Heimilistíminn - 26.06.1975, Síða 26
litið rólegar og láta bara gera
einn hlut i einu, skal ég reyna
að fá Asanornina — eða tröllið,
til að yfirgefa höUina. En fyrst
verð ég að ljúka við að bursta
þessa skó og svo verður annar
og fægja handföngin og sá
þriðji skeifur hestanna.
Prinsessan lofaði þvi. Hún
var orðin svo hrædd um að
lenda i klóm illþýðisins, að
hún hjálpaði meira að segja
skóburstaranum að fægja sið-
asta skóparið.
— Jæja, nú sjáum við til,
sagði hann alvarlegur. — Ég
held, að Asi sé þarna inni i
kústaskápnum og nú skal
hann út.
— ó i guðsbænum farðu var-
lega, sagði hún og lagði hönd-
ina á handlegg hans. Hann
brosti hetjulega og gekk að
dyrunum. Andartak stóð hann
kyrr, en þreif svo upp hurðina
og hvarf inn. Á næsta andar-
taki heyrðust dómadags ólæti
út úr skápnum, það glumdi i
fötum og kústum, það heyrð-
ust óp og óhljóð og loks þyrlað-
ist rykmökkur út um dyrnar
og siðan kom skóburstarinn i
ljós.
— Það var rétt með
naumindum að ég gat komið
þessu hyski út, sagði hann og
stundi þungan af erfiðinu. —
Sástu ekki rykmökkinn sem
var á hæla honum? En nú
erum við sem betur fer frjáls
og getum tekið þvi rólega.
— Ó, þakka þér fyrir, hvisl-
aði prinsessan og áður en hann
vissi af, smellti hún kossi á
vanga hans.
Upp frá þessu varð allt
sallarólegt i höllinni, allir gátu
gert það sem þeir áttu að gera
og prinsessan sjálf var róleg-
ust og bezt af öllum. Kóngur
og drottning urðu frá sér num-
in af gleði og veltu fyrir sér
hver ætti nú að fá hálft kóngs-
rikið.
26
— Það verður að vera skó-
burstarinn, sagði prinsessan.
— Hvað þá? Skóburstarinn?
hrópaði konungur.
— Já, svaraði hún. — Það er
hann sem hafði nægan kjark
til að fleygja Asa-illþýðinu út
úr höllinni. ó, hann var svo
hugrakkur.
— Jæja, jæja, sagði konung-
ur. — Já, þá verður hann vist
að fá hálft kóngsrikið. En
getur hann stjórnað því?
Prinsessan brosti. — Ef ég
verð konan hans, þá gengur
það ágætlega, svaraði hún.
Það var rétt hjá henni, þvi
nú var hún ekki Lafmóð prins-
essa lengur, sem þurfti að láta
gera alla hluti á sama tíma.
Þess vegna var það að allir
höfðu góðan tima til að undir-
búa brúðkaupið, sem haldið
var skömmu seinna.
1. Hvaöhafa margir forsetar Banda-
rikjanna veriö myrtir?
2. Tvö mikil tónskáid fæddust 1685.
3. Hvaö er fjóröa vfddin?
4. 1 hvaöa riki er Accra höfuöborg?
5. Hefur simpansinn skott?
6. Hvað var sérkennilegt viö Utlit
Mídasar konungs?
7. Hvaö stóö hundraö ára stríðið
lengi?
8. Eftir hvern cr sagan „Sivagó
læknir”?
9. Hvar hafa páfar haft aðsetur ann-
ars staöar en i Kóm?
10. Hvað eru margir deplar á
tcningi?
Hugsaöu þig vandlega um — en svörin
er aö finna á bls. 39.
h£Hcið
AÍG&f/M 11111
— Mér líkar ekki hvernig bankastjór-
inn hlær aö ávisuninni, sem pabbi gaf
okkur.
Af hverju eru bara myndir á þinum
ilum?