Íslendingaþættir Tímans - 27.07.1983, Side 7
EE
Sigurður Guðgeirsson,
prentari
Fæddur 30. maí 1926
Dáinn 8. júlí 1983
Kveðja frá Landssambandi Vörubifreiðastjóra.
Það kemur alltaf jafn mikið á óvart er menn eru
skyndilega kallaðir brott úr dagsins önn. Þannig
var það með Sigurð Guðgeirsson, prentara sem
verður jarðsettur í dag. Hann var heilsuhraustur
Bjarnasonar og Aðalbjargar Magnúsdóttur er
bjuggu að Halldórsstöðum.
Magnús ólst svo upp hjá föður sínum, sem
stofnaði bú að Miklabæ í Óslandshlíð með
Elísabetu Halldórsdóttur, og reyndist hún honum
ætíð sem besta móðir. Þau Ólafur og Elísabet
eignuðust 3 börn, Halldór Þorleif, er býr að
Miklabæ, Ingibjörgu húsfreyju að Krossi og
Sigurlaugu sem starfað hefur sem ráðskona við
barnaskólann að Hólum. Meðþessum hálfsystkin-
um sínum ólst Magnús upp, þar til hann fór að
vinna fyrir sér, eins og lífið heimtar af okkur
öllum.
Hugur hans leitaði snemma að sjónum, og var
hann mikið með Stefáni frænda sínum, eftir að
hann fór að gera út á sínum eigin bát. Magnús var
veiðimaður af lífi og sál, sama hvort það var á
sjónum eða í landi, enda miklir veiðimenn í
báðum hans ættum; í föðurættina Jón Ósmann,
bróðir ömmu hans, Sigurlaugar, sem var þekktur
um allan Skagafjörð og víðar, sem afburða skytta
og veiðimaður, og í móðurætt Borgar Bjarni, afi
Guðnýjar, sem var annáluð skytta, enda kunni
Magnús vel að fara með byssu, og margur
málsverðurinn var búinn að falla fyrir sigtinu hans.
Magnús var lífsglaður maður, og átti létt með
að blanda geði með vinum og kunningjum, og
aldrei man ég eftir að ég hitti hans öðruvísi en
glaðan og hressan, þótt stundum blési á móti í
lífsins ólgusjó.
Hann bjó hér á Sauðárkróki að Víðigrund 4, og
átti þar litla og huggulega íbúð. Síðustu árin vann
hann við löndun úr togurum Útgerðarfélags
Skagfirðinga, og sýndu vinnufélagar hans þar
honum þá virðingu að bera kistu hans úr kirkju.
Magnús var vinmargur maður, sem og útför
hans bar vott um. Hann var jarðsunginn frá
Sauðárkrókskirkju laugardaginn 2. júlí að við-
stöddu miklu fjölmenni. Jarðsettur var hann í
Viðvík, en þar hvflir faðir hans, Ólafur.
Ég vil með þessum fáu orðum þakka hinum
látna allar þær ánægjustundir, sem ég átti með
honum, en þær voru of fáar, þegar kallið kemur
svo óvænt, sem það gerði nú.
Far þú í fríði, friður Guðs þig blessi
bafðu þökk fyrir allt og allt.
Þinn frændi
Haukur Haraldsson
íslendingaþættir
þar til fyrir nokkrum vikum að hann kenndi sér
meins.
Við sem þekktum Sigurð vel vissum að hann
gekk ekki heill til skógar síðustu vikurnar en
áttum bágt með að trúa því að stundin væri svo
skammt undan. Sigurður var alla tíð mikill
félagsmálamaður og hlóðust á hann mörg trúnað-
arstörf sem hann leysti af hendi af sérstakri
vandvirkni sem honum var lagin.
Við hjá Landssambandi Vörubifreiðastjóra sem
höfum mörg undanfarin ár notið starfskrafta
Sigurðar Guðgeirssonar eigum honum mikið að
þakka fyrir góða viðkynningu og gott starf. Hann
var mikið prúðmenni og slíkur maður er vand-
fundinn.
Með þessum fáu orðum viljum við kveðja
Sigurð Guðgeirsson.
Eiginkonu hans, sonum, foreldrum og systkin-
um sendum við innilegar samúðarkveðjur.
Blessuð sé minning Sigurðar Guðgeirssonar.
t
Með nokkrum kveðjuorðum vil ég þakka
áratuga samstarf og samvinnu í félagsmálastarfi
með Sigurði Guðgeirs^yni. Sigurður hafði stað-
góða þekkingu á félagsmálum almennt, en þó
einkum á málefnum verkalýðshreyfingarinnar.
Mér var það fljótt ljóst hvaða áhugamál Sigurður
helgaði öðru fremur krafta sína. Það fór ekki fram
hjá neinum sem til þekktu að það voru ætíð þeir
sem minnst máttu sín, þeir sem berskjaldaðir
stóðu í lífsbaráttunni og þar af leiðandi áttu allt
undir aðstoð manna sem höfðu til að bera
hjálpsemi og þekkingu.
Höfuðeinkenni Sigurðar Guðgeirssonar hvar
sem hann fór og við hvaða störf hann vann, var
háttvísi og meðfædd prúðmennska. Þessir eðlis-
kostir eru dýrmætir fyrir hvern félagsmálamann,
og hljóta að gera honum starfið auðveldara, en
því fylgir aftur að fang slíkra manna yfirfyllist af
verkefnum. Þannig varð raunin á með Sigurð..
Innan fjölmennrar félagsmálahreyfingar eins
og Sigurður átti sinn aðalstarfsvettvang, hlýtur af
og til að koma upp álitamál sem niðurstöður þurfa
að fást í. Mér er kunnugt að Sigurður var æði oft
fenginn til að vinna að lausn slíkra viðfangsefna,
og mér hefur skilist að það hafi verið farsæll
árangur, enda fór saman haldgóð þekking á
hinum óskyldustu málefnum ásamt góðri greind.
Persónulega þakka ég Sigurði áratuga samstarf
að málefnum Landssambands vörubifreiðastjóra.
Ég og kona mín vottum fjölskyldu hans dýpstu
samúð.
E.Ö.
Pétur Pétursson
áttræður
Framhald af bls. 8
margra ára skeið, þeir: Gunnar bifreiðastjóri,
giftur Sigríði Sigurðardóttur og Oddur bæjar-
verkstjóri, giftur Magdalenu Sigurðardóttur og
dóttirin Unnur gift Hjálmari Torfasyni gullsmið
en þau eru búsett í Reykjavík.
Pétur er að eðlisfari mikill félagsmálamaður
einarður og fylginn sér. Vinnu sinnar vegna gekk
hann snemma í Verkalýðsfélagið Baldur á ísafirði
þar sem hann var í forustusveit um mörg ár m.a. í
stjórn í um 20 ár og þar af formaður í 5 ár. Af
félagsmálastarfi sínu mun þó Péturs ekki hvað síst
minnst vegna þátttöku hans I þágu íþróttafélag-
anna og þá einkum í sambandi við skíðaíþróttina.
Þegar ísfirðingar hófu að iðka skíðaíþróttir uppúr
1930 varð Pétur strax virkur þátttakandi og náði
fljótt góðum tökum á skíðagöngu og má fullyrða
að það eru ekki margir sem hafa tekið þátt í fleiri
keppnum en hann um dagana.
Pétur starfaði lengst af í íþrótta- og málfunda-.
félaginu Ármann í Skutulsfirði og var í stjórn þess
um 25 ára skeið og formaður um tíma. En hann
var einnig I stjórn Skíðaráðs ísafjarðar og
formaður þess í tvö ár.
Ég minnist Péturs á Grænagarði frá þeim árum
sem ég var í námunda við skíðaíþróttir á Isafirði
á hann mátti ávallt reiða sig ef einhvers þurfti
með. Þær eru ekki fáar svigstengurnar sem hann
Pétur hefur borið upp á Seljalandsdal um dagana.
Að rifja upp ýmis umsvif skíðamanna á ísafirði
frá þessum árum væri of langt í einni afmælis-
kveðju og þó ekki væri nema heimferðin frá
landsmóti á Akureyri 1948 þegar öll tiltæk farar-
tæki í lofti á landi og sjó voru notuð, þá kom sér
vel að hafa með í förinni eins vaskan og ósérhlífinn
dreng og Pétur á Grænagarði.
Með þessum línum sendi ég Pétri og Bertu
mínar bestu óskir við þessi tímamót og þakkir
fyrir ánægjulega viðkynningu og margan kaffisopa
þegar komið var af Dalnum eftir erfiðan dag.
Guttormur Sigurbjörnsson
7