Íslendingaþættir Tímans - 07.04.1983, Blaðsíða 6

Íslendingaþættir Tímans - 07.04.1983, Blaðsíða 6
Gunnlaug Sigríður Sigurðardóttir Fædd 21. des. 1905 Dáln 13. febr. 1983 KVEÐJA FRÁ TENGDADÓTTUR Tengdamóður minni kynntist ég fyrst. fyrir 23 árum. Hún kom til dyra létt á fæti og broshýr. til að bjóða vclkominn clsta son sinn og tilvonandi tcngdadóttur. Okkur varð strax vel til vina. því í fasi hennar fannst engin hálfvelgja. Hún var glaðlynd, fljót- huga og vinaföst. Það varð mér unun að hlusta á mál hcnnar. sem var einstaklega skírt og hljóm- fagurt. umræðuefnin voru margvísleg og ekki alltaf um hversdagsleg málefni. Sigga eins og hún var kölluð, var fædd á Sauðárkróki 21. 12. 1905, dóttir Önnu Guð- mundsdóttur og Sigurðar Gunnlaugssonar. Hún var næst yngst af 5 systkinum, sem upp komust. í þá daga lágu leiðir ungra stúlkna í vistir. og Sigga var allsstaðar vel látin. svo vel að enn var gott samband milli hennar og drengs. sem hún passaði, er hún var um tvítugt. Hún fluttist til Siglufjarðar. með móður sinni og systrum. eftir lát föður síns. Þar dvaldist hún í nokkur ár. og þar kynntist hún mannsefni sínu. Þorgilsi Pálssyni bónda á Brúarlandi í Deildardal í Skagafirði. Þangað fluttist hún svo með honum. ogþá var hún komin heim. því þar í dalnum höfðu forfeður hennar búið. Þau byrjuðu fljótlcga byggingu nýbýlis. þar sem dalurinn er lægstur og áin rennur á fögrum eyrum. Þau nefndu býlið Eyrarland. Hlutskipti frumbýlingsins var erfitt á árum fyrr. og oft var vinnudagurinn langur hjá sveitakon- unni. sem huga þurfti að mörgu. þvíbóndinn. scm var hagur vel, var oft í vinnu utan heimilis. til þess að drýgja tekjurnar. ingur og er hún gift Sigurði Sigurkarlssyni. fjármálastjóra hjá Almcnnum tryggingum. Jón og Þórunn voru heppin mcð tengdasoninn. en hann reyndist þeim sem besti sonur. Svala og Sigurður eiga 3 börn. Sindra Karl 12 ára. Þórunn 11 ára. og Önnu Sigríði 4 ára. öðru nafni ..körfublómið" hans afa. Jón var einstakur í viðmóti við börn. nógur tími, enginn asi til að fá frið. Afabörnin hans missa mikið. Á samverustundunum mcð afa flaut allt í fróðleik og sögum, umhverfið gert forvitnilegt og spurningar og svör á reiðum höndum. Elsku Þórunn og fjölskylda. Ég og fjölskylda mín vottum ykkur innilega samúð, og ég enda þessar línur með vísunni sem Jón kenndi mér eftir föðurbróður sinn, Þorstein Erlingsson. skáld. "Þegar sólin nálgasi œginn þá er goti að hvíla sig. Vakna ungur einhvern daginn með eilífð glaða í kringum sig“ Dísa Erlings. 6 Þorgils og Sigga eiga sjö börn á lífi, og einn son átti hún fyrir hjónaband, sem þau ólu upp. Börnin eru Sigurður kvæntur undirritaðri, búa í Reykja- vík, Ragnhciður gift Jökli Guðmundssyni búa á Akureyri, Páll bóndi á Eyrarlandi kvæntur Sól- rúnu Jónsdóttur, Haukur búsettur á Eskifirði, Hreinn bóndi á Grindum, Anna gift Jóhanni Steingrímssyni búa á Akureyri, Guðmundur kvæntur Sigríði Ólafsdóttur búa á Akureyri og Guðfinna gift Bjarna Kristjánssyni búa í Bolung- arvík. - Barnabörnin eru 27. langömmubörnin tveir litlir snáðar. Börnin urðu fljótt liðtæk við bústörfin. og ekki var stóra systir há í loftinu þegar hún var orðin mömmu sinni stoð og stytta við barnagæslu og innanhússtörf. Heimiljð á Eyrarlandi var gestkvæmt. og gest- risnin var þar í fvrirrúmi. og eftir að börnin fóru að tínast að heiman. og flytjast til annarni landshluta. var það þeirra mesta gleði að komast heim einhvern tíma sumars. að hitta foreldya og systkini. Var þá oft þröngt setinn bekkurinn. en allir voru velkomnir. Það er sumarfagurt á Eyrarlandi. og allt bú- skaparlag þeirra hjóna bar vott um dugnað og reglusemi. Þar mátti ekkert raskast. þar mátti stilla klukkuna eftir vinnu húsmóðurinnar. Öll störf léku Siggu í höndum. hvort sem þau lutu að bústörfum eða fínustu handvinnu og við hana undi hún sér. er umsvifin við bústörfin minnkuðu. Þcgar leið á ævina og kraftarnir þrutu. tók Páll sonur þeirra við búskapnum á Eyrarlandi. en þau fluttu með Hreini syni sínum að Grindum utar í dalnum. en þá jörð höfðu þeir fegðar keypt skömmu áður. Þar höfðu þau minna umleikis og hlakkaði til að eyða ellinni í rólegheitum. en þá brást heilsan og síðustu árin harðist þessi kona. sem alltaf hafði vcrið hraust. við slftandi veikindi. og var oft á sjúkrahúsi tímum saman, ýmist á Sauðárkróki eða Akureyri. Hún átti gott athvarf á Akuréyri, þar sem þrjú börn hennar eru búsett, en alltaf vildi hún heim í dalinn, og ef henni var fært, fór hún þangað, þar sem hún var drottning í ríki sínu. Ekki áttu öll börnin mín kost á að kynnast ömmu sinni náið. Því miður, þar sem langt var á milli, o'g varla fært fyrir heilsulausa manneskju að taka á móti stórum hóp, og hún vart ferðafær. f Isti sonur minn og nafni hcnnar. var hjá hcnni í sumardvöl. sem barn og var honum mikil ánægja þegar hann eignaðist fyrsta bílinn að skreppa norður í heimsókn til ömmu sinnar, þó ekki væri nema um helgi. Tengdamóðir mín andaðist á sunnudagsmorgni. sem oft hefur verið nefndur sigurdagur, og er hvíldardagurhinnar kristnu kirkju. Þannigvarallt hennar ferðalag hér í þessu lífi. Hver stund til ákveðinna hluta. hver dagur fyrirfram skipu- lagður. til hvíldar eða starfa. Efst í huga mínum er þakklæti til hennar fyrir þær allt of fáu stundir, sem við áttum saman. Manni hennar og afkomendum bi8ö ég blessun- ar. Karlotta Oskarsdóttir. Hannes Guðmundsson Framhald af bls. 8 sjón, heyrn og tunga Guðs mönnunum til bjargar. Þú átt að gerast maður hans. Flytja gleðiboðskap- inn um Guð, hvar sem þú megnar...“ Og þetta hefur sr. Hannes sjálfur staðfest með lífsstarfi sínu. Auðvitað hefur hann átt sínar erfiðu stundir eins og aðrir og við andstreymi að etja af ýmsu tagi. En óbugaður hefur hann staðið sinn vörð og þjónað söfnuðum sínum í trú og auðmýkt fyrir Guði. Á þessum tímamótum í lífi sr. Hannesar í Fellsmúla vil ég, fyrir mína hönd og annarra samstarfsmanna hans í Rangárvallaprófastsdæmi, flytja honum hugheilar árnaðaróskir og innilegar þakkir fyrir mikilvæg störf og drengilegan mynd- ugleika í sókn og vörn fyrir málstað kirkjunnar. Þakkir skulu honum einnig færðar fyrir gestrisni, alúð og höfðingsskap, sem við svo oft höfum fengið að njóta á fallegu og smekkvíslega búnu heimili hans. Þar er gott að koma og eiga stundir uppörvunar og hugarléttis, -því að sr. Hannesi er sú list lagin að gleðjast með glöðum og hryggjast með hryggum. Auk þess er hann samræðusnill- ingur og notalegur húmoristi. Á þessum sextugasta afmælisdegi sínum var sr. Hannes í samfélagi presta, kirkjukóra og kirkju- gesta úr prófastsdæminu og tók þátt í kvöldmessu í Hábæjarkirkju, hátíðarmessu á Héraðsvöku Rangæinga. Það var honum ljúft hlutskipti og verðugt á þessum heiðursdegi. Megi honum áfram gifta veitast og góðra manna hylli og blessun Guðs. Sváfnir Sveinbjamsrson íslendingaþættir

x

Íslendingaþættir Tímans

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Íslendingaþættir Tímans
https://timarit.is/publication/303

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.