Íslendingaþættir Tímans - 10.05.1975, Side 6

Íslendingaþættir Tímans - 10.05.1975, Side 6
EINAR JONSSON Mýrum í Skriðdal Miðvikudaginn 12. marz s.l. lézt á sjúkrahúsinu á Egilsstöðum, Einar Jónsson f.v. bóndi i Geitdal, eftir stutta legu. Lengst af hafði heilsa hans verið góð, en siðustu tvö-þrjú árin far- ið ört hnignandi, enda aldurinn orðinn hár, en andlegri heilsu fékk hann að halda þar til yfir lauk. Útför hans var gerð frá Þingmúla- kirkju 22. s.m. að viðstöddu mörgu fólki, sem færa vildi hinum aldna heiðursmanni hinztu kveðju. Veður var'bjart og fjöllin skörtuðu hvitu, eins og þau vildu einnig vera þátttakendur i þessari kveðjustund, þar sem þau höfðu um langa ævi verið bæði augnayndi hans og erfiði. Að athöfn lokinni voru svo að venju veitingar framreiddar i félagsheimili sveitarinnar á Arnhólsstöðum. Með Einari Jónssyni er horfinn af sjónarsviðinu einn úr hópi minna beztu vina, en þannig er gangur lifsins. Vinátta okkar Einars er i raun og veru ekki til orðin fyrir neitt sérstakt atvik, eða atburði á lifsleiðinni, heldur hefur hún þróazt gegnum árin, af nán- una sem blessun en ekki böl, enda var hún sistarfandi, bæði við heimilisstörf og hárgreiðslu, og vanrækti hvorugt, þó varð enginn var við að hún hefði mikið að gera, það var enginn hama- gangur i kringum hana. Hún kunni að vinna og hafði ánægju af, til siðasta dags, þó oft væri hún sárþjáp siöustu mánúði. Konan min, en þær Gugga voru systradætur, minnist nú frænku sinnar með miklum söknuði, fyrir órjúfandi vinattu og velvild i sinn garð frá upp- hafi. Fari hún i friði, og hafi þökk fyrir ailt og allt. Við hjónin sendum Harry og sonum þeirra okkar innilegustu samúöar- kVeðjur og biðjum hinn hæsta höfuösmið himins og jarðar að blessa hina látnu heiðurskonu, og styrkja þá sem næstir henni stóðu og eiga um sárast að binda. Geir Herbertsson. um persónulegum kynnum allt frá okkar æskudögum. Við erum aldir upp á nágrannabæj- um i Vallahreppi, hann i Vallaneshjá- leigu, en ég á Vikingsstöðum og höfð- um fljótlega ýmislegt saman að sælda, og f svolitið viðari merkingu má segja aö við höfum alla tið verið nágrannar og samherjar á ýmsum sviðum. Ef vikja ætti að upphafi okkar sam- skipta, hlyti það að vera i sambandi viö hesta, þvi vissulega má segja að á okkar æskuárum hafi hesturinn verið „þarfasti þjónninn” á hverju heimili, og þvi oft mikið i húfi að hann væri tiltækur hverju sinni, ekki sizt um sláttinn. 1 þéttbýlinu á „tanganum” var i þá daga margt hrossa á öllum aldri, sem gjarnan vildi halda hópinn og þvi oft ekki hlaupið að þvi, að hafa það sem maður vildi úr þeim solli. „Ég man þá tið,” að margsinnis leitaði ég til Einars i „Hjáieigu” um liðsinni. Hann var nokkrum árum eldri en ég og miklu stærri og sterkari og svo laginn við að sigra þessa hesta, að likast var aö þeir þyrðu ekki að hreyfa sig, eftir að hann hafði komið á þá sinni styrku hendi. Þegar ég lit svo yfir æviferil Einars Jónssonar, finnst mér þessi fyrstu kynni min af honum hafa orðið ærið táknræn yfir lif hans og starf. Alla erfiðleika lifsins hefur hann sigrað, að sinu leyti eins og folann forðum, og hafa þeir þó mætt honum i ýmsum myndum á lifsleiðinni, sem flestum er lifað hafa langa ævi. Einar Jónsson er fæddur i Geitdal i Skriðdal 5. des 1891, og voru foreldrar hans hjónin Agnes Kolbeinsdóttir bónda Guðmundssonar á Setbergi i Nesjum, og Jón Jónsson Stefánssonar, er fyrstur byggði nýbýlið vestur við Skriðuvatnið á Skriðdal og nefndi Stefánsstaði, er það á mörkum Múla- afréttar og byggðar og fyrir löngu komið i eyði. Einar fluttist um það bil tveggja ára gamall með foreldrum sinum frá Geit- dal að Vallaneshjáleigu og ólst þar upp ásamt Ama bróður sinum, sem var þremur árum eldri. Jón var fyrstu árin ráðsmaður á búi séra Magnúsar Bl. Jónssonar I Valla- nesi, en hafði fjölskyldu sina i „Hjá- leigu” sem var i túnfætinum á gamla prestssetrinu, (en er nú horfin). Fljót- lega gerðist Jón þó sinn eigin húsbóndi með sjálfstæðum búskap i „Hjáleigu” en alla tíð hélzt þó náið og vinsamlegt samband á milli þessara heimila. Þeir bræöur Einar og Arni urðu brátt efnis- menn miklir, stórir og stæltir og hinir mestu garpar til vinnu. Arni fór á búnaðarskólann á Hvanneyri og settist svo að heima, að námi loknu. Tóku þeir þá að mestu við búsforráðum, þvi heilsa föður þeirra var þá farin að gefa sig, en samband þeirra var svo hlýtt og traust, að þeir vildu gjarnan starfa saman ef þeir fengju olnbogarúm við hæfi og ég hygg, að þeim hafi fljótt leikið hugur á að komast I Skriðdalinn. „Þvi römm er sú taug, sem rekka dregur föðurtúna til”. Á þessu timabili var mikið af rjúpu á Austurlandi, einkum til fjalla og fjöilin meðfram Skriðdalnum höfðu orð á sér fyrir að vera rjúpnasæl. Það mátti þvi með réttu segja, að rjúpnaveiði væri á þessum árum veruleg hlunnindi á mörgum jörðum. Báðir voru þeir Einar og Arni skytt- ur góðar og höfðu oft lagt leið sina fram um þessi fjöll, og voru þau þvi 6 íslendingaþættir

x

Íslendingaþættir Tímans

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Íslendingaþættir Tímans
https://timarit.is/publication/303

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.