Íslendingaþættir Tímans - 08.12.1982, Blaðsíða 5

Íslendingaþættir Tímans - 08.12.1982, Blaðsíða 5
Eiríkur Skúfslæk f. 22. 12. 1931 d. 1. 11. 1982 Á þeim velmegunartímum sem íslenska þjóðin kýr nú við getur hver íslendingur gert sér vonir UlT> að lifa til hárrar elli, því tðlfræðilegar athuganir hafa sýnt að hvergi í heiminum er ^eðalaldur fólks hærri. En það er eitt hvað tolfræðin segir að við getum vænst og annað hvaða hlutskipti forlögin hafa ætlað okkur. Sjúkdómar °g slys gera ekki boð á undan sér og setja iðulega strik í þann reikning sem að öðrum kosti sýndi er|n hærra meðaltal. Ótímabær dauði fólks sem enn er í blóma lífsins og gæti átt mörgu ólokið á sinni starfsævi er jafnan harmsefni allri þjóðinni. hess vegna leggjum við svo mikið kapp á að reyna fyrirbyggja sjúkdóma sem ógna lífi fólks, fekka slysum og lækna þá sem sjúkir eru. Og ntiklu höfum við áorkað þótt enn sé mikið óunnið. Aðeins tveimur sólarhringum eftir að þjóðin hefði tekið á saman og gefið rausnarlega til nýrrar ieitarstöðvar Krabbameinsfélags íslands, um síð- Ustu helgi, lést sveitungi okkar og vinur, Eiríkur h'fagnússon, bóndi á Skúfslæk, Villingaholts- hrePpi, úr þeim erfiða sjúkdómi, krabbameini, aðeins fimmtugur að aldri. Sjúkdómssaga Eiríks er ekki löng. Nú, aðeins um ári eftir að hann kennir fyrst sjúkdómsins, er hann allur. Eftir að hann hafði gengist undir erfiða shurðaðgerð á liðnu vori duldist engum sem hann Þekktu hver alvara væri á ferðum, þótt í lengstu ’ö8 væri haldið í vonina um að hann fengi aftur bata. Okkur er sagt að ein besta hjálpin í baráttu við j'lv'ga sjúkdóma, séu bjartsýni, von og trú. En Par er hægara um að tala en í að komast, enda ,uga þau meðul sjaldnast ein sér, þótt miklu skipti hl að gera mönnum erfiðar raunir léttbærari. En Þessu til viðbótar hafði Eiríkur á að skipa öflugum andamanni í baráttunni við sjúkdóminn, sem er e'g>nkona hans, Ásta Ólafsdóttir frá Syðri-Mörk "ndir Eyjafjöllum. Og sá mikli styrkur sem hún "e>«> manni sínum í erfiðri sjúkdómsbaráttu er "gætur og ómetanlegur. Pau Eiríkur og Ásta hafa átt saman tuttugu ár ' jónabandi og búið rausnarbúi á Skúfslækþann "na. Heimili þeirra er annálað myndarheimili Sem best hefur sést á því að til þeirra hefur tíðum er>ð leitað þegar á hefur legið að koma barni í l?,stur til lengri eða skemmri tíma. Og þau hafa 'ka jafnan haft pláss fyrir fleiri börn en sín eigin '' húsrými væri ckki nema í meðallagi. “örn þeirra Eiríks og Ástu eru fjögur talsins, lr mannvænlegir piltar og ein efnileg lítil stúlka. ynirnir eru: Magnús, 18 ára, Árni, 16 ára, og Hah'14 ára'a,lir 1 skóla a Selfossi' Sýstir Þeirra’ a> er aðeins fimm ára gömul. so 'rikur Magnússon fæddist 22. desember 1931, nur hjónanna Ingibjargar Gísladóttir (d. 1973) sle«dingaþættir Magnússon og Magnúsar Eiríkssonar, bónda á Skúfslæk. Eiríkur var þriðji í röðinni af fimm systkinum; eldri en hann eru Sigríður, húsmóðir í Reykjavík, og Skúli. járnsmiður á Selfossi, elstur þeirra systkina. Yngri eru Halla, húsmóðir í Syðri-Gróf, og Grétar, vinnuvélstjóri á Selfossi. Eiríkur tók við búi af föður sínum fyrir tæpum tuttugu árum, og hefur stundað þar búskap óslitið síðan, en áður hafði hann fengist við sitt af hverju, m.a. unnið við viðgerðartörf. Eiríkur var laginn smiður og hagur bæði á tré og járn, og kom það sér oft vel í búskapnum, sem og reynsla hans af vélum og vélaviðgerð. Búskaðurinn stóð traustum fótum hjá Eiríki og lýsti bæði dugnaði og útsjónarsemi í hvívetna, auk þess sem heimilið lýsti af þeirri öryggiskennd sem skaphöfn hans mótaði, en hann átti í ríkum mæli þá þrjá eiginlcika sem eftirsóknarverðir mega teljast hverjum manni: góðvild, reglusemi og skapfestu. Kynni okkar Eiríks hófust fyrir fimm árum þegar við hjónin réðum okkur til kennslustarfa hér í sveit. Hann var formaður skólanefndar og hreppsnefndarmaður, allt þar til í sumar að hann baðst undan endurkjöri vegna veikinda sinna. Pað var mikil gæfa fyrir okkur að Eiríkur skyldi gegna þessu starfi á þeim tíma sem við réðum okkur að skólanum og þá ekki síður fyrir börnin í sveitinni. Eiríkur og þau sem með honum störfuðu í skólanefnd sýndu starfi skólans mjög mikinn áhuga og vildi að hann hefði öll skilyrði til að veita menntun sem jafnaðist á við það sem best þekktist í þéttbýli. En sins og allir vita er víða talsverður aðstöðumunur að þessu leyti. Breytingar á námsefni og kennsluháttum, sam- fara breytingum á skólakerfinu, hafa leitt til þess að margir grunnskólar í fámennum sveitum hafa dregist mjög aftur út, og hjafa ekki haft sama kennsluefni á boðstólum og skólar í þéttbýli eða haft ráð á að búa sig út með dýr kennslutæki. Það skiptir því miklu að skólanefndir sýni þessum málum skilning og taki fljótt við sér þegar slíkar breytingar ganga yfir. Fyrsta haustið sem við störfuðum hér var t.d. keyptur nýr myndvarpi fyrir skólann, tæki sem þykir sjálfsagt í öllum nútímaskólum, en kostar drjúgan skilding. Ég spurði Eirík hvort honum þætti þetta ekki dýrt tæki. Hann svaraði því til að það færi eftir því hvernig á það væri litið. Sjálfum þætti honum það alls ekki dýrt: „Þetta kostar sömu upphæð og ég fer með í mjöl handa kúnum á einni viku.“ Þannig var Eiríkur. Raunsær, jákvæður og gamansamur ef því var að skipta. Það er mikill missir að slíkum mönnum. Hér væri vissulega ástæða til að segja fleira af starfi Eiríks að félagsmálum, en rúmsins vegna verður það ekki gert nú. Þó langar mig að geta þess að áður en sjónvarpið barst út í sveitir landsins var víða mikil leiklistarstarfsemi, og var svo einnig í Flóanum. Þar þótti Eiríkur heldur en ekki liðtækur á sviði og minnast margir sveitungar okkar þess enn og brosa í kampinn þegar þeir sjá hann fyrir sér í Ævintýri á gönguför. Þar kom sumsé í ljós að þessi alvarlegi maður gat brugðið ærlega á leik ef því var að skipta. Þann leik vildi ég gjarnan hafa séð. Nú þegar Eiríkur er genginn er hugur okkar hjónanna fullur þakklætis fyrir það hvernig hann reyndist okkur alla tíð, bæði í stafi okkar og persónulegum kynnum. Astu og börnunum og Magnúsi afa þeirra á Skúfslæk sendum við okkar dýpstu samúðarkveðjur. Rúnar Ármann Arthursson

x

Íslendingaþættir Tímans

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Íslendingaþættir Tímans
https://timarit.is/publication/303

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.