Íslendingaþættir Tímans - 27.07.1983, Síða 1
ÍSLENDINGAÞÆTHR
Miðvikudagur 27. júlí 1983 — 28. tbl. TÍMANS
Brynjólfur Gíslason,
gestgjafi í Tryggvaskála
Fæddur 19. mars 1903
Dáinn 21. júní 1983
Aðeins nokkrir mánuðir eru síðan við Brynjólf-
ur fylgdumst að um Tryggvaskála og skoðuðum
húsakynnin. Hann benti mér á staðina, þar sem
allt hafði verið áður í eldhúsinu, búrinu og
salnum. Glöggt kom í ljós hvflíkt snyrtimenni
Brynjólfur var og hversu umhugað honum hefur
verið að starfsaðstaða fólksins sem vann hjá
honum væri sem best og að gestum hans liði sem
best. Þetta ásamt góðmennsku og velvild þessa
yndislega manns hefur skapað honum þvílíkt orð,
að nafnið Brynjólfur í Tryggvaskála er þekkt um
allt land.
Brynjólfur tengdist fyrst fjölskyldu minni árið
1929, þegar hann gekk að eiga frænku mína
Kristínu Árnadóttur frá Látalæti á Landi, nú
Múla. Kristín hafði verið heimilismaður hjá afa
mínum og ömmu að Vatnsnesi í Grímsnesi. Mjög
náið var á milli ömmu minnar og Kristínar enda
standa fæðingarbæir þeirra Látalæti og Hvammur
svo til hlið við hlið undir Skarðsfjalli. Fyrir mig
skipti þessi vinskapur ekki litlu máli, því seinna
þegar móðir mín var að vandræðast við Kristínu
hvað króinn ætti nú að heita, þá kvað Kristín
auðvitað uppúr af sinni frægu röggsemi: „auðvitað
í höfuðið á honum afa sínum og Skálanum". Er
hægt að muna fólki minna en nafnið sitt.
Brynjólfur fæddist að Eystri-Meðalholtum í
Gaulverjabæjarhreppi, einn þrettán barna hjón-
anna Gísla Brynjólfssonar frá Sóleyjarbakka í
Hrunamannahrepp og Kristínar Jónsdóttur frá
Eystri-Meðalholtum. Árið 1912 fluttust foreldrar
hans að bænum Haugi í sömu sveit, þar sem
Brynjólfur ólst upp í stórmyndarlegum systkina-
hóp, en tólf systkinanna komust á legg.
Fimmtán ára gamall hóf Brynjólfur glímu við
Ægi konung. Þá byrjaði hann sjóróðra með
frænda sínum Páli á Baugsstöðum á áttæringi. Sú
mikla glíma átti eftir að standa í yfir tuttugu ár,
því leið atorkumikilla og hraustra maúna lá þá til
sjós, eins og svo oft áður í sögu þjóðarinnar við
ysta haf.
Fræknustu menn fóru á togara og eftir mat-
sveinsnám árið 1928 réði Brynjólfur sig árið 1930
sem matsvein á togarann Júpiter hjá vini sínum
Tryggva Ófeigssyni, en þeir Tryggvi höfðu áður
verið saman á togaranum Imperialist. Öll næstu
ár var Brynjólfur með Tryggva eða þangað til
Tryggvi ,fór í land að veita hinni glæsilegu útgerð
sinni og fiskvinnslu forstöðu. Við Júpiter tók þá
enginn annar en Bjarni Ingimarsson, sem ávallt
verður minnst sem eins af okkar bestu togaraskip-
stjórum og mestu sjómönnum. Þvílíkt traust bar
Bjarni til Brynjólfs, að þegar sá síðarnefndi var
að gera upp hug sinn, hvort hann ætti að kaupa
Tryggvaskála, þá lýsti Bjarni einfaldlega yfir fullri
ábyrgð á öllum greiðslum og skuldbindingum
matsveins síns. Kom þetta í skeyti utan af sjó og
þurfti þá ekki frekari vitnanna við.
Það var árið 1942 sem Brynjólfur og Kristín
keyptu Skálann eða nánar tiltekið 20. ágúst. Þá
hafði Júpiter verið í stanslausum siglingum með
ísfisk til Bretlands öll stríðsárin. Meðan Evrópa
háði sitt hjaðningarvíg, færði íslensk sjómanna-
stétt sveltandi bræðrum sínum og systrum mat.
Þetta var göfugt hlutverk, en hugurinn reikar til
vistarinnar um borð, þar sem sprengjuregnið
dundi umkring og banvænir kafbátar lónuðu í
djúpinu. íslenskir sjómenn og þjóðin öll færði
gífurlegar fórnir á þessum árum svo einungis
verður til jafnað við þær þjóðir sem verst urðu úti
í hildarleiknum. Með þvílíku afli hefur ekki á
stundum verið treyst á sjómannsins göfuga hjarta,
hraustu mund og blessað þrek.
Meðan Brynjólfur sigldi á Júpiter beið Kristín
heima með stækkandi barnahóp. Þær móðir mín
voru einkavinkonur enda nærfellt uppeldissystur.
Voru því mikil tengsl þeirra í millum. Afi var þá
látinn fyrir nokkru og rak amma Tryggvaskála
með dætrum sínum, sem voru að stofna sín eigin
heimili og var því sú ákvöðun tekin að selja
Tryggvaskála. Brynjólfur var útí Grímsey þegar
hann heyrði í fréttaskeytum að heiman, að nú
hefði Skálinn verið auglýstur til sölu.
Þau Kristín ráku svo Tryggvaskála í yfir þrjátíu
ár eða allt þar til þau seldu Selfósshrepp Skálann,
þann 1. apríl 1974. Allan þennan tíma nutu þau
frábærra vinsælda enda lengi til jafnað þvílíkir
öðlingar þau voru.
Ávallt var stór hópur manna, kostgangarar,
sem fylgdi skálanum líkt og heimilisfólk á bæjum
hér áður fyrr. Þetta fólk leit bókstaflega á
Tryggvaskála sem sitt eigið heimili. Á öllum
stórhátíðum jólum, páskum og tyllidögum fjöl-
skyldu Brynjólfs og Kristínar var þetta fólk
einfaldlega hluti af hópnum.
Þá er ógetið allra bílstjóranna, mælingarmann-
anna, línumannanna sem héldu til lengur eða
skemur í Tryggvaskála. Þeir munu víst margir
Vegagerðarbílstjórarnir, starfsmenn Pósts og
síma og Rafmagnsveitnanna, ásamt öllum áætlun-
arbílstjórunum sem komu í Skálann ýmist ör-
magna sjálfir eða með uppgefna farþega, sem
þáðu beina og fóru frískir. Allt þetta fólk, ásamt
öllum þeim sem þáðu venjulegan beina og góð-
gerðir hjá Brynjólfi og Kristínu minnast þeirra
með virðingu og þökk.
Svo þegar stormviðrin geisuðu og ekki var
hundi út sigandi spilaði Kristín við heimilisfólkið
og gesti og stjórnaði öllu með sinni léttu lund. Þá
tók Brynjólfur gjarnan í skák og var snjall á því
sviði, gerði m.a. jafntefli við sjálfan stórmeistar-
ann Friðrik Ólafsson.
Aðaláhúgamálið voru þó hestar, ræktun þeirra
og útreiðar. Brynjólfur átti afburðagott hrossakyn
sem hann ræktaði á Árbæ, þótt ávallt stæði
hesthús við Tryggvaskála, þar sem kumrað var við
jötu og brudd mél.
Yndisreit áttu þau hjón f Þrastarskógi við
Álftavatnið bjarta. Þar undi margur hnokkinn sér
hjá afa og ömmu frjáls í birkilaut undir hásumars-
himni.
Þau Brynjólfur og Kristín fluttu að Tryggvagötu
16, þegar þau seldu Tryggvaskála. Kristín dó þann
25. júlí 1974, en Brynjólfur hélt þar jafnan heimili
og stundaði lestur góðra bóka. Alltaf hefur þó
verið mannmargt í kringum hann, því öll barna-
börnin voru augasteinar hans. M.a. leit Kristín
dóttir yngstu dóttur hans reglulega til afa síns í
þrjú ár.
Þeim Kristínu og Brynjólfi varð þriggja barna
auðið, auk þess sem Brynjólfur ól upp dóttur
Kristínar, sem var elst. Er það Þórunn Málfríður
Jónsdóttir gjaldkeri, sem gift var Helga heitnum
Mogensen, mjólkurfræðingi. Þeirra börn eru: