Heimilistíminn - 15.06.1980, Side 11
inn. Sovéska geimkonan Tereshkova haföi
farið fjdra hringi umhverfis jöröina,
þegar árið 1963, svo bandariskar konur
eru eftirbátar kynsystra sínna þar eystra
hvað þetta snertir.
Engin ein þessara kvenna leggur sér-
staka áhersluá aö fá aö verða sú fyrsta út
I geiminn, en allar eiga þær sér þá ósk, að
eiga eftir að komat út i geiminn einhvern
tima i framtiðinni. Tlminn skiptir þær
ekki meginmáli.
Hver hefur sitt sérsvið.
—Viö höfum allar okkar sérsvið og sér-
þekkingu, segir Anna Fisher, — og okkur
langar til þess að fá tækifæri til þess aö
notfæra okkur þessa sérþekkingu okkar.
Hún segir ennfremur, að allt frá þvi hún
var táningur, hafi hana dreymt um aö
komast Utlgeiminn og veröa geimfari, en
hún hafi þó ekki þorað aö nefna það við
nokkum mann af hræðslu við að fólk
myndi hlæja að henni,
Alan Bean geimfari er sá, sem hefur
haft yfirumsjón með þjálfun kvennanna.
Hann segir, að rétt sé, aö langur tlmi hafi
liðið, áður en menn fóru að hugleiöa,
hvort ekki væri rétt að senda konu út I
geiminn, en þaö sé ástæða til þess. Lengi
framan af voru geimfarar valdir úr hópi
æfingaflugmanna hersins. — Og eins og
allir vita, er engin kona I þeirri stöðu,
segir Bean. — Þess vegna er alls ekki
hægt að kenna um kynferðislegu misrétti.
Þfb
Veiztu
Litla mýflugán
Myflugur geta ekki farið I koll-
steypur I loftinu eins og aörar
flugur. Ast^eðaTT'er sú, aö náttúr-
an hefur búið mýfluguna
jafnvægispinna (sjá ör) og hún
kemur I veg fyrir að hún spinni I
loftinu eins og aörar flugur og
lætur hana halda jafnvægi.
Eru þær eins?
— Þjónn, ég vil fá steikt egg.
Það á að vera lltið steikt öðru
megin en meira hinum megin,
ekki of mikiö smjör og vægan
hita, og svolitið salt. — Hænan,
sem verpir eggjunum heitirDofly,
skiptir það nokkru máli.
11