Íslendingaþættir Tímans - 10.05.1975, Side 1
ISLENDINGAÞÆTTIR
Laugardagur 10. mai 1975 —16. tbl. 8. árg. Nr. 207. TÍMANS
Bryjólfur Jóhannesson
leikari
Nýlega var kvaddur hinstu kveöju
Brynjólfur Jóhannesson leikari,
aldursforseti i islenskri leikarastétt.
Óhætt mun að fullyrða að fáir íslenskir
listamenn hafi öðlast jafn miklar vin-
sældir i lifanda lifi hjá þjóð sinni og
Brynjólfur Jóhannesson. Vart mun til
þaö mannsbarn á þessu landi, sem
komið er til vits og ára, er þekkir ekki
nafn hans. Svo margar ánægjustundir
hafa landsmenn átt meö þessum ást-
sæla listamanni i þá rösklega hálfu
öld, sem hann stóð á „fjölunum” og
kom fram i útvarpi og sjónvarpi. Það
var aðeins til einn Brynjólfur og öll
þjóðin átti hann, enda var hann
elskaður og dáður af öllum sem honum
kynntust.
Brynjólfur var fæddur i Reykjavik'
þann 3. ágúst árið 1896 og var þvi á 79
aldursári þegar hann lést þann 8. aprll
s.l. eftir stutta legu á sjúkrahúsi. Ung-
ur að árum gekk hann leiklistinni á
hönd, þvi að hann lék sitt fyrsta hlut-
verk á Isafirði i marsmánuði árið 1915
og var þá aðeins 19 ára að aldri.
Brynjólfur hefur þvi staðið á „fjölun-
um” I rösk 60 ár. Fyrsta hlutverk sitt
hjá Leikfélagi Reykjavikur lék hann
þann 24. október árið 1924 og átti hann
þvi 50 ára leikafmæli þar á liðnu ári.
Leikferill Brynjólfs er nátengdur
sögu Leikfélags Reykjavikur og starf-
semi þess. Þar vann hann fyrst og
fremst sitt ævistarf sem listamaður,
enda munu hlutverk hans þar nú vera
orðin nær 180 að tölu. Hann var for-
maður L.R. um margra ára skeið og
auk þess marg sinnis ritari og varaf'or-
maöur félagsins. Samt er það sem hér
hefur verið talið aðeins einn hlutinn af
löngum og margþættum leiklistarferii
Brynjólfs. Fjölmörg hlutverk lék hann
5 útvarpinu á s.l. 45 árum og ennfrem-
ur I sjónvarpi hin siðari ár. 1 þjóðleik-
húsinu lék hann einnig m.a. það
minnisverða hlutverk Jón Hreggviðs-
son i íslandsklukkunni við opnun Þjóð-
leikhússins, auk þess Jón bónda I
„Gullna hliðinu”, svo eitthvað sé
nefnt.
Enn er ótalinn einn þáttur i leik-
listarstarfi Brynjólfs, en það er
skemmtistarfsemi á félaga- og flokka
skemmtunum. í rösklega 30 ár kom
hann fram sem skemmtikraftur á
skemmtunum bæði sem gamanvisna-
söngvari og flytjandi gamanmála.
Vart mun finnast það samkomuhús á
þessu landi, að Brynjólfur hafi ekki
skemmt þar. Vinsældir hans á þessu
sviði voru næstum ótrúlegar.
Brynjólfur var alla ævi mjög virkur
þátttakandi i félagsmálum fyrir stétt
sina. Hann var einn af stofnendum
Félags islenskra leikara árið 1941 og i
fyrstu stjórn þess. Formaður FIL var
hann um margra ára skeið og varafor-
maður siðustu átta árin. Jafnan var
hann boðinn og búinn að vinna fyrir
félaga sfna og standa islenskir leikar-
ar I mikilli þakkarskuld við Brynjólf
fyrir árvekni hans og dugnað I félags-
málum stéttarinnar. 011 verk sin
vannhann af stakri nákvæmni og mik-
illi samviskusemi.
Ennfremur skal þess getið að
Brynjólfur var forseti Bandalags Is-
lenskra listamanna um tveggja ára
skeið.
Allt fram á siðustu ár var það hlut-
skipti islenskra leikara að vinna hörð-
um höndum óskyld störf leiklistinni
fyrir sinum naúðþurftum. Leiklistin
var á þeim árum tómstundaiðja nokk-
urra dugandi áhugamanna, sem unnu
langan vinnudag áður en æfingar hóf-
ust á kvöldin og nóttinni. Brynjólfur
var bankamaður og lét þar ekki af
störfum fyrr en hann varð sjötugur aö
aldri. Langur hefur vinnudagur hans
oft verið, en aldrei bar á þvi þegar
hann var kominn á „fjalirnar”. Leik-
húsið var hans heimur og þar vildi
hann vera.
Þess gerist ekki þörf að telja upp
þau fjölmörgu hlutverk sem Brynjólf-
ur hefur túlkað á frábæran hátt á leik-
sviði og við hljóðnemann. öllum
landsmönnum, sem komnir eru til
nokkurs þroska, er kunnugt um það.
Ekki mun ofmælt að hann sé talinn
meðal fremstu listamanna, sem þessi
þjóð hefur eignast.
Sá sem þetta ritar átti þvi láni aö
fagna að starfa með Brynjólfi að
félagsmálum I s.l. 15 ár. Kynni okkar
urðu brátt mjög náin og af fáum
mönnum hef ég lært meira I þeim efn-
um á lifsleiðinni. Það var hlutverk
mitt um all langt skeið að sýsla við
blöð og bækur i bókasafni Þjóðleik-
hússins, sem er staðsett á annarri hæð
leikhússins. Vart leið sá dagur að
Brynjólfur kæmi ekki þangað aö lokn-
um æfingum I Iðnó og ræddi viö mig