Íslendingaþættir Tímans

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Íslendingaþættir Tímans - 10.05.1975, Qupperneq 5

Íslendingaþættir Tímans - 10.05.1975, Qupperneq 5
og sem fyrirmynd frændgarðsins að reglusemi og dugnaði. Hann komst i allgóð efni, enda vann hann ósleitilega langan vinnudag. Hann fór vel með efni sín, en var stór- tækur iútlátum, þegar honum þótti við þurfa. Sannaðist það í stuðningi hans við margt skyldmenna sinna og i fjár- framlögum til safnahúss Þingeyinga, sem hann gaf fyrst kr. 300.000.00 og siöan húseignina Hverfisgötu 40 i Reykjavik. Það er göfugur vottur um átthagatryggð hans, enda unni hann ættbyggð sinni af alhug. Góð greind, reglusemi og framfara- þrá einkennir ætt hans, auk listrænna hæfileika, sem viðá hafa komið fram i mikilli fjölbreytni hjá eldri og yngri ættlegg jum. Jón Viðis var ljúfur maður I við- kynningu, skapprúður og góður heim að sækja, léttur i máli og ákveðinn i skoðunum og flutti mál sitt af rökfestu. Gott þótti honum á seinni árum að rifja upp kynni sin af landi og fólki og var þá jafnan fullur áhuga um frekari kynni. Á ferðum sinum um landið hafði jann jafnan myndavél með sér og safnaði þannig miklum fjölda mynda, viðsvegar að af landinu. Á sið- ustu árum safnaði hann litglærum og sýndi þær oft gestum sinum og fræddi þá jafnframt frekar um staðhætti og umhverfi. Ég kynntist Jóni fyrst fyrir 63 árum, er ég var 8 ára en hann 18. Hann kom þá i heimsókn til móöurfrænda sinna austur á Fljótsdalshérað. Þá safnaði hann i kringum sig smáfólkinu og fór meö það út um tún, holt og móa, til að kenna því nöfn á blómum og vekja á- huga á fegurð og fjölbreytni jurtanna. Síðar naut ég þeirrar ánægju að starfa með honum sumrin 1925—1927 aö mælingum i Hafnarfirði, Seyðis- firði, Neskaupstað og Siglufirði og kynntist ég þá vel áhuga hans og ná- kvæmni i starfi og fræddist jafnframt af honum um margvisleg efni, auk ánægjunnar af ferðalögum, sem við fórum i um helgar. A háskólaárum minum naut ég þess að búa i húsi Jóns á heimili foreldra hans, og siðan var hann mér jafnan sem bezti bróðir, hjálpsamur og ráð- hollur i hvivetna. Eftir að hann fór að vinna að vega- málum á Vestfjörðum nutum við hjón- in heimsókna hans á hverju sumri og þá ferðaðist ég oft með honum, er hann valdi vegstæði i Barðastrandarsýslu. Eftir að hann hætti störfum hjá vega- gerð rikisins, dvaldist hann hjá okkur nokkrar vikur á hverju sumri hér nyrðra og naut þess að ferðast um ætt- byggð sina og hafa samneyti við ætt- menn sina og samsýslunga. Heimili hans i Reykjavik var alltaf islendingaþættir Guðbjörg Guðmundsdóttir hárgreiðslukona Fædd 2. mai 1927. Dáin 13. aprfl 1975. Guðbjörg, eða Gugga eins og hún var alltaf kölluð af ættingjum og vin- um, var dóttir hjónanna Agústu Guð- jónsdóttur og Guðmundar Guðmunds- sonar prentara, sem starfaði í Rikis- prentsmiðjunni Gutenberg i meira en hálfa öld. Hún var elst þriggja barna þeirra hjóna. Ung að árum hóf Gugga hár- greiðslunám hér í borg, og varð brátt mjög eftirsótt sem slik vegna vand- virkni sinnar og smekkvisi. Skömmu eftir að hún lauk námi fór hún til Kaupmannahafnar til frekara náms i iðn sinni. Þar kynntist hún þeim manni, sem siðar átti eftir að verða eiginmaður hennar og lifsförunautur. Þvi er ekki að leyna að það vakti nokkra eftirvæntingu ættingja og vina, okkar annað heimili, er við komum þangað. Jón VIÖis kvæntist ekki. Heimili hans var hjá foreldrum hans meðan þau lifðu, en forsjá þess heimilis hvildi á hans herðum, er aldur færðist yfir foreldra hans. Faðir hans andaðist ár- ið 1940, áttræður að aldri, en móðir hans veitti heimilinu áfram forstöðu, unz hún lézt 1957, 90 ára. Þá fluttist Maria systir hans til hans og veitti heimilinu forstöðu eftir það. Arið 1922 keypti Jón húseignina nr. 40 viö Hverfisgötu i Reykjavik. Þar bjó fjölskyldan siðan fram undir 1940, er hún flutti að Eiriksgötu 4. Þar bjó hún siðan. Jón átti hlýlegt og aðlaðandi heimili, prýtt málverkum og blómum. Hann var áhugasamur um ræktun og undi sér vel viðaðhlúa að gróðri i garði sin- um. Allur ættleggurinn var jafnan vel- kominn á heimili hans, enda var hann sannur ættarhöfðingi, sem yngra fólk- ið elskaði og virti. Hiö sviplega fráfall hans kom sem reiöarslag yfir alla hans nánustu vandamenn. Hans er sárt saknað, en jafnframt eru ættmennin forsjóninni þakklát fyrir að hafa notið samfylgdar hans til svo hárrar elli. Húsavik, á páskum 1975 Jóhann Skaptason. þegar fréttist að hún Gugga væri heit- bundin ungum Dana, Harry Sönder- skov, frá Kastrup, einni útborg Kaup- mannahafnar. Komu þau siðan út hingað og gengu i heilagt hjónaband. Fór það ekki framhjá neinum að nú sem áður hafði Gugga ekki flanaö að neinu. Hún hafði valið vel, og var jafn- ræði gott með ungu hjónunum, kær- leikur og gagnkvæm virðing, sem ekki brást. Ekki varð annað séð en Daninn ungi yndi hag sinum hér á Islandi, þvi hérhafa þau búið að undanteknum fá- um árum, sem þau bjuggu i Kaup- mannahöfn. Byggðu þau sér fagurt og smekklegt heimili að Erluhrauni 5 i Hafnarfirði, þar sem maður hennar fékk vinnu þar i bæ, og i nýja húsinu var innréttuð hárgreiðslustofa, þar sem Gugga vann við mikinn og góðan orðstlr til dauðadags. Eignuðust þau hjón tvo syni, Gunnar og Helga, sem nú eru uppkomnir. Ekki er of djúpt tekið i árinni þótt sagt sé að nú hafa margir misst mikið við hið sviplega fráfall hennar. Það áttu margir hauk i horni þar sem Gugga var. Hún vildi öllum liðsinna og lá aldrei á liði sinu, þegar ættingjar og vinir leituðu til hennar. Foreldrum sinum var hún sérlega góð dóttir með- an þeirra naut við, enda mátu þau hana mikils. örugglega má telja Guggu i hópi þeirra, sem lita á vinn- 5

x

Íslendingaþættir Tímans

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Íslendingaþættir Tímans
https://timarit.is/publication/303

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.