Íslendingaþættir Tímans - 09.03.1978, Side 9
Jóhann Árnason
Þann 28.‘desember siöastliðinn
andaðist Jóhann Asbjörn Arnason,
fyrrverandi bankafulltrúi i Ctvegs-
banka Islands, eftir hetjulega baráttu
við ólæknandi sjúkdóm.
Jóhann Arnason fæddist 24. október
1896 aö Hóli i Bolungarvik og var af
hinni kunnu Hólsætt, sem hefir haft
búsetu þar siöastliðin 300 ár.
Foreldrar hans voru Hansina Ás-
björnsdóttir og Arni Magnússon, út-
vegsbóndi ÍBolungarvik. Eina námið i
bernsku var i barnaskólanum i
Bolungarvik. Hann lauk tveggja ára
námi á einum vetri i Verzlunarskóla
tslands 1915.
Hóf hann þá ýms verzlunarstörf þar
til hann geröist starfsmaður lslands-
banka 14. marz 1919 og starfaði þar og
I Útvegsbanka Islands til 14. desember
1959eða i rúmiega 40 ár, að hann lét af
störfum fyrir aldurssakir.
Jóhann var tæplega meöalmaður á
hæð, en vel á sig kominn likamlega
snyrtimenni hið mesta i klæðaburði,
greindur og viðlesinn, enda vel máli
farinn og ritfær i bezta lagi. Liggja og
eftir hann margar greinar og bækling-
ur um hugðarefni hans sem fyrst og
fremst lutu að peninga- og efnahags-
málum, sérstaklega gengis- og vaxta-
málum.
Jóhann var andstæðingur hágengis-
stefnu þeirrar, sem Jón heitinn Þor-
iáksson, fyrrv. forsætisráðherra,
barðist fyrir og var rökstuðningur Jó-
hanns sannfærandi. Til marks um
þetta má geta þess, að Ólafi heit.
Thors, fyrrv. forsætisráðherra þóttu
þessar skoðanir Jóhanns Árnasonar
athyglisverðar, enda keypti hann
mörg eintök af bæklingi hans, um
þetta efni, sem hann nefndi „KREPP-
UNA”.
Jóhann var mikill skapfestumaður
og lét ekki hlut sinn, hver sem i hlut
átti.
Hann var mikill félagshyggjumað-
ur. Vann hann frábær og fórnfús störf
við undirbúning og stofnun Starfs-
mannafélags Útvegsbankans 1933. Jó-
hann varum skeið formaður félagsins
og starfaði ávallt af vakandi áhuga að
velferö félagsins og studdi drengilega
góð málefni þess og bankamanna-
stéttarinnar. Hann var fulltrúi félags-
ins viö stofnun Sambands islenzkra
bankamanna 1935. Jóhann var ásamt
Höskuldi heit. ólafssyni, bankafull-
trúa og undirrituöum, þátttakandi i
fyrstaalþjóða bankamannamóti I Lon-
don 1939.
Hann var dverghagur maður og
völundur hinn mesti. Læröur smiöur
varhannað visu ekki.en margt af þvi,
sem hann smiðaði, bæði úr tré og
málmi, tók langt fram þvi sem eftir
flesta sllka liggja. Hann gerði við
klukkur og úr, sem jafnvel úrsmiðir
höfðu gefizt upp við og smiöaöi þá
jafnvel varahluti I hvorutveggja, ef
þvi var að skipta. Vandvirkni hans og
hagleik, ber heimili þeirra hjóna
fagurt vitni, bæði hvað smiði á inn-
réttingum og sjálfstæðum hlutum þar
snertir.
Nokkuö sjómannsblóð frá Bolungar-
vik mun ætiö hafa runnið i æðum Jó-
hanns Arnasonar. Atti hann lengi
trillu, sem hann réri til fiskjar úr Sels-
vör i tómstundum slnum. Hann var
einnigágætur lax- og silungsveiðimað-
ur og hafði mikla ánægju af verðiferð-
um i ár og vötn.
Jóhann Árnason var kjörinn
heiðursfélagi i Starfsmannafélagi út-
vegsbankans 10. april 1960.
Hann var kvæntur Svövu Helgadótt-
ur, hinni ágætustu konu, sem bjó
manni sinum smekklegt og yndislegt
heimili aö Neshaga 13. Stundaði hún
mann sinn af stakri kostgæfni I hinum
erfiöu veikindum hans, allt til hins sið-
ast.
Þau áttu gullbrúðkaup 4. nóvember
1976.
Ég vil ljúka þessum fátæklegu orð-
um minum með þvi aö færa ekkju Jó-
hanns Arnasonar innilegustu
samúðarkveðjur minar og annárra
starfsfélaga hans i Útvegsbankanum
og stjórnenda bankans.
Adolf Björnsson.
Haukur Hólm Kristjánsson
Ekki kann ég þvi vel aö ágætur vinur
minn og félagi liggi óbættur hjá garði.
Þess vegna vil ég minnast hans með
örfáum orðum.
Haukur Hólm Kristjánsson fæddist á
Bildudal 1/11 1921. Foreldrar hans
voru þau Marta Eiriksdóttir og Kristj-
án Hólm ólafsson. Haukur ólst upp á
Bildudal hjá ömmu sinni og afa, þeim
Jensinu Jónsdóttur og Kristjáni Al-
berti Bjarnasyni til 13 ára aldurs, en
fluttist þá tilHafnarfjarðar.Fór fyrst I
Flensborgarskóla en siðar á loft-
skeytaskólann i Reykjavik, en átti
heimili I Hafnarfirði æ siðan.
1953 kvæntist Haukur þjfzkri konu,
Islendingaþættir
Rósu M. Hinriksdóttur. Börn þeirra
eruFrimann Hólm f. 1954, tæknifræði-
nemi i Danmörku, Kristján Hólm, f.
1955, sjómaður, Kristin f. 1960, nemi i
Flensborgarskóla og Haukur Hólm f.
1962 nemi.
Það er skemmst frá þvi að segja, að
vegna sameiginlegra starfa kynnt-
umstviðsnemma.eða umáriöl941, en
þá byrjaði hann að sigla og sigldi það
sem eftir var striðs, og þarf engum að
segja hver áreynsla þaö var að koma
beint úr skóla og steypa sér strax i þá
baráttu sem þá fór fram á höfunum.
Það þekktu þá þegar marghertir sjó-
menn, og vissu að talsvert þrek þurfti
til. Haukur brást heldur ekki skyldu
sinni, en hélt áfram ótrauður, og sigldi
siðan stanzlaust áfram unz yfir lauk.
Hann var i sumarfrii sér tú hvildar,
þegar dauðann bar skyndilega að
snemma lágúst. Þá varhann staddur I
Júgóslaviu, ásamt konu sinni.
Haukur sigldi ævinlega hjá sama fé-
lagi, Eimskipafélagi lslands, og var
þar á mörgum skipum. Sfðustu árin á
M/s Bakkafossi. Lengstaf fylgdi hann
heiðursmanninum Jónasi Böðvars-
syni, unz Jónas lét af skipstjórn sökum
aldurs. Það fór einlægt vel á með
þeim, og heyrt hefi ég eftir Jónasi, að
Haukur hafi verið bezti loftskeyta-