Heimilistíminn - 05.10.1978, Síða 14

Heimilistíminn - 05.10.1978, Síða 14
Bergdís Bjarnadóttir I Hveragerði hlaut verðlaunin í leitinni að týndu öndunum Fyrir mánuði nánar tiltekið i Heimilis-Timanum 31. ágúst siðast liðinn birtist felumynd i Föndurhorninu. Myndin var af þremur dvergum* sem stungu saman nefjum heldur súrir á svip, þar sem þeir höfðu týnt öndunum sinum. Krakkar voru beðnir um að leita að öndunum mála þær og senda þær svo til Föndurhornsins. Þátttakan var býsna góö. Alls bárust um eitt hundraö bréf, alls staðar að af landinu. Flest bréfin munu reyndar hafa verið ur Reykjavik en þar næst úr Arnes- 14 sýslu. Annars voru einhver bréf Ur öllum sýslum landsins. Þaö er þó næsta undar- legt að fá bréf bárust af Austfjöröunum, og heldur ekki mörg af Vestfjörðum. Eitt er verraogþaðerað ótrúlega mörg börn sendu bréf en gleymdu að skrifa nafn sitt og heimiiisfang á teikninguna eða á miða með og þess vegna var ekki hægt að hafa þau með þegar farið var aö velja sigurvegarann. Ekki kom öllum saman um það hversu margar endur dverganna væru. Flestir höfðu þó fundið tuttugu endur en einhver reyndar tuttugu og eina. Var hvort tveggja látiö gott heita þar sem ekki var alveg vist hvort sú tuttugasta og fyrsta var f raun og veru önd. Og svo komum við að lokum aö þvi þýðingarmesta og það er að birta nafn sigurvegarans. Ljósmyndari Timans, Ró- bert, brá sér heim til Gauta Hannessonar sem ritstýrir Föndurhorninu og þar dró Þórarinn Bjarnason 11 ára gamall eitt nafn úr bunkanum. Upp kom nafn Berg- di'sar Bjarnadóttur, Kambahrauni 9, 810 Hveragerði. Bergdis er 11 ára gömul og höfum við sent henni bókina Dýrín hans Alberts Schwitzers i verölaun. Bókin er eftir Jean Fritz en séra Sveinn Vikingur islenzkaöi hana. Við óskum Bergdisi til hamingju! Ennfremur þökkum við öllum þeim, sem þátt tóku I þvl að leita að týndu önd- unum og vonum að þið hafið haft svolitið gaman af þessum leik. fb *

x

Heimilistíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilistíminn
https://timarit.is/publication/304

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.