Íslendingaþættir Tímans - 07.04.1983, Side 3

Íslendingaþættir Tímans - 07.04.1983, Side 3
Jóna Sigrún Sigur j ónsdóttir húsfreyja að Berghyl Fædd 8.11. 1923 Dáin 21.12. 1982. Dauðinn hefur krafist mikils af okkur hér í Hrunamannahreppi þetta síðastliðna ár. Sumir að vísu orðnir lúnir, svo gott var að hvílast. En skilja eftir söknuð og tómleika þeim er eftir lifa. Ein þeirra er við sáum á bak allt of fljótt, var Jóna Sigrún Sigurjónsdóttir, húsfreyja að Berghyl. Svo skyndilega hvarf hún frá okkur að við vorum höggdofa, og jólaljósin nókkrum dögum seinna juku á söknuðinn. -En líka leiddi okkurað þeim sannleika. að lífsmunstrið er lagt, og því verður að hlíta. t>að var gott að vera kunningi Jónu. Hún var hrein og bein, hress og kát, svo ósérhlífin og dugleg, velvirk og fljótvirk. Enda var bæ'rinn þeirra á Berghyl annálaður fyrir snyrtimenpsku. Þangað var komið með gesti að sýna það besta sem við áttum í búsýslu og annari umhirðu á sveitabæ. Jóna var fædd að Minnibæ í Grímsnesi. Foreldr- ar hennaf voru hjónin Sigurjón Jónsson frá Hömrum í Grímsnesi, og Guðrún Guðmundsdótt- ir frá Miðhúsum í Biskupstungum. Börn þeirra urðu 16, og náðu öll fullorðinsaldri. Erfitt hefur verið í uppvexti Jónu, því faðir hennar dó fáum dögum áður cn hún fæddist. En móðir hennar hélt. heimilinu saman með styrk elsta sonar síns. og komst þessi stóri barnahópur til manns með ráðdeild og dugnaði. Fimmtán ára fór Jóna að vinna fyrir sér hjá vandalausum. Hann var orðinn mikill einstæðingur og átti ekki í raun aðra að en þau í Hvammi. Einar gat ekki unað þeirri ráðstöfun sem oddviti sveitarinnar hafði gert með hann. Hafði hann verið í Hvammi á uppvaxtarárum Þórðar og var Hólmfríður kona hans systir Þóreyjar húsfreyju. Einar var svo hjá þeim hjónum það sem hann átti ólifað. Segir þetta sína sögu um þau í Hvammi. Vilborg var mjög bókhneigð og kunni mikið af Ijóðum. Hún var sönn myndar- og merkiskona. Málfar hennar var einkar fagurt og allt tal hennar fágað og bar vott um mikla lífsreynslu og mildi og göfgi hugarfarsins, ásamt næmum skilningi á því sem fram fór í mannlífinu. Allt þetta gerði Vilborgu ógleymanlega þeim sem hana þekktu. Mörg hin síðari ár voru þau hjónin ein yfir vetrarmánuðina. Er fram á vorið kom og skólar voru hættir starfsemi sinni komu synir Ingibjargar til afa síns og ömmu, og voru þeim til ómetanlegr- ar hjálpar og gleði yfir vor og sumarmánuðina. Haustið 1977 fluttu þau í gott og nýbyggt íbúðarhús í Hvammi. En þá var heilsu Vilborgar farið að hnigna. Þórður annaðist um konu sína af mikilli íslendingaþættir Á þeim árum var hún hjá læknishjónunum í Laugarási þeim Ólafi og Sigurlaugu, sem hún mat mikils, og minntist oft á hve gott hún hefði haft af veru sinni þar. Veturinn 1944-45 var hún á Húsmæðraskólan- um að Laugarvatni. Árið 1946 gekk hún að eiga Eirík Jónsson frá alúð og umhyggju næstu árin. Snemma vetrar 1981 fóru Þórður og Vilborg á sjúkrahúsið á Egilsstöðum. Er voraði þráðu þau mjög að fara aftur heim. Þórður átti líka nokkrar ær sem þurfti að annast um á sauðburði. { maímánuði fóru þau aftur heim í Hvamm. Var Ingibjörg dóttir þeirra þar hjá þeim síðastliðið sumar. Og þar heima sá ég og talaði við Vilborgu í síðasta sinn. Er vetur fór að fóru þau hjónin aftur á sjúkrahúsið á Egilsstöðum og þar andaðist Vilborg 13. janúar sem áður segir, var hún jarðsungin frá Vallanes- kirkju 21. s.m. Ég get ekki dregið fram hér nógu glögga og heilsteypta mynd af Vilborgu. Hún var ein af þeim mörgu húsmæðrum í sveit sem unnu ævilangt að heill og hag heimilsins og þeirra sem næstir þeim stóðu. Slíkir einstaklingar eru vissulega einn af sterkustu hlekkjunum í þjóðlífskeðjunni. Megi góður guð blessa minningu Vilborgar og gefa öldruðum eiginmanni hennar styrk og hugar- ró á ævikvöldinu. Alfreð Eymundsson Grófargerði Þverspyrnu hér í sveit. Þá höfðu þau fest kaup á Berghylnum af móðursystkinum Eiríks. Jörðin var góð frá náttúrunnar hendi og í meðferð þeirra, með byggingum, ræktun og öðrum umbótum, sem framkvæmd var með markvissri festu og smekkvísi og þrotlausri vinnu, varð að því höfuðbóli sem hverri sveit er sæmd af. Oft höfurn við Jóna eytt stundum saman, ferðast og heimsótt hvor aðra. Og í sumar átti að grípa nokkra daga að auka kynni okkar af landinu, og veit ég að þá hefði líka orðið sólskin, eins og í þeim fyrri ferðum. En gott er að minnast góðra stunda. Jóna var mikil móðir og amma, enda var heimilið hennar stóri vettvagur, þar sem að mörgu var að hyggja, bæði úti og inni. Allsstaðar lagði hún að gjörva hönd. Mér verður hugsað til barnabarnanna hennar, sem áttu hlýtt og stórt rúm í huga hennar og hjarta. Verða þau ár sem þau nutu þess dýrmæt í endurminningunni. Þegar frá líður, förum við að vega málin og líta á þau frá fleiri hliðum. Þungbært hefði verið að lifa af áfallið, en geta ekki notið krafta sem áður. Ég trúi því, að hún væri kvödd héðan til starfa sem þoldu ekki bið, og standi nú sem áður að hverju því verki sem gera þarf með Iifandi áhuga og dugnaði. Eiríkur og Jóna eignuðust fjögur börn. Elst er Guðrún Guðlaug, maki Arnar Bjarnason flug- virki. Þau búa í Luxemburg. Svanlaug, maki Hörður Hansson bifreiðastjóri, búsett á Selfossi. Áslaug, maki Eiríkur Kristófersson. Þau búa á Grafarbakka. Yngstur er Jón Guðmundur, maki Anna María Sigurðardóttir. Þau búa á Bcrghyl. Barnabörnin eru níu. Við Hermann þökkum samfylgdina, ogbiðjum henni blessunar Guðs. Katrín Jónsdóttir. Leiðrétting I Ijóði sem heitir Kveðja frá systrum, og er ort í minningu Bjama Ólafs Helgasonar, féll niður ein lina í seinni vísunni. Minningarljóðið birtist í ísiendingaþáttum 18. mars 1983, 10. tbl. Rétt er vísan þannig: Guð gefur og tekur Guð huggar og grœðir. Lyftum huganum hærra er hryggð okkur mœðir. Höll rís yfir höllu, hetja stendur í stafni starir á móti sólu, stýrir í drottins nafni. ) A.H. 3

x

Íslendingaþættir Tímans

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Íslendingaþættir Tímans
https://timarit.is/publication/303

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.