Íslendingaþættir Tímans - 20.10.1979, Page 4

Íslendingaþættir Tímans - 20.10.1979, Page 4
Jóhann Vigfússon járnsmiður Kæddur 28. nóvember 1927. Dáinn 31. júlt 1979. 1 hyldýpisgjám erlendra stórborga er þaö mikil reynsla aö viröa fyrir éer fdlks- mergöina sem rennur eftir gangstéttun- um til allra dtta. Fyrst I staö tekur maöur eftir einstaklingnum, andliti og klæöum, en áöur en varir daprast skynjunin og fyrir augu ber iöandi massa, eina heild. Fótatakiö og skvaldriö veröur aö ærandi suöi. Og maöur spyr sjálfan sig: hvaö væri hluturinn án heildarinnar? En áöur en svariö kemur hrekkur maöur viö og nuddar augun, þvi aö á móti kemur manneskja sem sker sig úr fjöldanum, ekki vegna frlöleiks og klæönaöar eöa framkomu, heldur vegna útgeislunar. Þaö er eitthvaö viö þennan jnann sem gerir hann frábrugöinn öörum á strætinu, eitthvaö óháö og frjálst, kannski óbundiö reglum samfélagsins um skikkanlega hegöun eöa hugsanir. Og maöur fær þaö á tilfinninguna aö þarna fari djarfur maöur, óskiljanlegurmaöur, fjarlægur og dulur, sem lifir sinu eigin lifi en ekki annarra. Mér hefur alltaf fundizt Jóhann Vigfús- son tilheyra þessum sundurleita „flokki” einstaklinga I sjálfstæöri leit og þroska, meö margar hliöar á sálinni ýmist i sól eöa skugga. Þaö fer aö sjálfsögöu eftir persónuleika hvers og eins, viömóti hans og framkomu, hvernig viöbrögö skapa margs konar hegöunarmunstur og si- breytileg. Ég var innan viö tVitugt er ég kynntist Jóhanni Vigfússyni, en ólafur sonur hans og ég vorum vinnufélagar og vinir, þá strax kom fram sá eiginleiki hans aö ræöa eölilega og frjálslega hin ýmsu mál viö óþroskaöar sálir. Hann var skoöanafastur, ákveöinn og öruggur meö sig, jafnvel þrjóskur, og kryddaöi mál- flutning sinn meö tviræöum athuga- semdum og smellnum skotum. Hann gat veriö djöfullega striöinn og hr jiifur I viö- móti, en bak viö forhliöina glytti I stórt hjarta og hlýja lund. Jóhann Vigfússon hlaut sina eldskirn i járnsmiöi viö Iönskólann og Land- smiöjuna i Reykjavik, hann starfaöi lengstafhjáVélsmiöjuGrims Jónssonar i Súöarvogi, ensiöustu misserin vann hann i Vélsmiöju Jens Arnasonar. Þaö segja mér fróöir menn, aö leitun hafi veriö á jafn frábærum járnsmiöi og Jóhanni Vigfússyni, og efast ég ekki um þaö þar sem mér var kunnugt um listfengi hans, þá sagöi hann mér einu sinni, aö hann væri ómögulegur maöur ef hann leggöi sig ekki allan fram viö verk sitt, hversu litil- fjörlegt sem þaö væri. í þessu tvennu liggurkannski gæfa hans og harmur, — aö skila hverju verki óaöfinnanlegu og finna sig geta tekist á viö hluti sem krefjast snilldar. Tuttugu og eins árs gamall kvæntist Jóhann eftirlifandi eiginkonu sinni, Aöal- heiöi ólafsdóttur, mikilli mannkostakonu og yndislegri,ogáttuþau einn son saman, Ólaf sölumann hjá Innflutningsdeild SIS. Þaö fer ekki hja þvi aö jafn ferskur og hress persónuleiki og Jóhann Vigfússon skilji eftir sig spor hér og þar i minningunni, þótt ekki veröi þau tiunduö hér. En er þaö ekki best, þegar öllu er á botninn hvolft, aö una glaöur viö þau leiftur sem lýsa upp hugann og til- finningarnar sem þau vekja. Niels Hafstein. Guðrún Pálsdóttir frá Vestmannaeyjum 4 Kveöja frá frænku: Sigrúnu Sólm undsdóttur, Hliöartungu, ölfusi. Allt er nú kyrrt og undur rótt, min indæla frænka kæra, þvi komin er nú sú kæra nótt, er hvildina þér mun færa. Ég signi þig vina hægt og hljótt þú hneigst inn I svefninn væra. Þi'n ævin var löngum afar ströng og oft sást þú þyrni á vegi, en áfram þú gekkst meö gleöisöng svo gjöful á ævidegi. Þó leiö væri jafnan löng og þröng þin lifsgleöi breyttist eigi. Annarra þjónn þú ætiö varst og inntir þi'n störf meö sóma. Meö öörum þú lifsins byröar barst og brostir af trúarljóma. Trygglynd þú llka löngum varst þá lifiö þitt veföist dróma. Þú áttir svo bliöa létta lund þó löng yröi æviganga, og þung yröi lfka þér hver stund um þyrnanna brautu langa. Þú kvartaöir ei, þin káta lund var kraftur um daga langa. Þú mild varst viö börn sem móöir kær, þar máttiröu njóta gleöi. I þinni vernd þau voru vær, þeim veittir þú ró I gleöi. Kærleikans birta bliö og skær þá barnanna hörtum réöi. Ég kveö þig min frænka klökk i lund, meö kveöjunni vil ég segja. Þú áttir margt — þin mjúka mund var máttug viö störf aö þreyja. Þó oft væri myrk og erfiö stund, þig aldrei réö neitt aö beygja. Þig aftur ég sé i æöri heim á indælum sólarlöndum. Þá liöa viö munum ljúft um geim á ljósgeislavængjum þöndum. Röddin þin veröur hugljúf hrein á himneskum friöarströndum. (Borgfjörö) Islendingaþættir

x

Íslendingaþættir Tímans

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Íslendingaþættir Tímans
https://timarit.is/publication/303

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.