Íslendingaþættir Tímans - 29.09.1979, Side 8
í minningu
Eyjólfs Eyfells
listmálara
Genginn er Eyjólfur Eyfells listmálari
og lífs kúnstner í hárri elli.
Skyldu ekki fáir islenskir listamenn
hafa átt eins almennri hylli aB fagna sem
hann?
Ég minnist nokkurra sýninga hans,
þegar hann var kominn á efri ár.
Margir dagar voru ekki liönir þegar
hver einasta mynd, sem þar var föl, var
horfin úr eigu listamannsins.
Hann var maöur hjartans og
tilfinninganna. Sælir eru hógværir,
því aö þeir munu landiö erfa,segir á
helgri bók.
Engan mann hef ég þekkt, sem þessi
ummæli ættu betur viö en Eyjólf.
Hann var vinur litilmagnans af eölis
ávisun og reiöi hans var heilög, þegar
honum varö hugsaö til rangsleitninnar i
henni versu.
Ekkertvar hoQara ungum manni en aö
fylgja Eyjólfi til fjalla i skaut islenskrar
náttúru.
Samverustundir meö honum i Þórs-
mörk yljahuga mannsmeöan maöur lifir.
Hiö næma feguröarskyn listamannsins,
sem hann tengdi oftlega og umbúöalaust
kviku mannlifsins var svo heillandi aö
aldrei gleymdist.
Ekki var heldur ónýtt aö vera meö Ey-
jólfi i mannfagnaöi. Best naut hann sin
innan um fornvini sina, þegar hann sjálf-
ur var veitandi. Fór hann á kostum,sagöi
skemmtisögur, og skenkti ótæplega
hinardvrustu veigar -þaö var hansmáti.
Eyjólfur var óvenju næmur bæöi á þá
sem lifandi voru og raunar ekki siöur á
þá sem horfnir voru úr þessum heimi.
Reynsla hans i þeim efnum var meö eins
dæmum, þaö ég veit bezt.
Aldrei lét hann mig finna þótt ég fylgdi
honum ekki fast eftir i eiliföarmálunum.
Hann kunni sannarlega þá list ,,aö hafa
aögát i nærveru sálar”.
Kæri Eyjólfur, allar vonir um fegurri og
betri heim veröa I minum huga ætiö
tengdar þér.
Veröi þér aö trú þinni, ljósberi fegurö-
arinnar.
Staddur I Hringariki i Noregi 8. ágúst
1979.
Hjálmar ólafsson.
8
islehdingaþættir