Heimilistíminn - 05.10.1978, Síða 7
hlaupabrautum, sundhöll, matstofum,
veitingastööum, bókasafni og búöum.
Iþróttamennirnir 12 þúsund verða flutt-
ir að leiksvæðunum i áætlunarbllum, sem
búnir verða sjónvarpstækjum og bilarnir
verða látnir aka eftir sérstökum aksturs-
leiðum. Að leikunum loknum munu um 20
þúsund Moskvubúar fá þessar ibúðir til
afnota.
Verkamenn vinna nú að þvi að endur-
bæta leikvelli og iþróttahallir, þar sem
fram mun fara glima,skylmingar,hokky,
fótbolti, einnig er verið að útbúa sundhöll
meö sérstakri aðstöðu til þess að stinga
sér, og þá er verið að bæta aðstöðu fyrir
þungalyftingar og handbolta, hestaiþrött-
ir og skotkeppni.
Vel á veg kominn. er undirbúningurinn
að kappsiglingakeppninni, sem fram mun
farafrá Tallinn við Finnlands-flóann. Þar
er verið að byggja 27 hæöa hótel.
— Hver eru helztu vandamálin, sem við
blasa?
Forsvarsmenn leikanna segja, að
vandamálin liggi 1 þvl, að þjálfa öku-
menn, matreiðslufólk, þjóna, leiðsögu-
menn og svo framvegis, sem þurfa aö
vera fyrir hendi vegna komu allra þess-
ara ferðamanna. Þjónusta við neytendur
er ekki sem bezt I Sovétrikjunum, að þvi
er sagt er. Þess vegna er þörf mikilla
framfara á þvi sviði.
Annað vandamál er, hvernig fylgjast
eigi með öllum feröamönnunum og gest-
unum, en um það ræða opinberir aðilar
ekki. 'Útlendingar eru enn taldir grun-
samlegir i Sovétrikjunum. Hlustunartæki
mun vera i hótelherbergjum, það tekur
langan tima að komast i gegn um tolleft-
irlitið, reglur eru strangar, og járn-
brautarvagnar eru nákvæmlega rann-
sakaðir. KGB og innanrikislögreglan I So-
vétrikjunum á þvi fyrir höndum mikið og
erfittstarf, og þeir verða að sjá til þess að
afreka þeirra verði ekki getið i heims-
blöðunum I sambandi við Olympluleik-
ana.
ÞFB
í Kreml lita menn svo á, aö þetta geti orðið stórkostlegt tæki-
færi til þess að auglýsa Sovétrikin, þar sem sagt verður frá
leikunumum allan heim,og milljónir manna munu fylgjast
með þeim i sjónvarpi.
Jæja, svo þið eigið bara eitt barn.
Það er ekki mikið.
-Nei, en við erum lika aöeins búin
að vera gift i tvær vikur.
Ertu í frii? Nei, ég er að leita mér
að eiukaritara.
7