Íslendingaþættir Tímans - 27.01.1978, Síða 9

Íslendingaþættir Tímans - 27.01.1978, Síða 9
Bjarni Þorleifsson Fæddur 20. ágúst 1892 Dáinn 23. ágúst 1977. Já vinur, þá hefur þú runnið þitt skeið á enda, eftir langt og annasamt dagsverk, einn af traustustu bændum þinnar sveitar og héraðs. ÞU varst svo heppinn að lifa og starfa með þeirri kynslóð sem mestum umbótum hefur skilað — og mun skila — á jafn stuttum tima fyrir land vort og þjóð. Þú varst einn hlekkur i þeirri keðju, sem mót- uðu þetta starf vitt um landið. Þar reyndist þú traustur hlekkur sem þú stóðst aö starfi. Þá var sjaldnast spurt um daglaun að kvöld, heldur hvað hægt væri að skila niðjunum mestu. Gott væri aö eiga margar kynslóðar sem hugsa eins. Kynni okkar byrjuðu i U.M.F. Visi, þar reyndist þú góður liðsmaður eins þroska. Samkvæmt því viöhorfi gekk hún að verki og valdi sér starf. Það held ég að eigi við um allt sem hún geröi. Sá, sem þannig hugsar og þann- ig finnur til leggur sig fram um að vinna vel og ná árangri. En þetta, sem hér er reynt að lýsa, hygg ég að megi kalla kjarna þeirrar menningar sem I æsku mótaði lifsstefnu Þorkötlu Hólm- geirsdóttur. Þeirri menningu var hún trú alla daga. Eftir að Þorkatla fluttist á Suður- land bar fundum okkar ekki saman nema á margra ára fresti og stutt hverju sinni. Þó var það nóg til þess að ég vissi að hún var óbreyttog alltaf hin sama. Hún sinnt daglegum verkefnum svo sem skyldan bauö, reyndi að hjálpa og græða eftir því sem hún mátti við koma, en hún var alltaf barn sveitarinnar sinnar fyrir vestan. Þorkatla var aldrei heilsusterk og þvi má sjálfsagt segja að henni hafi orðið mikið úr starfsdegi sinum. Þeir sem henni voru nánastir hafa þar ef- laust mestaö meta, eiginmaður, dótt- ir, fósturbörn. En þó að hún væri önn- um kafin og gæti ekki á heilli sér tekið gleymdi hún aldrei fornum félögum. Það var notalegt og hressandi aö fá kveðju hennar, sem stundum var eins ogörvandihönd þegar nokkuðþótti við liggja. Þvl er ljúft að minnast og þakka. Iialldór Kristjánsson. ogannars staðar, þar sem þú stóðst að starfi. Síðan héldu kynni okkar áfram, bæði á mannfundum og heimili ykkar hjóna, siðast kom ég til ykkar 13. októ- ber i fyrra. Þá varst þú glaður og reif- ur að vanda. Rætt var um landsins gagn og nauðsynjar, sem stóð hug okk- ar beggja nærri þó við værum að nálg- ast hálfan niunda ára tuginn. Hér hefur mátt segja „lengi lifir i kolun- um”. Landsins gagn og nauðsynjar höfum við lengi hugsað um, og þar var okkar starf á langri og viðburðarikri ævi. Aldursmunur okkar voru 74 dag- ar, þeir hæstu úr sumrinu. Bjarni Þorleifsson er fæddur i Hömrum á Mýrum 20. ágúst 1892. For- eldrar hans voru Þorleifur Pálsson og Hallbera Bjarnadóttir ljósmóðir. Bjuggu þau á ýmsum bæjum á Mýr- um, en siðast i Holtum. Þorleifur drukknaði i Hornafjarðarfljótum sum- arið 1904, var að setja stikur i fljótin sem vegvisi fyrir ferðamenn. Vatns- mikill áll féll þá vestan við Skógey, vondur yfirferðar. Var Þorleifur að lita eftir vegi yfir hann, hesturinn lenti á sund, Þorleifur féll af honum og drukknaði. Hann var oddviti á Mýrum um tima og var það er hann andaöist. Hallbera kona hans lézt rúmu ári siðar. Mun hún hafa verið fyrsta lærða ljósmóðirin á Mýrum, og var i þvi starfi þegar hún dó. Merk kona. Ekki man ég með vissu hvort dauða Hall- beru bar skjótt að. Ég heyrði sannorð- an bónda á Mýrum, sem ég þekkti vel, segja að hann hefði séð feigðarboða Hallberu. Ég var á ferð sagði bóndinn, áveginum á milli Brunnhóls og Holta. Sá ég þá hvar Hallbera kom á móti mér austan veginn. Þegar hún var komin i námunda við mig kasta ég á hana kveðju, en hún tók ekki undir og hélt ferð sinni áfram, þegar hún var komin fram hjá mér leit ég til baka, þá var Hallbera horfin, og ég sá hana ekki meir. Ég var viss um að þetta væri feigðarboði hennar, og um þessar mundirandaðisthún, sagði bóndinn að lokum. Eftir látforeldra sinna fór Bjarni til Vilborgar Hálfdánardóttur og Bjarna sonar hennar sem þá var fyrirvinna á búi móður sinnar á Tjörn. Þaðan lá leiðin að Leiti i Suðursveit, þar var hann 1911 og einhver ár fleiri. Það fór hann aö Kálfafellsstað, og er þar ráðs- maður á búi þeirra presthjónanna sér Pétursog frú Helgu i eitteða fleiri ár. Frá Kálfafellsstað fór hann aftur að Tjörn I Holtum. Þar eignaðist hann barn með Ragnhildi Einarsdóttur, vel gerðri stúlku bæði til munns og handa. Þetta barn var piltur og hlaut rnfnið Karl Agúst, er búsettur á vestri bæ Smyrlabjörgum. Kona hans er Hall- dóra Jónsdöttir frá eystri bæ Smyrla- björgum. Hann er einn með gildustu bændum í Suðursveit, i skóla- og hreppsnefnd. Fyrst er Bjarna getið i bændatali á Mýrum 1923, þá giftur Lússiu Sigriði Guðmundsdóttur frá Skálafelli i suður sveit, mestu myndarkonu, enda af góöu bergi brotin, þar sem snyrti- mennska og hagleikur fylgdi ættinni. Umgetið ár búa þau hjóni Haukafelli á Mýrum, þá fyrirstuttu gengin i hjóna- band. 1 Byggðarsögu Mýrahrepps seg- irum búskap Bjarna: 1 Haukafelli bjó hann i þrjú ár, en flytja að Holtum 1926 á jarðarpart Kristins Jónssonar, sem flutti þaðan burt, og mun hafa keypt hann. í Holtum býr hann til 1943. Flytur þá að Viðborðsseli og kaupir þá jörö með húsum af Bene- dikt Þórarinssyni sem hættir þá bú- skap og flytur á Höfn með fjölskyldu sina. Ennfremur segir i Byggðarsög- unni: Þau hjón, þaö er Bjarni og Lúss- islendingaþættir 9

x

Íslendingaþættir Tímans

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Íslendingaþættir Tímans
https://timarit.is/publication/303

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.