á að auka og endur-
skoða þessa bók. Hún þótti heldur
þung. En honum entist ekki aldur til
þess. Það kom i hlut Gunnars aö
annast það verk. Gamla bók Arsæls
var merk nýjung og að mörgu leyti góð
kennslubók. En hinar nýju ritæfingar,
sem eru i tveim heftum, eru án efa
EH32E