Íslendingaþættir Tímans - 20.10.1979, Blaðsíða 6

Íslendingaþættir Tímans - 20.10.1979, Blaðsíða 6
Þorsteinn Klemensson Hinn 25. ágúst 1979 fór fram útför hans frá Hvammskirkju f Noröurárdal, aö viö- stöddu miklu fjölmenni. Skartaöi sveitin sinu fegursta á heitasta og blföasta degi sumarsins. Þorsteinn lést aö heimili sinu 18. ágúst s.l. og vantaöi 5 daga upp á 87 ára aldur, en hann var fæddur 23/8 1892. Faöir hans, Klemens Baldvinsson, flutti meö fjölskyldu sfna vestan úr Dölum aö Hvassafelli f Noröurárdal áriö 1908. Ekki ætla ég aö rekja ætt Þorsteins frekar, en aö honum stóö kjarnafólk. Hafa öll börn Klemensar Baldvinssonar veriö meö af- brigöum dugandi, en tvær dætur hans, Guöriöur og Kristfn, dóu ungar. Þaö fyrsta sem ég man eftir Þorsteini var f sambandi viö vinnu hans hjá fööur minum. Faöir minn réöst i þaö aö veita vatni á engi. Þaö var I kring um 1922 sem þaö verk hófst, aö mig minnir. Þá voru engar vélar til aö grafa skuröi eöa ýta upp göröum. Varö aö stinga allt efni meö skóflum og hlaöa þvf upp meö göfflum. Meöal þeirra manna sem aö þessu unnu var Þorsteinn Klemensson. vitnaöi faöir minn oft til þess hverjum firnum Þor- steinn hafi afkastaö i þeirri vinnu, sagöist hann tæölega hafa þekkt annaö eins. Ariö 1917 giftist Þorsteinn Sigurrós Jónsdóttur, mikilli dugnaöar og starfs- konu. Hún lést áriö 1974 og voru nákvæm- lega liöin 5 ár frá útfarardegi hennar dag- inn sem Þorsteinn lést. Sigurrós og Þor- steinn voru meö eindæmum samhent i öllu er laut aö þeirra störfum. Þau bjuggu á nokkrum stööum hér um slóöir: Haf- þórsstööum, Múlakoti, Brekku og Hvassafelli f litlum bæ sem þau nefndu Lækjarbug. Þessi litli bær er nú löngu horfinn. Þegar' Þorsteinn og Sigurrós bjuggu þar heyjuöú þau á Tunguengi, en þaö haflli hann áöur keypt. Tunguengi liggur aö Hvassafellsengjum, svo þangaö var stutt aö sadija til heyskapar. Jafn- framt þessum búskap stundaöi Þorsteinn allskonar vinnu utan heimilis, mest vega- vinnuáýmsum stööum. Einnig vann hann oft hjá sveitungum, þvf aö hannvar eftir- sóttur til verka, enda sérstaklega greiö- vikinn og hjálpsamur. Þdttaskil veröa f Hfi Þorsteins 1937, þá kaupir hann Hreimsstaöi og flytur frá Hvassafelli um voriö. Má segja aö á Hreimsstööum voru öll hús komin aö falli eöa ónýt. Þorsteinn hófst strax handa viö aö^reisa nauösyn- legustu peningshús. Var þaö allt af van- efnum gert, en ekki um annaö aö ræöa en hafa hraöan á, þvf segja má aö um algjört landnám væri aö ræöa, og fjárráöin lftil til framkvæmda. Enginn véltækur blettur var I Hreimsstaöatúni og hófst hann einn- 6 ig handa á næstu árum aö slétta túniö eftir þvl sem hægt var, en þaö var bæöi blautt, stórþýft og grýtt. Þá voru engar gröfur eöa ýtur komnar og ekki verkfæri nema fyrir hesta og svo handafliö. Þaö var I kring um 1940 einn slösumar- dag I sláttarlok aö ég plægöi meö Þor- steini I gamla túninu á Hreimsstööum. Höföum viö tvo hesta fyrir plóginum. Stýröi hann hestunum en ég plóginum, þó skiptumst viö eitthvaö á um þaö. Var hann þá kominn hátt á fimmtugsaldur. Landiö sem plægt var var bæöi stórþýft og grýtt. En áhugi Þorsteins og atorka viö þetta verk var einstök. Var gaman aö vinna aö þessu meö honum. Er þetta meö skemmtilegri dögum, sem ég á i sjóöi minninganna, dagurinn sem ég plægöi meö Þorsteini á Hreimsstööum. Þorsteinn var um margt sérstakur og minnisstæöur persónuleiki. Stálgreindur og haföi sfnar skoöanir á hlutunum. Meöal samferöamanna var hann kunnur fyrir sfn hnyttilegu tilsvör. Ekki naut hann skólagöngu, hann óx upp á þeim tfma aö ekki var um s-lfkt aö ræöa. En hann mun hafa lesiö allmikiö af bókum, og minnist ég þess aö hann fékk mikiö lánaö af bókum frá Lestrarfél. Norödælinga. Hann var einlægur áhuga- maöur um velverö sveitarinnar og aö þar ættu sér staö framfarir á öllum sviöum. Eina dóttur eignuöust þau Þorsteinn og Sigurrós, Aöalheiöi. Hefur hún alla tfö veriö þeim til mikillar hjálpar. Hefir alltaf veriö heima heyskapartfmann, en var annars staöar á vetrum. Sföustu árin hefur veriö alveg heima og annast öll störf, bæöi úti og inni, og séö um foreldra sina f veikindum þeirra. Aöalheiöur er óvenju dugleg aö hvaöa verki sem hún gengur. Þorsteinn var góöur húsbóndi, þaö sést á þvf aö sömu drengirnir voru hjá honum sumar eftir sumar. Sannar þaö hve gott hann átti meö aö umgangast unglinga og ná til þeirra. Einnig held ég aö hann hafi notiö almennra vinsælda af öllum sem kynntust honum. Sföustu árin var Þorsteinn þrotinn aö heilsu og kröftum, einnig var heyrnin far- in aö bila. En hann fylgdist þó meö öllu og áhuginn ótrúlegur hjá jafn þreytt um manni og hann var oröinn. Fyrir tveim árum lá hann lengi þungt haldinn á Akranessjúkrahúsi. Kom ég þá tvisvar til hans. Sagöist hann þá vonast til þess aö þessu færi aö ljúka, þaö heföi ekki tilgang aö lifa svona lengur. En þaö fór á annan veg, hann komst til furöu góörar heilsu og kom aftur heim aö Hreimsstöö- um. Laugardaginn 18. ágúst fór hann út á Akranes aö fylgja vinkonu sinni, Oddrúnu f Mýrarhúsum til grafar. Þegar hann var aö g anga til hvflu heima hjá sér um kvöld iö var hann skyndilega allur. Þorsteins er minnst meö velvild og vin- arhug af öllum sem hann þekktu. Guömundur Sverrisson. A einum fegursta degi á þessu sumri laugardaginn 25. ágúst s.l. var til moldar borinn aldurhniginn borgfirskur bóndi, Þorsteinn Klemensson frá Hreimsstööum I Noröurárdal. Hann var jarösettur f Hvammi 1 sömu sveit aö viöstöddu miklu fjölmenni. Nágrannar hans og vinir voru þar mættir til þess aö votta hinum aldna og vegmóöa bónda hinstu viröingu sfna. Allir höföu þeir þekkt hann aö góöu einu, hjálpfýsi og greiövikni og hinu létta glaö- lega yfirbragöi, sem svo mjög einkenndi hann f daglegri umgengni. Borgarfjöröur- inn skartaöi sannarlega sinu fegursta á þessum sólrlka ágústdegi þegar Þor- steinn var kvaddur, en i Noröurárdalnum átti hann heima I 70 ár, yrkti jöröina og vann höröum höndum meöan heilsa og kraftar leyföu. Þorsteinn var Dalamaöur aö ætt og uppruna. Af honum stóöu merkar ættir I Dalasýslu. Fæddur var hann f Fremri- Hundadal i Miödölum þann 21. ágúst áriö 1892 og skorti þvi nokkra daga til þess aö ná 87. aldursárinu þegar hann lést. For- eldrar hans voru hjónin Klemens Bald- vinsson og Dómhildur Gfsladóttir, sem þar bjuggu og var Þorsteinn fjóröa barn þeirra hjóna. Alsystkini Þorsteins voru alls sex, en þau voru: Arndis sem lengi bjó í Króki f Noröurárdal, Sæunn, sem bjó f Klettstfu I Noröurárdal, Kristfn ljósmóö- ir, ólafur sem bjó f Borgarnesi, Kjartan sem lengi bjó i Sveinatungu, nú búsettur I Reykjavlk og yngst þeirra var Guöriöur. 011 eru þessi systkini nú látin nema Sæunn og Kjartan, sem bæöi eru háöldruö. Niu ára aö aldri missti Þorsteinn móöur sfna og stóö þá faöir hans uppi meö stóran barnahóp f ómegö. Klemenz Baldvinsson kvæntistaftur áriö 1905 Kristfnu Jónsdótt- ur, mikilli myndar- og mannkosta konu og reyndist hún hinum ungu börnum sem besta móöir. Kristin og Klemens eignuö- ust þrjár dætur, en þær eru: Guölaug og Sveinbjörg báöar búsettar i Reykjavlk og Dómhildur, sem er yngst þeirra systra búsett I Bolungavlk. Ariö 1908 flutti Klemens Baldvinsson burt úr Dölunum meö f jölskyldu sina og keypti jöröina Hvassafell í Noröurárdal. Þar rak hann stórbú ásamt nokkrum af börnum sfnum fram til ársins 1929. Þor- Islendingaþættir

x

Íslendingaþættir Tímans

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Íslendingaþættir Tímans
https://timarit.is/publication/303

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.