Íslendingaþættir Tímans

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Íslendingaþættir Tímans - 28.04.1979, Qupperneq 8

Íslendingaþættir Tímans - 28.04.1979, Qupperneq 8
Brekku í Norðurárdal 1. april sl. varö Þóröur Ólafsson fyrrum bóndi á Brekku i Noröurárdal 90 ára. Allir sem feröast hafa um Noröurárdal hafa tekiö eftir fögru býli undir hárri brekku, innanvert viö Grábrókarhraun, þaö er bærinn Brekka. Þar hefur Þóröur búiö allan sinn búskap og er þar enn ásamt konu sinni Þórhildi Þorsteinsdóttur frá Hamri i Þverárhliö. Þóröur er fæddur aö Desey í Noröurár- dal, sem er litiö kot Uti á eylendinu en er nú löngu komiö í eyöi. Foreldrar Þóröarf voru ólafur Olafsson bóndi á Desey og' kona hans Guörún Þóröardóttir, hrepp- stjóra á Brekku. Börn þeirra hjóna voru mörg, en þótt auöur væri ekki 1 búi, ólu þau upp mörg og mannvænleg börn sem hafa reynst dugmikil og á allan hátt reynst góðir þjóöfélagsþegnar. Meöal þeirra barna var Ólafur kristniboöi, Al- bert Ólafeson skólastjóri í Noregi, Þor- björn ólafsson fyrrum bóndi aö Hrauns- nefi o.fl. Þóröur á Brekku var dugmikill bóndi. Hann var hagleiksmaður og verkhygginn og á yngri árum var hann um nokkurra ára skeiö I Reykjavik og var þar oft viö verkstjórn. Ungur aö árum fór Þóröur i Hvítárbakkaskóla enslfkt var ekki tftt um þær mundir, aö efnasnauö ungmenni legðu leiö sina á skólabekk þvf ekki var um nokkra fjárhagslega aöstoö aö ræöa. Þóröur hóf búskap á Brekku 1919, en áriö 1919 tii 1920 er meö þvi haröasta sem komiö hefúr 1 minni núlifandi manna. Snjóþyngsli vorusvo mikil aö hvergi sá til jaröar og úr þessu rættist ekki fyrr en kom fram f maimánuö. Þótt Þóröur á Brekku væri nýliöi i bú- skap, mun hann hafa veriö einn meöal fárra bænda sem áttu heyfyrningar um voriö. Þetta dæmi sýnir hve traustur og fram- sýnn bóndi Þóröur á Brekku var. Þóröur tók viö jöröinni útihúsalausri aö kalla og voru þaö hans fyrstu umbætur aö byggja nýtt enda þóttnú sé búiðaö byggja öll hús jarðarinnar frá grunni og mun Brekka vera eitt best húsaöa ábýli sem til er,en aö þeim umbótum stóö lfka Þor- steinn sonur Þóröar sem nú býr á jöröinni ogrekur þar arðsaman búskap, enda vel hirt um það bú. Ariö 1931 uröu Brekkuhjónin fyrir þvf tjóni aö íbúöarhúsiö brann og allt innbú þeirra hjóna. Þóröur var ekki heima þeg- ar þetta geröist en kom heim skömmu 8 siðar. Sem betur fór uröu engin slys á fólki. Þóröur byggöi í ibúöarhús sama áriö og hélt ótrauöur áfram búskapnum. Þóröur er f élagslyndur og var starfandi I ungmennafélagi sveitarinnar i mörg ár, og gott var aö leita ráöa hjá honum. Um nokkur ár var hann i stjórn félagsins. Ýmsum trúnaöarstörfum gegndi Þóröur I sveit sinni var i hreppsnefnd i mörg ár, sóknamefndarmaöur i skólanefnd o.fl. Þóröur og Þórhildur eignuöust 5 börn en misstu fyrsta barniö nýfætt. Þessieru börnþeirra: ÞórunnErna gift Andrési Sverrissyni frá Hvammi, bllstj. i Reykjavik, ólafur kvæntur Asu Jó- hannesdóttur búsett i Reykjavik, Þor- steinn kvæntur önnu Siguröardóttur frá Hrisdal, búa á Brekku, Guðrún gift Pétri Jónssyni búsett i Reykjavík. öll eru þau systkin myndar- og atorkufólk. Þóröur og Þórhildur ráku myndarlegan búskap og áttugott heimili, þar sem regla var á öll- um hlutum. Þau geta nú litiö yfir farinn veg og séö árangur verka sinna og um- bætur á jöröinni aukast meö ári hverju f höndum Þorsteins sonar þeirra og önnu konu hans. Enn er Þóröur hress og glaöur og skýr i hugsun, les mikiö og hefur ánægju af samræöum jafnt um nútima málefni sem liöna tiö. Hann er enn beinn I baki og skörulegur ásýndum. Ég hef lengst ævi minnar veriö i ná- grenni viö Þórö á Brekku þvi jaröirnar liggja saman og foreldrar minirbvoru nágrannar hans um langa búskapartíö. Þaö hefur aldrei fallið skuggi á þaö nágrenni og tel ég gott nágrenni vera eitt af þvi góöa sem þróast í islenskum sveit- um. Égþakka þér Þóröur ogkonu þinni fyrir liönu árin og vona aö ævikvöldiö ykkar veröi heiörikt og fagurt eins og öll ykkar ævi hefur veriö. Hreöavatni 1. aprfl 1979 Daniel Kristjánsson islendingaþættir 90 ára Þórður Ólafsson

x

Íslendingaþættir Tímans

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Íslendingaþættir Tímans
https://timarit.is/publication/303

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.