Heimilistíminn - 26.06.1975, Qupperneq 12
PILOT
ÞAÐ byrjaði allt saman i Edinborg,
þar sem tónlist hefur alltaf verið I há
vegum höfð. David Paton og Bill Lyall
hittust i Craighall-stúdióinu, þar sem
•Bill starfaði sem tæknimaður. Þeir fé-
lagar höfðu samiö nokkur lög saman
og nú ætluðu þeir að taka þau upp á
band.
Til aö gera þetta svolitið tilþrifa-
meira fengu þeir trommuleikarann
Stuart Tosh með sér og þegar fyrsta
plata þeirra „Just A Smile” og ,,Dont
speak Loudly” flaug þegar upp á vin-
sældalistann skozka, ákváðu þeir að
halda áfram saman.
En hvað átti svo hljómsveitin að
heita? Þeir byrjuðu á upphafststöfun-
um Ur Paton, Lyall og Tosh — PLT —
og til að auðvelda svolitið á þessu
framburðinn bættu þeir I og O inn i og
þar með var PILOT orðin til.
Næsta plata var „Magic” og „Just
Let Me Be” og hún fór einnig beint inn
á vinsældalistann. Eftir það kom I-ið i
nafninu til sögunnar, Ian Bairnson,
gitarleikari. Hann var fenginn til að
fylla Ut i eyðu, sem þeim félögum
fannst vera i tónlist sinni og hann var
meira en fús til að fastráða sig hjá
Pilot, þegar þeir fóru i 25 daga hljóm-
leikaferðalag um áramótin með
Sparks.
Nú er komin LP-plata með þvi
skemmtilega nafni „Form the Album
Of The Same Name” Pilot byrjuðu vel
og allt Utlit er fyrir að velgengni þess-
ara skozku pilta haldi áfram.
Stuart Tosh, trommuleikarinn er
fæddur 26. september 1951 i Aberdeen.
Hann stundaði áður húsgagnasölu, en
hefur kennt sér tónlistina sjálfur.
David Paton, bassagitaristi er fædd-
ur 29. október 1951 i Edinborg. Hann er
læröur vélvirki, en starfar lika sem
mjólkurpóstur og rafvirki.
Ian Baimson, sólógitar er fæddur 3.
ágúst 1953 á Shetlandseyjum. Hann
hefur spilað siðan hann var sex ára,
þvi það var ekkert annað að gera á
eyjunum.
Bill Lyall er fæddur 26. mars 1953 I
Edinborg. Hann er hljóðtæknimaður
hjá Craighall og hefur kennt sér tón-
listina að mestu sjálfur. Hann leikur á
pianó, flaugu og stjórnar synthesizer
hjá Pilot.
12