Íslendingaþættir Tímans - 12.10.1974, Page 3

Íslendingaþættir Tímans - 12.10.1974, Page 3
Pétur Guðmundsson Patreksfirði Pétur Guömundsson var fæddur á Stapa í Tálknafiröi 18/12 1884 og var fjóröa barn hjónanna Kristinar Pet- rínu Pétursdóttur og Guömundar Gislasonar, er þá bjuggu á Stapa, for- eldrar Péturs höföu eignazt þrjii börn, en misst þau öll er Pétur fæddist, síöan eignuöust þau tvö börn Glsla er lézt 1944 og Kristínu sem nú dvelst á Hrafnistu og er ein á lifi af þeim syst- kinum. Pétur elst upp hjá foreldrum sinum og venst því Islenzkum sveita- störfum eins og þau voru fyrir og eftir siðustu aldamót, en þá var Hka sjósókn á litlum bátum mikiö stunduö frá Vestfjörðum og menn dreymdi um stærri skip. Pétur fer ungur tíl sjós og )>ar vinnur hann öll sin ungdóms og þroskaár, en hugur hans stefnir hærra hann vill stjórna sínu eigin skipi, hann fer þvl til Isafjarðar og lærir þar til skipstjórn- ar. Eftir þaö er hann ýmist, stýri- maður eöa skipstjóri hjá Pétri Ólafs- syni útgerðarmanni á Patreksfiröi. Ariö 1913 fer Pétur ásamt Siguröi Andrési Guömundssyni til Noregs til aö kynna sér selveiöi og fóru þeir þessa ferö á vegum Péturs Ólafssonar. Voru þeir eina vertiö á selveiöum I noröurhöfum, en vegna fyrri heims- styrjaldarinnar er brauzt út 1914 varö þessi utanferö styttri en i upphafi var ráögert og kom Pétur heim eftir þessa einu vertlö og tekur þá viö skipstjórn á ýmsum skipum, en nokkrum árum slöar kaupir hann ásamt Gisla bróður sinum og Kristni ólafssyni á Patreks- firöi fiskiskipiö Högna og er hann skip- stjóri á honum I mörg ár. Pétur flyzt meö foreldrum sinum til Patreksfjaröar áriö 1912 og má segja aö eftir þaö sé þaö Pétur og þau syst- kinin sem sjá um heimili foreldra sinna. Pétur kvænist Sigþrúöi Guöbrands- dóttur 15. apríl 1922 og búa þau á Pat- reksfiröi til ársins 1926 en þá flytjast þau aö Tungu I örlygshöfn, en konu slna missir Pétur eftir stutta sambúö, hún andaöist I Tungu 1935. Þá flyzt Pétur aftur til Patreksfjaröar ásamt þrem dætrum sínum Kristlnu, Veru og Huldu. Hann missir elztu dóttur sina, Kristinu I blóma llfsins, aöeins 18 ára. Hinar dætur hans eru báöar búsettar á Patreksfiröi. Vera gift ólafi Helga- syni, húsasmiöameistara og Hulda gift Svavari Jóhannssyni, bankaútibús- stjóra. Fyrst eftir aö Pétur kemur til Pat- reksfjaröar frá örlygshöfn stundar hann búskap, hefur nokkrar kýr og mjólkursölu, en fljótlega fer hann aö vinna hjá Hraöfrystihúsi Patreks- fjaröar, fyrst sem verkstjóri og slöar sem framkvæmdastjóri þess I mörg ár. Pétur haföi mikinn áhuga á þvi aö hraöfrystihúsiö gengi sem bezt og þar vann hann oft ómældan vinnudag. Þaö er ekki ofsagt aö I höndum hans komist frystihúsiö upp úr öldudal og þegar Pétur hættir þar störfum vegna aldurs stóö frystihúsiö vei og rekstur þess I miklum framförum. Pétur kvænist ööru sinni 12. febr. 1944 Magdalenu Kristjánsdóttur ætt- aöri úr Breiöafjaröareyjum, var hún ekkja Glsla Bergsveinssonar, er andaöist 1939, en þau bjuggu þá I Ólafsey á Breiöafiröi. Hjónaband þeirra Magdalenu og Péturs var sér- staklega farsælt, enda sagöi Pétur þaö oft aö hann heföi yngst um mörg ár þegar hann kynntist Möggu, hann var óþreytandi aö uppfylia óskir hennar og gera henni lifiö sem ánægjulegast. Hann kaupir nú aftur húsiö er hann bjó I áöur en hann fluttist aö Tungu I örlygshöfn, þaö hús er nú Aöalstræti 23 á Patreksfiröi og þar bjó hann er hann andaðist 12. mal 1974 á nltugasta aldursári. Pétur vann af áhuga þau störf er honum voru falin, og komst þá ekkert aö nema starfið, þaö var honum kappsmál að vinna sem bezt og hagan- legast, en þegar timi gafst frá störfum haföi hann ánægju af aö ræöa við gesti sem aö garöi bar og voru þeir margir þvi öllum þótti gott aö koma til Möggu og Péturs I Steininn en svo var hús þeirra oft kallað á Patreksfiröi. Þar er margs aö minnast og margt aö þakka sérstaklega vil ég þakka fyrir hönd okkar systkinanna fyrir alla þá um- hyggju og nærgætni er Pétur sýndi móöur okkar og hvernig hann vildi vera okkur sem bezti faðir. Viö fundum líka fljótt aö honum var óhætt aö treysta og okkur var ævinlega kært aö koma heim til mömmu og Péturs. Heimili móöur okkar haföi ekki breytzt aö ööru en þvl aö nú var kominn húsbóndi, góöur húsbóndi, sem viö mátum meira eftir þvi sem viö kynntumst honum betur. Pétur, viö, sem syrgjum þig nú, vit- um, aö handan viö gröf og dauöa er annaö sviö. ,,En þar blöa vinir I varpa sem von er á gesti”. Bcrgsveinn Breiöfjörö Glslason 3 islendingaþættir

x

Íslendingaþættir Tímans

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Íslendingaþættir Tímans
https://timarit.is/publication/303

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.