Íslendingaþættir Tímans - 27.08.1977, Blaðsíða 9

Íslendingaþættir Tímans - 27.08.1977, Blaðsíða 9
Elsa Bjarnadóttir F. 7/9. 1924 D. 29/8. 1975 Hinzta kveöja Lifiö manns hratt fram hleypur, hafandi enga biö, i dauöans grimmar greipur,- gröfin tekur þá viö. Allrar veraldar vegur vikur aö sama punkt, fetar þann fús sem tregur, hvort fellur létt eöa þungt. Fjóröa erindi úr sálminum Allt eins og blómstrið eina eftir Hallgrim Pétursson. Ósjálfrátt duttu mér þess- ar ljóðlinur i hug, er ég frétti um hiö sviplega fráfall Elsu Bjarnadóttur. Hún var dóttir hjónanna Sigurborgar Friöriksdóttur og Bjarna Þorláksson- ar er bjuggu lengi i Kothvammi fyrir ofan Hvammstanga. Elsa mun hafa verið fædd í Kirkjuhvammi, einn bróö- ur átti hún, Ástvald Bjarnason. Viö Elsa kyntumst fyrst i sláturhúsi K.V.H., viö unnum þar saman. Þá kynntist ég einnig foreldrum hennar og stóö þessi kunningsskapur i full 30 ár viö þetta fólk. Einnig vorum viö Helga jafngamlar upp á dag og það fannst okkur skrítin tilviljun. En er aldur færðist yfir foreldra hennar hættu þau búskap, keyptu hús niöri á Hvammstanga og fluttu i þaö. Þá mun Elsa hafa veriö komin yfir tvitugt, þegar þessi fjölskylda flytur úr sveit- inni, sem var þeim svo hjartfólgin. Alltaf fann ég að saknaðar gætti hjá foreldrum hennar, er þau rifjuöu upp minningar frá þessum árum þarna, er þau dvöldu viö búskap i Kothvammi. Elsa vann lengi viö afgreiðslu hjá K.V.H. Einn vetur dvelur hún við nám i Kvennaskólanum á Blönduósi, en 7/9. 1947 giftist hún eftirlifandi manni sin- um, þá 24 ára þann dag, en maður hennar var Rfkharður Guömundsson. Hann var lengi bilstjóri hjá K.V.H. Þeim varðþriggja barna auöið. Elzta barniö er Gunnar Rikharðsson lög- regluþjónn á Blönduósi, kvæntur Asrúnu ólafsdóttur, hún er kennari að mennt, ættuö frá Sveinsstööum f Þingi. Næst er Birna Rikharösdóttir ljós ljósmóðir aö mennt. Hún er eift Guö- mundi Steindórssyni sjómanni, þau búa i Reykjavik. Þá kemur Rafn Rikharðsson, hann er þeirra yngstur, ókvæntur, vinnur á millilandaskipi. Elsa og maöur hennar höföu for- eldra Elsu alltaf 1 sambýli viö sig og var þetta fólk alltaf sem einn maður, snyrtimennska og seigla rikti alltaf á þessu heimili og var staðinn þéttur vöröur um velferö þess i einu og öllu og þannig liöu árin. ErElsa gekk meö sitt yngsta barn þá brann húsiö ofan af þeim, þá munu Gunnar og Birna hafa verið nokkuö stálpuð. Ég hygg að þetta muni hafa verið Elsu mikiö áfall eiris og á stóö, en hún og maður hennar ásamt foreldr- um hennar tóku höndum saman og reistu hiö vandaðasta þriggja hæða hús á lóðinni þar sem hitt stóö. Einnig endurreisti Elsa gamlan garö er hafði fylgt húsinu sem brann. Þennan garð geröi hún svo fagran að enginn var á staðnum slikur og mátti segja aö hann hlaut að draga að sér augu vegfar- enda, enda lagöi Elsa óhemju vinnu i aö fegra hann og prýöa svo árum skipti. Þaö var 'venja hjá mér að skreppa inn f Laufskála og drekka þar kaffiaö loknum snúningum i kaupstað og naut ég þá gestrisni þessa fólks og einnig naut ég þess að tala viö þær mægöur. Þær voru alltaf hressar og kátar heim aö sækja. Oftvoruþær meö kostgangara i heimilinu og voru þvi oft ærin verkefni til viöbótar heimilis- haldinu. Svo mikil eining og ástriki rikti alltaf á milli þeirra mæögnanna aö á betra varð ekki kosið. Sökum meöfæddra hæfileika og mannkosta var leitaö eftir Elsu i opinberan félagsskap á staðnum og má þar nefna sæti hennar i sjúkrahússtjórn og mun hún hafa staðið fremst i f lokki meö aö stuðla að þvi aö sjúkrabill var fenginn á staðinn. Þær mæögur störfuöu ötul- lega aö málum kvenfélagsins og slðan komu konurnar sér saman um að kjósa hana formann Kvenfélagasam- bandsins. Þaö fórst henni vel úr hendi eins og annað sem hún tók sér fyrir hendur. Elsa var fremur smávaxin kona, fi'nleg og létt i hreyfingum. Hún gekk ávallt áberandi snyrtilega og vel til fara. hún var harðdugleg til allrar vinnu og mjög myndarlega verki farin hverju sem hún snerti á, hvort heldur var um húsverk, saumaskap eða annaö aö ræöa. Hún haföi mikiö yndi af hestum og áttu þau hjón ávallt góöa hesta, sem þau tóku fram þegar stund gafst. Þaö vissi ég aö mikiö yndi höföú þau af þessum stundum, enda mikiö samstarf meö þeim ávallt i einu og öllu. Elsa vann um árabil á sjúkra- húsinuá Hvammstanga. Móöir hennar dó 23. ágúst 1973, þá farin að heilsu. Undir fimmtugsaldurinri fór heilsanaö gefa sig hjá Elsu þótt hún kvartaöi aldrei um þaö og ynni sin verk bæöi heima og á vinnustaö. Er hún var aöeins 51 árs lézt hún snögglega. Fréttin kom mér og öörum á óvart. Ég var nýbúin aö hitta hana hressa og káta, þetta var svo ótrúlegt. Hún Elsa var dáin, farin. Við jarðarförina var slikt f jölmenni að vart var sæti I kirkjunni fyrir alla sem komu til aö fylgja henni siðasta spölinn. Hún var lögö til hinztu hvilu rétt hjá æskuheimilinu sinu uppi I Kirkjuhvammi. Kvenfélagskonurnar á staðnum gáfu kirkjunni 2 kerta- stjaka til minningar um hana i Hvammstangakirkju og Kvenfélaga- sambandiö gaf sjúkrahúsinu á staðn- um málverk til minningar um hana. Þetta segir meira en miörg orð um vin- sældir hennar. Faðir hennar dvelur nú á heimilinu fyrir aidraða á Hvammstanga. Hann mátti sjá á eftir konu sinni og einka- dóttur með aöeins tveggja ára milli- bili. Allir sjá hvaö mikiö maður hennar hefur misst og börn þeirra og faðir hennar, en þau eiga lika minningar um konu sem a"allt gerði allt sitt bezta fyrir heimiliö og lét það sitja ofar öllu öðru, þrátt fyrir nörg störf utan þess. Þar var alltaf alit í röö og reglu og fallega unnin stykki eftir hana sjáifa miriria á handbrágð hennar og smekkvisi. N w pwgar Elsa hciwi kvatt cg horfið á vist nýrra lifssviða er mér efst I huga góöar óskir og þökk fyrir langa og góöa viökynningu og þess er ég fyrir löngu fullviss, aö væri okkar litla þjóö- félag byggt svo af alþýðuheimilum þvilikum sem heimili þeirra Elsu Bjarnadóttur og Rikharðs manns islendingaþættir 9

x

Íslendingaþættir Tímans

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Íslendingaþættir Tímans
https://timarit.is/publication/303

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.