Íslendingaþættir Tímans - 27.07.1983, Page 6
Sölmundur Ingibergur
Kárason
Fæddur 10. september 1946
Dáinn 21. júní 1983
Þegar nánir kunningjar manns hverfa af sjónar-
sviðinu, vekur það upp margar minningar og
umhugsun um hve lífið er fallvalt. Nú hefur þetta
gerst, þegar æskuvinur minn og jafnaldri Söl-
mundur Kárason burtkallaðist, en hann lést á
Borgarspítalanum að kvöldi 21. júní eftir 5
mánaða sjúkrahúslegu.
Ekki datt mér í hug að það væri síðasta
samverustundin okkar hér á Höfn, þegar Sölli,
eins og hann var alltaf nefndur, kom ásamt konu
sinni og börnum útí Ósland til að kveðja okkur
hjónin, en við vorum þar á tjörninni á skautum
með börnum okkar.
Sölli var að fara til Reykjavíkur í rannsókn
vegna lasleika, en hann bjóst ekki við að verða
marga daga. En margt fer öðruvísi en ætlað er.
Sölli var lagður inn á Borgarspítalann og átti
þaðan ekki afturkvæmt lifandi. Sjúkdómur hans
var alvarlegri en búist var við og þar háði hann
baráttu við hann af þrautseigju, hugprýði og
æðruleysi til hinstu stundar.
Mér verður iengi minnisstætt síðasta símtalið
sem ég átti við Sölla daginn fyrir andlát hans.
Hann var þá orðinn mjög þungt haldinn, en bað
mig að segja sér fréttir að heiman. Þegar hann
kvaddi, bað hann mig fyrir kæra kveðju til allra
heima.
Sölmundur var sonur hjónanna Önnu Alberts-
dóttur og Kára Halldórssonar. Þau eignuðust sex
börn, en nú eru aðeins tvær systur á lífi. Tvö börn
létust af slysförum á unga aldri og tippkominn
sonur lést þegar m/b Sigurfari fórst í Homafjarð-
arós. Þá fórst líka tengdasonur þeirra hjóna. Kári
andaðist fyrir nokkrum árum, en Anna er á lífi og
dvelst á Elli- og hjúkrunarheimilinu á Höfn.
Sölli ólst upp í foreldrahúsum hér á Höfn og
áttum við báðir heima við Höfðaveginn. Leik-
völlur okkar var fjaran og sandbakkinn og á ég
margar góðar minningar frá bernsku og unglings-
árum okkar. Oft var glens og gaman hjá okkur
krökkunum sem vorum nánast sem ein fjölskylda
á þeim árum.
Leiðir okkar Sölla hafa legið saman gegn um árin
bæði í leik og hinum daglegu störfum fullorðinsár-
Olafsson,
Magnús
frá Miklabæ
Fæddur 7. júní 1930
Dáinn 25. júní 1983
Vér skiljum það eitt, þú ert farinn oss frá.
Þigfaðmar nú ættjörðin blíða.
Með trega og söknuði minnast þess má,
hve mannsœvin stutt er að líða.
(Ók. höfundur.)
Mér finnst eins og ég geti ekki látið hjá líða, að
minnast frænda míns, Magnúsar Ólafssonar frá
Miklabæ með nokkrum kveðjuorðum, svo snögg-
lega var hann burtu kallaður frá okkur samferða-
mönnum þessa lífs.
6
Mig setti hljóðan morguninn 25. júní er mér var
sagt að hann Maggi frændi væri dáinn, en þann
dag andaðist hann á Fjórðungssjúkrahúsinu á
Akureyri, eftir aðeins þriggja vikna legu.
Þá getum við tekið undir með skáldinu, sem
sagði:
Fótmál dauðans fljótt er stigið
fram að myrkum grafarreit.
Mitt er hold til moldar hnigið
máskefyrr en afég veit.
Magnús var fæddur á Sauðárkróki 7. dag
júnímánaðar 1930. Foreldrar hans voru Ólafur
Gunnarsson og Guðný Stefánsdóttir, bæði komin
af stórum skagfirskum ættum. Ólafur var einn af
anna. Snemma fór Sölli á sjó.vann alltaf síðan við
sjómannastörf.
Árið 1967 ákváðum við að fara í Stýrimanna-
skólann og útskrifuðumst þaðan vorið 1969. Og
við höfðum meira upp úr þessari skólavist í
höfuðstaðnum heldur en námið eitt, því að heim
komum við með okkar ágætu lífsförunauta.
Kona hans er Ásgerður Haraldsdóttir frá
Reykjavík og hófu þau búskap hér á Höfn,
haustið 1970. Hann stundaði sjóinn sem stýrimað-
ur og síðar skipstjóri og nú síðustu árin á Akurey
s.f. og vegnaði honum alltaf vel.
Sölli og Ása byggðu sér fallegt og vistlegt
heimili hér við Kirkjubrautina. Börn þeirra eru
tvö, Kári Haraldur, 13 ára og Anna Vilborg, 10
ára, sem nú sjá á eftir sínum elskulega föður í
blóma lífsins.
Við hjónin horfum með þakklæti aftur til þeirra
samverustunda sem við áttum með Sölla, Ásu og
börnum þeirra og vonumst til að geta varðveitt
þær minningar með þeim og átt góðar samveru-
stundir með Ásu og börnunum í framtíðinni, þó
Guð hafi burtkalíað þeirra elskulega eiginmann
og föður. Nú vitum við af Sölla í faðmi burtkall-
aðra systkina, föður og mágs, og megi Guð blessa
þau öll og varðveita.
Ég er þakklátur þeim sem styttu Sölla stundir
er hann lá á sjúkrahúsinu. Það var honum mikil
ánægja og uppörvun.
Að lokum votta ég Ásu, Kára, Önnu Boggu,
móður Sölmundar, systrum og öðrum vanda-
mönnum samúð okkar hjónanna og megi Guð
blessa þau og varðveita um ókomin ár.
Kristinn.
13 börnum þeirra hjóna, Gunnars Ólafssonar og
Sigurlaugar Magnúsdóttur frá Keflavík, og
Guðný eitt af 10 bömum þeirra hjónanna Stefáns
íslendingaþættir