Íslendingaþættir Tímans - 08.02.1975, Síða 11

Íslendingaþættir Tímans - 08.02.1975, Síða 11
Lúðvík Karlsson og Kristján Helgason Sú harmafregn barst um borg og bæ hinn 17. þessa mánaöar, aö þyrla heföi farist meö 7 manns. Tveir þeirra sem fórust voru félagar i JC-Reykjavik, þeir Lúövík Karlsson, flugmaður og Kristján Sveinn Helgason, fram- kvæmdastjóri. Meö þeim eru gengnir tveir virkir og áhugasamir félagar, sem á undan- förnum árum hafa starfaö af ósérhlifni og áhuga að verkefnum innan samtak- anna. Þeir voru einaröir I framgöngu og ábúöarmiklir, og þaö var tekiö eftir þeim hvar sem þeir beittu sér aö starfi. í starfi JC-Reykjavik liggja spor þeirra viöa, og má nefna aö báöir tveir höfðu þeir veriö formenn fjár- öflunarnefndar félagsins. Kristján Sveinn átti sæti i nefnd árs ins 1973-1974. Hann var þátttakandi I för til Turku á Evrópuþing JC hreyf- ingarinnar á sföasta sumri, og var hann einn örfárra islendinga sem komið höfðu til Coral Gables i Florida, til höfuöstööva JC hreyfingarinnar i heiminum. Þá átti Kristján Sveinn sæti í landsstjórn samtakanna, sem gjaldkeri 1972-1973. • Lúövik átti sæti I mörgum nefndum samtakanna, og eins og áöur segir for- maður fjáröflunarnefndar félagsins. Hann var varalandsforseti 1971-1972, og tók þátt i fjölmörgum ræöukeppn- um fyrir hönd JC-Reykjavik. Hann var þátttakandi á alheimsmóti JC hreyfingarinnar i Dublin á Irlandi 1971, og segja má, aö hann hafi átt einn hana og styðja. Börnunum og fjöl- skyldum þeirra, votta ég og fjölskylda min innilega samúð. Þér Halldór minn, þakka ég hjart- anlega það sem þú hefur verið mér og minum. Guð blessi þig. Þinn vinur Höskuldur Stefánsson og fjölskylda. islendingaþættir rikastan þátt i á þvi þingi, að is- lendingar fengu kosinn sinn fyrsta og eina alþjóölega varaforseta hreyfing- arinnar. Lúðvik var margt til lista lagt, og heföi án erfiöleika getað skapaö sér sess á viðskiptasviðinu, en flugiö átti hug hans allan. Hann haföi m.a. aflaö sér réttinda I froskköfun, stundaöi fall- hlifarstökk og haföi árum saman veriö eini ferjuflugmaöur íslendinga. Kristján Sveinn starfaöi áöur hjá ýmsum fyrirtækjum, en fyrir um tveim árum setti hann á stofn sitt eigiö fyrirtæki Hjólbarðasólunina Bandag hf., og á sföasta ári stofnuöu þeir Kristján og Lúövik fyrirtækiö Þyrlu- flug hf., og báru þeir miklar vonir i brjósti um framtið þess og framgang. Ekki auönaöist þeim aö sjá þann sam- eiginlega draum sinn rætast, heldur voru kallaöir á burt i slikri skyndingu. Þegar viö nú kveöjum þá félaga okk- ar Lúövik og Kristján Svein kemur margt i huga, eftir samstarf margra ára. Eitt ber þó ööru hærra. Báöir tveir höfðu þeir tileinkað sér þaö af einkunnarorðum JC hreyfingarinnar, sem viö leiðarlok skilur dýpst spor eft- ir, en þau eru: ,,AÖ manngildiö sé mesti fjársjóöur jarðar”. Þeir virtu og sýndu i breytni sinni og störfum, aö þeir höföu tileinkað sér þá hugsjón er að baki þessara einkunnaroröa liggur. Þaö var akkur okkur hinum aö hafa veriö samtiöa þeim. Viö hryggjumst við fráfall góöra félaga og söknum vina I staö. Viö vott- um ekkjum þeirra og börnum dýpstu samúö og hluttekningu, svo og ættingjum þeirra öörum. Einnig barst Junior Chamber i Reykjavik samúðarbréf frá Jeffrey Bird, alþjóölegum varaforseta JC fyrir Island. Biður hann fyrir samúö- arkveöjur frá JC-samtökunum til fjöl- skyldna hinna látnu, Lúöviks Karls- sonar og Kristjáns Sveins Helgasonar. Einnig samhryggist hann félögum 11

x

Íslendingaþættir Tímans

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Íslendingaþættir Tímans
https://timarit.is/publication/303

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.