Heimilistíminn - 26.06.1975, Síða 4

Heimilistíminn - 26.06.1975, Síða 4
fyrri hluti Utan alfaravegar: ~ í landi hellisbúanna ViB erum á leið út úr Istambul og áður en viö yfirgefum borgina förum við yfir skil tveggja heimshluta. Það gerist, þegar ek- iö er yfir hina tæplega kiiometers löngu og glæsilegu Bosporusbrú, sem opnuð var fyrir skömmu. Hún er fyrsta brúin milli Evrópu og Asiu. Með mikilli fyrirhöfn tókst okkur að hafa uppi á bilaleigubfl i Istambul. Þetta er stór, svartur Chevrolet, sem má muna fifil sinn fegri. Hjá bilaleigunni var þvi haldið fram, að þetta væri einkabill for- stjórans og að hann vildi ógjarnan láta aðra en bilstjóra sinn aka honum. Þess vegna fengum við Namik Zorlu með i kaupbæti. Hann er ungur, en fljótlega kom i ljós, að hann er einkar lipur og dug- legur undir stýri. Þvi miður talar hann aðeins tyrknesku og gat þess vegna ekki túlkað fyrir okkur. Þess vegna bættist 01- cayto Eryuksel i hópinn. Hann er verk- fræðistúdent, talar góða ensku og er vel kunnugur i fjarlægari hluta Tyrklands, sem er áfangastaður okkar. Á framrúðuna er limdur miði, sem á er skrifað orðið Inshallah með fallegri, krók- óttri skrift. Það þýðir Guð vill og er einn af algengustu orðatiltækjum Araba. Vissulega eru þetta góð orð að hafa fyrir augum, þegar ekið er um land, þar sem umferðarslys eru algengust i heiminum. Jafnvel hér á þessari svokölluðu hrað- braut rekumst við á asna á gangi, kýr og fjárhópa, sem skyndilega bregða sér yfir brautina og þegar við erum komin hærra upp i hliðina, verður Namik ótal sinnum að snögghemla vegna flutningabila, sem koma þjótandi úr beygjunum, oft á miðri brautinni og án minnstu tillitssemi við umferðina á móti. AIls staðar i Tyrklandi er hámarksöku- hraðinn 90 km/klst., en ekki nokkur lif- andi sála tekur það alvarlega. Við ökum stöðugt á 130 km hraða og stöku sinnum fara bilar fram úr okkur. Sjálf ökumvið fram úr stórum, ameriskum fólksbil, sem inniheldur að minnsta kosti eina ef ekki tvær fjölskyldur. Billinn er skreyttur blómum og pappirsræmum og við fram- rúðuna er komið fyrir skrautklæddri brúðu, sem er svo stór, að hún skyggir næstum á útsýnið fyrir bilstjóranum. Langt inni í Asíuhluta Tyrklands er Kappadokia, háslétta þar sem fólk hefur öldum saman búið í neðanjarðarbæjum. í þessari grein segir Johannes Christiansen frá uppruna hellisbúskaparins. í næsta blaði segir frá hellisbúunum, og lífi þeirra nú. — Brúðhjón, segir Olcayto, og við erum ekki fyrr komin framhjá þeim, en billinn okkar fer að haga sér eitthvað undarlega. Ég held strax, að eitthvað hafi bilað I stýrisútbúnaðinum, en þá sé ég að Namik, brosandi út að eyrum, er bara að leika sér að aka i krókum hliðanna á milli á vegin- um, jafnframt þvi að hann eykur hraðann og snögghemlar svo skyndilega. ískur I hjólbörðum heyrist fyrir aftan, þvi uppátæki Namiks hefur neytt bilstjóra hinsbilsins til að snögghemla lika. Billinn rennur út á hlið og um leið geysist annar bill framhjá, hægra megin við okkur, utan vegarins! Namik opnar dyrnar og ætlar að stökkva út, en Olcayto segir nokkur orö

x

Heimilistíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilistíminn
https://timarit.is/publication/304

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.