Íslendingaþættir Tímans

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Íslendingaþættir Tímans - 27.01.1978, Qupperneq 10

Íslendingaþættir Tímans - 27.01.1978, Qupperneq 10
la, hafa gert mest af ræktun túns af ábUendum Viöborössels, enda engja- lönd oröin léleg. 1960 flytja þau bæinn aö Grænkletti, sem er stutt I norðvest- ur frá gamla bænum, og reistu þar tveggja hæöa steinhús ásamt Sigurjóni syni slnum. Býr hann með fjölskyldu sina á efri hæöinni. Sigurjón hafði um þessar mundir stofnaö til félagsbii- skapar meö foreldrum sínum meö jaröarafnot úr Selslandi og Rauða- bergslandi. Búskapur Bjarna og Lússlu hefur veriö meö myndarbrag, og alltaf sótt aö betri hag. Gæfa var þaö fyrir fjölskylduna að stofnaö var til félagsbúskapar, þaö hefur gefiö meiri mátt i öllum fram- kvæmdum, bæöi I ræktun, byggingum vélakaupum og fleiru. íbúöarhúsiö I Viöborösseli, er eitt með þeim falleg- ustu sem sjást I sveit á þessu landi, fáa metra frá þjóöveginum. Bjarna mátti telja I beztu bændatölu I sveit sinni I þess orös fyllstu merkingu: verkmaöur ágætur, hygginn I öllum framkvæmdum, sótti sifellt á bratt- ann, unz komizt var aö marki á brekkubrún, og ekki vildi hann vamm sitt vita. Þess vegna gat hann á gam- als aldri, þegar hann leit yfir farinn veg, glaözt yfir ævistarfinu, sem veitt haföi honum ánægju, en þeim sem viö taka gagn. Bjarni og Lússia eignuöust tiu börn, þar af létust tvö I æsku. Eftir lifa fimm synir og þrjárdætur: Halla giftóskari Sigurbjörnssyni. Hann er nú látinn. Hún er búsett á Höfn, Þóra og Guörún búsettar I Reykjavik, Guðrún gift Magnúsi Sigurðssyni, Sigurjón, kona hanser Sigurbjörg Sigurjónsd. Heimili þeirra er I Seli. Hann er framkvæmda-" stjóri I heykögglaverksmiðjunni Flat- ey. Guömundur, kona hans er Sigriöur ólafsdóttir, þau búa I Holthólum, Snorri kvæntur Sigriði Steingrímsdótt- ur Höfn þau eru búsett þar. Hefur unn: iö á vélum hjá ræktunarsambandi Austur-Skaftafellssýslu. Arnar, alinn upp hjá Jóni, bróöur Lússiu og Lauf- eyju Sigursveinsdóttir konu hans, hann er vélsmiður, búsettur á Höfn vinnur hjá vélsmiðjunni þar, ókvænt- ur. Bergur, hefur unnið hjá foreldrum slnum, og veriö þeim aöalstoð eftir aö fór aö llöa á ævi þeirra, ókvæntur. Allt er þetta myndar og hagleiksfólk, enda þvl hagleikurinn I blóö borinn. Þú varst maöur gróandans, Bjarni minn, og vannst I hans anda, þaö var einnmeö stærstu sigrum lífsþins.Meö hnlgandi hásumarsól varst þú borinn I þennan heim og I sama mund þess tlma sveifst þú inn í hulinn heim, semviö höldum aö sé til, en þú hefur nú kannað sannleiksgildiá, vonandi hefur þú ekki oröiö fyrir vonbrigöum. Hönd hins alvalda fylgi þér á hinu hugsaöa Egill Halldórsson Það varð mér mikil harmafregn, er ég frétti andlát vinar mlns, Egils Hall- dórssonar frá Dyrhól á Þingeyri, en hann lézt I sjúkrahúsinu á Isafirði þann 11. ágúst slðastliðinn aöeins fimmtugur að aldri. Það var fyrir tæpu ári að hann kom hér suður til rannsóknar og gekkst sið- ar undir skurðagerð. Við hjónin heim- sóttum Egil að sjúkrahúsdvölinni lok- inni og bar hann sig þá sem endranær karlmannlega og var jafn léttur I lund og bjartsýnn og hann var ævinlega. Okkur óraði ekki fyrir þvi þá að þetta yrði okkar siðasta spjall. Síðan fór hann vestur aftur og auðnaðist aö dvelja á heimili sínu hjá sinni ástriku og góðu konu, Guðmundu Pálsdóttur, og börnum sínum þar til siðustu vik- urnar, er hann dvaldi á sjúkrahúsinu á lsafirði. Ekki ætla ég að rekja ættir Egils, til þesser ég ekki nógu kunnug, aðeins að flytja nokkur þakklætisorð fyrir veru mina hjá þeim hjónum. Þegar ég sem unglingur, kom til vinnu á Þingeyri, var ég svo lánsöm að eiga athvarf á Dyrhól og var þar I fæði og húsnæði I tvo vetur og part úr sumri, og hef á- vallt siðan verið jafn velkomin þar. Vart er hægt að hugsa sér betrj veru- stað en á þvi heimili, þar var allt svo óþvingað, glaöværð rlkjandi og sam- staða þeirra hjóna, svo og allrar fjöl- skyldunnar, var innileg. Variega verö ég að fara út i það að hæla Agli, þvi það hefði hann ekki kært sig um. En það er ekki of sterkt til orða tekið, að hann var mikill dugnaðar- og atorkumaður og ósérhlífinn. Hann stundaði lengst af sjómennsku og varð fengsæll i þvi starfi. Egill var spaugsamur og léttur I lund, tryggur og góður félagi, sem gott var að leita til. landi, og leiði þig til frekari þroska en mannheimar hafa uppá að bjóða. Ég enda svo þessar linur meö einlægri vinarkveöju til þin, og bið þess að heill Drottins vaki yfir eftirlifandi konu þinni, og afkomendum til hinztu stund- ar. Mælir þinn Steinþór Þóröarson. Ekki get ég látið hjá liöa aö minnast þess, að foreldrar Egils, þau Þórhildur Bjarnadóttir og Halldór Jónsson, miklar ágætismanneskjur, dvöldu bæði á heimili sonar sins og tengda- dóttur til dauðadags, en Halldór lézt nú fyrir skömmu þar heima. Þau nutu þar sérstaklega góörar umönnunar og ekki má gleyma þeim stóra hlut sem Munda átti þar að máli en þar kom bezt I ljós hve miklum mannkostum hún er búin. Þau Munda og Egill eignuðust fimm börn, þau Pál, Halldór, Stefán, Þór- hildi og Svanhildi, sem öll eru vel gerð og mannvænleg. Ég vil með þessum fátæklegu orðum þakka þær mörgu ánægjustundir og góðvild, er ég naut hjá þeim Mundu og Agli á þeirra ágæta heimili. Þar er nú höggviðstórt skarð, þar sem Egill er á braut, en minningin um góðan dreng mun lifa I hugum okkar. Blessuð sé minning hans. Munda mln, þér og börnunum send- um við hjónin okkar innilegustu samúðarkveðjur og biðjum um styrk guðs ykkur til handa. Kristbjörg Jónsdóttir frá Vésteinsholti 10 islendingáþættir

x

Íslendingaþættir Tímans

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Íslendingaþættir Tímans
https://timarit.is/publication/303

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.