Íslendingaþættir Tímans

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Íslendingaþættir Tímans - 26.04.1983, Qupperneq 3

Íslendingaþættir Tímans - 26.04.1983, Qupperneq 3
Torfi Þorkell Guðbrandsson skólastjóri, Finnbogastöðum sextugur ® í dag, 22. mars, er Torfi Guðbrandsson skólastjóri á Finnbogastöðum í Árnesheppi sex- tugur. - Á þeim tífnamótum í ævi hans langar mig að senda honum nokkur orð með þakklæti og árnaðaróskum og veit að fleiri mundu vilja það sama gera, því maðurinn er af mörgum þekktur og einungis að góðu. Torfi er fæddur að Heydalsá í Steingrímsfirði. Þar bjuggu foreldrar hans raunsnar og myndarbúi. Þau voru, Guðbrandur Björnsson frá Smáhömr- um í sömu sveit og Ragnheiður Guðmundsdóttir frá Ófeigsfirði. Torfi er afkomandi merkra af- reksmanna og dugnaðarforka í báðar ættir. Hann er ósvikinn Strandamaður að uppruna, enda kippir honum í kyn til þeirra um flest. Guðbrandur faðir hans var orðlagður áhuga- og afkastamaður til allra verka á sjó og landi, og móðir hans, Ragnheiður einstök ágætiskona og móðir og unni Torfi henni mikið. - Föðurfaðir hans, Björn á Srnáhömrum, var búhöldur og hreppstjóri í sinni sveit, og móðurfaðir hans, Guðmundur Péturs- son, óðalsbóndi, hákarlaformaður og kaupfélags- stjóri og forustumaður um öll framfaramál sinnar sveitar. Báðir voru þeir sæmdir riddarakrossi Fálkaorðunnar fyrir störf sín. - Og þegar lengra er rakin ætt hans kemur hún fljótt saman við Ásgeir Einarsson á Kollafjarðarnesi og síðar á Þingeyrum, alþingismann Strandamanna, með meiru. Af því, sem hér hefur stuttlega verið rakið, sést að kappgirni og dugnaður eru ríkir eðlisþættir í fari forfeðra hans. Þeir eru líka sterkir í eðlisfari Torfa og er ekki öllum hent að fylgja honum eftir, svo vel sé, þegar hugur hans beinist að ákveðnum verkefnum. Oft hefur mér fundist honum svipa einna helst til Ásgeirs á Þingeyrum. Hefur mér h'ka oft fundist að Torfi hefði einna mestar mætur á honum af fjarskyldum ættingjum sínum. Hefur hann kynnt sér störf þessa frænda síns vel og haldið ýmsu til haga þar um, og gjarnt er Torfa að vitna til hans um dugnað og forsjá. Sýnir það aðdáun hans á þessum frænda sínum. Einnig verður honum oft hugsað til langafa síns, Ásgeirs Sigurðssonar á Heydalsá, fyrir óeigingirni og fórnarlund, sem hann átti í ríkum mæli, og kunnast er af því er hann gaf lánd í túni sínu undir 1 fyrsta unglingaskólann í sveit á íslandi, Heydalsár- skólann, og hjó það því á þann hnút, sem staðið hafði í vegi fyrir því hugsjónamáli Strandamanna. Far er annar snar þáttur í eðli Torfa, það hafa margir reynt. Þau Guðbrandur og Ragnheiður eignuðust 10 hörn, 6 syni og 4 dætur. Tveir synir þeirra búa nú á Heydalsá. - Þegar Torfi var barn að aldri heimsótti hinn válegi gestur, berklaveikin, heimili hans. Hún var á þeim árum örlagavaldur margs ungs fólks og olli mörgum bæklun og aldurtila. Fjögur systkinanna á Heydalsá veiktust og báru sum þeirra þess aldrei bætur. Kom þessi vágestur e,nna harðast niður á Torfa. Hann var aðeins þriggja ára þegar hann varð að fara að heiman og leggjast inn á Sjúkrahús ísafjarðar. Þar varð hann að liggja í gifsi í þrjú ár í von um að unnt væri aðbjargabaki hans. Eftir þá löngu legu komst hann á ról, en fleira var veikt fyrir en bakið. Við smávegis hnjask brotnaði mjaðmarliður hans upp. Þar höfðu berklarnir einnig verið að verki. Tvö ár til viðbótar varð hann að liggja á sama sjúkrahúsi í gifsi í von um að einhverju yrði bjargað. Loks komst hann aftur á ról, markaður þessum sjúkdómi. Neðrihluti baksins var bæklað- ur og annar fóturinn styttri. Það segir sig sjálft hve hörð raun það hefur verið andiega heilbrigðu og tápmiklu barni að ganga gegnum, að þurfa að liggjaT-6 ár rúmfast, geta ekki hreyft sig úr stað og sjá næsta umhverfi sitt aðeins í spegilmynd gegnum glugga yfir rúmi sínu. Það þarf sterka sál til að komast óbrotinn úr slíkri raun, það tókst honum en mikil þrekraun hefut það verið. Þó þessi og þó lengri þrautatími hans berist í tal hefi ég aldrei heyrt hann mæla æðruorð um það. Aðspurður segir hann aðeins: „Ójú, erfitt var það“. -Þegar honum loks auðnaðist að komast heim töldu foreldrar hans hann úr Helju heimtan. Eftir öll þessi áföll var sýnt að við venjulega vinnu og líkamlegt erfiði gæti hann ekki valið sér lífsstarf, því þyrfti að sækja á önnur mið: - Þegar hann hafði áldur til fór hann í Reykjaskóla og að loknu námi þar fór hann í Gagnfræðaskóla ísafjarðar og lauk námi þar 1940. Að því námi loknu gerðist hann barnakennari í heimabyggð sinni og var kennari í 7 ár, í hreppunum sunnan Steingrímsfjarðar. Árið 1944 gekkst hann undir læknisaðgerð. Var fótur hans brotinn upp og lagfærður og við það lengdist fóturinn nokkuð. Varð það honum bót frá því sem verið hafði. - Farkennslan var aldrei eftirsóknarverð síst til frambúðar og allra síst hæfði hún honum cins og ástatt var fyrir honum. Því var enn lagt út á mámsbrautina og nú í Kennaraskólann í Reykja- ]vík, þar sem hann lauk námi með ágætum Ikennararéttindum 1951. Ásumrinvarhannheima :og vann flest verk sem fyrir komu. Eftir að tveir elstu bræður hans fórust stóð hann fyrir búi móður sinnar, með yngri bræðrum sínum, af miklum dugnaði. Sumarið 1955 vantaði skólastjóra að Barna- skóla Árneshrepps á Finnbogastöðum. Um þá stöðu sótti Torfi og fékk hana. Ekki hugsaði hann sér að vera hér til langframa, heldur aðeins að vera hér þennan eina vetur til tilbreytingar og að kynnast móðurfólki sínu og öðrum ættingjum, sem hann hafði ekki átt kost á að kynnast nema af frásögnum móðursinnar. En margt feröðruvísi en ætlað er. Þessi eins vetrar dvöl hefur nú lengst ^upp í að vera tæp 28 ár. Hér fann hann Iffs- <íörunaut sinn og eiginkonu, Aðalbjörgu Al- ‘bertsdóttur frá Bæ, sem hefur verið honum styrk stoð. Þau eiga 6 mannvænleg börn, 5 syni og eina dóttur, sem öllum kippir í kyn sitt með dugnað og mannkosti. Sum þeirra hafa þegar stofnað eigin heimili, en þau yngstu enn í skóla. Elsti sonurinn, Björn er sestur að búi á Melum, ættaróðali móðurfrænda föður síns. Hefur hann staðið í örri uppbyggingu á óðalinu og lætur hvergi deigan síga. Það er Torfa mjög að skapi og þar hefur hann átt mörg og góð handtök hin síðustu árin. Það var okkur Árneshreppsbúum mikið lán að fá Torfa hingað til þessa þýðingarmikla starfs og að svo fór um framvindu veru hans, sem raun er á orðin, og má segja að forsjónin hafi verið okkur þar vilholl. Slíkur maður sem hann er vandfundinn. Hann samlagaðist fljótt fólkinu hér og hefur lifað sig inn í líf þess og störf eins og hann væri hér borinn og bamfæddur. Hann hefur gengt skóla- stjórn og kennslu við almennar vinsældir nemenda sinna og aðstandenda þeirra. Hann er drengskap- armaður, sem lætur gott af sér leiða hvar sem hann má því viðkoma, orðvar og grandvar f öllum greinum, sannur mannbótamaður hjartahlýr. Hann er stórgreindur eins og hann á kyn til og áhugamaður um allt sem til umbóta horfir, vinnu áhugi hans, þar sem hann gengur að starfi, er svo mikill að fáir komast þar til jafns við hann þó heilir séu, og afköst hans einstök. - Hann hefur unnið ómetanlegt starf í fræðslu og uppeldismálum þeirra barna, sem undir höndum hans hafa verið. Hann sáir góðu sæði í þann akur, sem honum hefur verið fenginn til umsjár og ræktunar og það er gott að vita böm sín undir umsjá hans. Hann

x

Íslendingaþættir Tímans

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Íslendingaþættir Tímans
https://timarit.is/publication/303

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.