Íslendingaþættir Tímans - 10.08.1983, Blaðsíða 7
Sigurður
Árnason
Framhald af bls. 8
cnginn hafði kannast við að vera faðir drcngsins.
Vorið sem þau mæðginin voru á Ormarsstöðum
var börnum húsráðenda gefið sitt lambið hverju.
cn Sigurður litli fékk ekkert. Sunnlensk hjón voru
þarna í vinnumennsku, fundu þau til mcð litla
drengnum. sem ekkert lambið fckk. bættu þau úr
því og gáfu honum lamb, scm að sjált'sögðu gladdi
drenginn mikið, voru þetta fyrstu kvnni Sigurðar
af Sunnlcndingum. Frá Ormarsstöðum flutti Guð-
björg mcö drenginn að Fjallsseli til Einars hrepps-
stjóra og Kristrúnar konu hans. Einar var mcrkis-
bóndi. hafði vcrið á Möðruvallaskóla. völdust
nemcndur þaðan gjarnan öðrum fremur til for-
vstustarfa í sínum sveitarfélögum. Fært var' frá í
sveitum um þessar mundir og sat Sigurður yfir
kvíaám. einnig sat unglingsstúlka yfir kvíaám á
næsta bæ. slógu þau gjarnan hópunum saman.
gátu þá spjallað saman. farið í leiki og stytti það
þcim mjög stundirnar í hjásetunni. Eftir veruna í
Fjallsseli fluttu þau mæðginin að Hafrafelli í sömu
sveit. Þaðan eftir nokkur ár að Hciðarseli í
Tunguhreppi til Gunnlaugs Oddsen. sem þar bjó.
giftust þati Gunnlaugur og Guðbjörg nokkrum
árum síðar og bjuggu allan sinn búskap í
Hciðarscli. Skömmu eftir fcrmingu fluttist Sigurð-
ur að Rangá til Björns Hallssonar hreppsstjóra og
alþingismanns. var þar jafnan mannmargt nicnn-
ingarheimili og dvaldist Sigurður þar um árabil. Á
þessum árum vaknaði áhugi Sigurðar til nokkurrar
skólagöngu enda hinn mesti lestrarhcstur eins
og stundum var sagt um unglinga. Á Eiðum var
nýlega stofnaður Alþýðuskóli. þangað fór Sigurö-
ur, dvaldist þar við nám í 3 vetur, lauk gagnf-
ræðaprófi. Sigurður var vinsæll af skólasvstkinúm
sínum, ekki síst stúlkunum. skórnir vildu bila,
engin skóverkstæði. var Sigurður sá eini innan
skólans sem helst gat leyst úr vandanum. A Eiðurn
var mikið stunduð knattspyrna á þessum árum. lét
Sigurður sig aldrei vanta þar ef kostur var og
harðskevttur bæði í sókn og vörn. Árið 1925 var
stofnað ungmennafélag í Tunguhreppi. Gckk
Sigurður strax í félagið og var þar mjög virkur
stjórnmálamaður. Tómas hefur ekki legið á liði
sínu á miklum uppbyggingartímum sem hafa
verið í landinu síðasta áratuginn. Hann hefur ætíð
haft mikinn áhuga á uppbyggingu atvinnulífsins út
um landsbyggðina og beitt sér á því sviði,
Árangurinn blasir við hvarvetna.
Nú tíðkast að kasta steini að stjórnmála-
mönnum og hefur Tómas Árnason ekki farið
varhluta af slíku. Eðli stjórnmálastarfs erslíkt að
það gustar um þá sem á tindinum eru á þeim
vettvangi. í þeim næðingum er það mest um vert
að eiga gott heimili að hverfa að. Tómas er
kvæntur Þóru Eiríksdóttur frá Norðfirði, ágætis-
konu sem hefur verið honum stoð og stytta í starfi
hans. Þau eiga gott heimili að Hraunbraut 20 í
Kópavogi og ég sendi þangað kveðju mína og
minnar fjölskyldu til þerra beggja með þakklæti
fvrir það sem liðið er, og bestu framtíðaróskir.
Jón Kristjánsson
íslendingaþættir
félagi og í stjórn þess. Félagið hélt fundi sina og
samkomur á Kirkjubæ fyrir einstaka greiðvirkni
prestshjónanna þar, séra Sigurjóns og frú Önnu
Sveinsdóttur, var oft margt um manninn á
Kirkjubæ í þá daga.
Hugkvæmur og úrræðagóður var Sigurður og
óragur að ráðast að vandanum, kom þaö sér oft
vel. I þá daga var ekki rafmagn í sveitum.
eldiviður var móð ogsauðatað. Vildu eldavélarnar
oft reykja meira og minna öllum til ama. Oft gat
Sigurður bætt úr þeim vanda, t.d. hækkað
strompinn. minnkað eldholið í eldavélunum með
því að steypa í það. notaði til þess salt og ösku sem
hann hrærði saman ef ckki var til scmcnt á
bæjunum. reyndist þetta furöu vcl og fékk Sigurð-
ur miklar þakkir húsfreyjanna fyrir. því borgun
tók hann ekki fyrir svona smá greiða. scm hann
kallaði svo. Haustið 1929 fór Sigurður norður til
Akurevrar og vann þar um veturinn.hjá Kaupfé-
lagi Evfirðinga við miðstöðvarlagnir o.fl. Vorið
eftir fór Sigurður austur í Þingeyjarsýslur og vann
þar um sumarið við húsbyggingar og hcyskap.
Eftir dvöl stna í Þingeyjarsýslu fór Sigurður
fyrripart vetrar aftur austur á Hérað á skíðum
ásamt félaga sínum af héraði.
Gcrðist það helst í fcrð þcirra félaga, að þeir
komu að Eiríksstöðum á efra Jökuldal að kvöld-
lagi.var þar fyrir margt gesta- og var slegið upp
balli og dansað frarn undir morgun að menn fóru
hcim til vcrka sinna. Gekk svo til þrjú kvöld í röð.
að fólk af næstu hæjum kom saman að Eiríks-
stöðum að kvöldi en fóru til verka sinna að
morgni. enda Jökuldælir gleöi mcnn. Næstu ár
bjó Sigurður áfram í Hciðarscli. en stundaöi
jafnframt húsbyggingar og sntíðar af ýmsu tagi.
þrátt fvrir lítinn tækja kost. Verslanir engar fyrr
cn niðri á fjörðum og lítiö úrval tækja. Árið 193(1
fór Siguröur á Alþingishátíðina á Þingvöllum
ásamt flcirum af Héraði. Farið var með Brúarfossi
frá Reyðarfirði. Hvergi var pláss fyrir ferðalang-
ana nema í lestinni t flatsæng á gólfinu. Gekk á
ýmsu. margir sjóvcikir. urðu mcnn fcgnir landtök-
unni þegar til borgarinnar kom. Margir höfðu
aldrei komiö þangað áður. þurfti því margt að
skoða. Mcsta æfintýrið fvrir sveitafólkið var að
koma á Þingvclli. þennan sögufrægasta stað
landsins. Ganga niður Almannagjá og sjá Vcllina
þakta tjöldum líkt og áður hafði verið á Alþingi
hinu forna. Að lokinni Alþingishátíðinni varð
Siguröur eftir fvrir sunnan, gerðist kaupamaður á
Korpúlfsstöðum og var þar um sumarið. Um
haustið kom hann svo aftur austur á Hérað og
scttist að við búskapinn í Heiðarseli, hélt þóáfram
\ iö lagfæringar og smíðar á hinum ýmsu stöðum
á Héraði. enda var nú orðinn vel búinn að
tækjum. Sigurður var kosinn í ýmsar nefndir í
Tunguhreppi. m.a. í hreppsnefnd og fræðslu-
nefnd. í stjórnmálum hefur Sigurður ávallt verið
í róttækari arminum. Sumarið 1933 fór hann í
framhoö til Alþingiskosninga í Norður-Múlasýslu
fyrir Kommúnistaflokkinn með sr. Gunnari Bene-
diktssyni og árið 1934 með Áka Jakobssyni. sem
rcyndar kom aldrei til fundahalda og varð því
Siguröur aö standa einn og óstuddur fyrir málstað
flokks síns. Enn fór Sigurður í framboð fyrir flokk
sinn og þá með Jóhannesi Stefánssyni. Ekki náði
Sigurður sæti á Alþingi en hefur ávallt verið
tryggur sínum skoðunum í stjórnmálum. Árið
1937 fer Sigurður suður á Selfoss og dvelur þar eitt
ár við skógerö úr gúmmíslöngum og er liann af
mörgum talinn fyrsti iðnrekandi á þeim stað. Á
þessu ári kynntist hann konuefpi sínu. Önnu
Guðjónsdóttur frá Brckkum í Hvollircppi, hinni
t,,ctll konu. Vorið 1938 flytja þau hjónin
ausíuf u /ÍFrað, að Heiarseli, byrja þar búskap
og búa þar til haustsins 1947. Þá flytjast þau til
Hveragerðis, kaupa þar hús. sem þurfti mikillar
lagfæringar við, sem Sigurður að sjálfsögðu ann-
aðist um sjálfur, cinnig byggði hann sér gróður-
hús. Frá Heiðarseli fluttist með þcim dóttir þcirra
Guðbjörg Jóna 4 ára og Björgvin Heiðar 6. ára,
scm þau höfðu tekið til fósturs þá ungbarn.
Um þessar mundir kotnu til Hveragerðis þrír
læknar frá Reykjavík í þcim tilgangi rð setja á
stofn leirböð í Hveragerði. Var Siguröi falið að
smíða skála til þcssarar starfsemi, sem var alger
nýung hér á landi. Var Sigurði falið að annast unt
sjúklinga í þcssum leirböðum sem hann og gerði.
Einn mann hafði Sigurður sér til aðstoðar fyrsta
sumarið, en var síðan einn við þessa starfsemi
næstu fimm sumur. Töldu margir sig hafa fcngið
þarna mikinn bata og jafnvcl fulla hcilsu. Jafn-
framt gróðurhúsaræktinni hefur Sigurður stundað
smíðar og allskonar lagfæringar fyrir fólk líkt og
áður á Héraði. ennfremur tekið mikinn þátt í
félagsmálum. Árið 1950varhannkosinn formaður
verkalýðsfélags Hveragerðis og Þórlákshafnar og
var það samfíeytt í 20 ár. Árið 1963 var hann
sendur til Rússlands á vegum Alþýðusambands
(sla nds ásamt Þorstcini Jónssyni frá Hólmavík.
Var þetta hin fróðlegasta ferð fyrir þá félaga, enda
talaði lciðsögumaður þeirra íslensku, hafði verið
hér í Háskóla.
Nú er fcrðum Sigurðar að mcstu lokið enda
aldurinn orðinn hár, situr hann um kyrrt á
friðarstóli nær blindur, umvafinn ástríki og um-
hyggju konu sinnarscm les fyrir hann hvcrjastund
er hún má því við koma, td. Þjóðviljann hornanna
á milli. einnig býr dóttir þeirra og fjölskylda í
nágrcnninu og styttir honum stundirnar með
heimsóknum. Er honum hin mcsta dægrastytting
að þegar gesti ber að garði, er þá margt spjallað
því minnið cr gott og áhuginn hinn sami að fylgjast
meö því hcista sem gerist innan lands og utan. í
Hvcragerði sem og á Hcraði hcfur Sigurður rcynst
hinn hjálpsami og greiðvikni maður, sem vildi
hvers manns vanda leysa. cnda vinsæll, scm sjá
mátti á áttræðisafmæli hans.
Sjálfur þakka ég honum langa og góða samfylgd
og vináttu.
Stufán Pétursson
Peir sem
skrifa
minningar-
eða afmælis-
greinar
í íslendinga-
þætti, eru
vinsamlegast
beðnir um
að skila
vélrituðum
handritum
7