NT - 17.05.1984, Blaðsíða 9

NT - 17.05.1984, Blaðsíða 9
■ Maður er nefndur Ásgeir Jónsson. Hann er Akureyringur í húð og hár. Hann er þekktur fyrir song sinn með hljómsveitinni Bara- fiokknum, og hann gerir meira en að syngja, því hann semur bróðurpartinn af lögum hljóm- sveitarinnar og flesta texta. Bara-flokkurinn fæddist í stormviðrum pönksins eða nýbylgjunnar. Öidurótinu frá breska pönkstorminum tók að skola á land í norðlenska höfuðstaðnum upp úr 1977, og allt árið 1978 var þar mikil gerjun í tónlistar- lífi. Það var lítili hópur m anna sem tók sig til og hóf miklar pælingar og var undirritaður reyndar í þeim hópi. Eg hélt þá til í lítilli íbúð við Hafnarstræti, sem brátt var miðstóð þessa hóps, og þar var mikið spilað á kassagítar, hlustað á Sex Pistols, Stranglers og fleiri hljómsveitir. Staðurinn fékk nafnið Rauða torgið, og þar komu m.a. við sögu Ásgeir, Steinþór, síðar bassaleikari í Fræbbblunum og gítarleikari í Q4U, og Bragi Halldórsson, sem nú teiknar myndasögur í DV. Þetta var upphafið að mikilli virkni í nýbylgju- tónlist á Akureyri, og þegar ég fór síðast norður voru 6 eða 7 hljómsveitir starfandi auk Bara-flokksins. En látum okkur heyra hvað Ásgeir hefur að segja. - Hvenær ertu fæddur? áhritum vogarinnar. Ég er „22. nóvember, á mörkum fæddur á Fjórðungssjúkrahús- sporðdreka og bogamanns. inu á Akureyri.“ Mér er sagt að ég sé undir - Æska og uppvöxtur? „Ég var baldinn í æsku. Skólaganga var þannig að kennaramir segja mér að ég hafi verið leiðinlegur nemandi. Mér var hent út úr tímum ö.s.frv. En þeir segja samt að þeim hafi þótt vænt um mig. Það taldist mjög ólfklegt að ég yrði músíkant, því að í æsku, frá 10-12 ára aldri teiknaði ég mikið og var í myndiist. Fað urðu allir hissa þegar ég fór út í músík.“ - Hvenær gerðist það? „Þegar ég var 16 ára. Ég hef að vísu alltaf haldið mig við teikninguna og mála líka mikið í frístundum." - Hvað kom til að þú snerir þér að músík? „Ég veit ekki hvort til er skýring á því. Músík varðmér allt í einu allt og ég fór strax að semja lög og hafnaði öllum kópíeringum. Þá var mýgrútur af svoleiðis grúppum. Maður lenti strax upp á móti því. Ég byrjaði svo með Bara- flokknum, hann var fyrsta bandið sem ég byrja að starfa í og hef gert síðan, og er núna einni upprunalegi meðlimur- inn. Ég byrjaði þegar ne\v wave var í fæðingu, tók ekki þátt í fyrsta pönkinu. Maður gengur beint inn í new wave-tónlistina ogþað varðstrax mín músík.'' - Hvernig fæddist Bara- flokkurinn? „Hann fæddist sem 8 manna band árið 1978. Við störfuðum saman í tvo mánuði. Þetta var samsafn af þeim artistum sem þá voru að gera eitthvað af vitfij á Akureyri, fólk með sína eigin músík. Meöal þeirra voru Steinþór síðar bassaleikari í Fræbblunum og Bragi Halldórs, einnig Gunni Þor- steins. Það vöru allir með mý- grút af hugmyndum og menn komu sér ekki saman. Þetta endaði með því að við komum aldrei fram. Allir sem voru með þá eru hættir í músík nema ég og Steinþór. Þetta var létt band, menn komu saman í svona goody fylliríshúmor." - Síðan hefur bandið braggast? „Já, fyrst og fremst vegna þess að ég ákvað að halda áfram. Ég var hissa á því hvað fólk gafst fljótt upp. Ég hóf leit aðtónlistarmönnum til aðspila undir hjá mér. Ég fann svo þá Balla bassaleikara, Óla Magg og Árna Henriks, og það varð úr því svo gott samstarf að það varð óréttlátt að hafa þetta bara bakgrunnsband fyrir mig. Óli datt svo út. Okkur hafði alltaf vantað hljómborð, og ég vildi líka hætta að spila á gítar og einbeita mér að söngnum.Svo fundum við bræðurna, þá Jón og Þór.“ - Hvaðan komu þeir? „Þeir komu úr dansiballam- úsíkjnni. Þeir voru að æfa á sama stað og við, við æfðum í Lundaskóla á Akureyri og þeir voru að æfa hinum megin á ganginum. Grjótnemar hét bandið, og er auðvitað augljóst hvaðan nafnið kemur (grjót- numdir, bergnumdir). Þeir vildu sleppa þaðan og vinna frumsamda músik. Þá vorum við Þór búnir að vera haturs- menn í mörg ár. Við urðum fljótlega perluvinir og höfum verið síðan. Við þetta kom annar tónn í bandið, hljóm- borðin komu inn og Þór á gítrarinn, en að mínu viti er Þór einn af bestu gítarleikur- um hérlendis." „Við höfðum, áður en þessi breyting gerðist, verið að þró- ast út í einhverja hundleiðin- lega wet-coast-tónlist. En það breyttist allt. Við fórum svo að vinna að fyrstu plötunni, og við settum okkur ákveðið markmið fyrir þá plötu, alveg eins og allar hinar. Á fyrstu plötunni varþað rokk, oriental bít fyrir aðra plötuna og funky- soul bít fyrir þá þriðju. Og ég hugsa að næsta plata verði unnin með svipuðum hætti.“- - Hvað leið langur tími þangað til þið komust á samning? „Bræðurnir koma inn vetur- inn ’80-’81 og við fórum svo á samning hjá Steinum vorið ’81. Við vorum þá búnir að velta efninu, sem við höfðum, dálít- ið lcngi fyrir okkur. Við vorum með 9 laga prójekt og af því sendum við á demói 6 lög til Steinars, og hann varð svo hrifinn af því að hann ákvað að hafa þetta 6 laga skífu, sem var svolítil áhætta þá. Þessi skífá varö meir kynning á bandinu en nokkuð annað. Við settum sem skilyrði að fá einn Þursanna sem pródús- er. Við höfðum frétt af því að einn Þursanna væri virkur í .. störfurr^ og það var Tómas. Þá var hann að pródús- era Pláguna hans Bubba. Síð- an höfum við haldið honum. Það er orðinn mikill vinskapur milli okkar og hans. Við höfum svipaðar hugmyndir, og sam- starfið gengur vel. Við erum heldur áreiðanlega ekki skemmtilegasta grúppan til að vinna með, frekir ogsérvitrir.” - Hvernig hafiði farið að því að starfa svona lengi saman? „Ég veit það ekki. Þegar við vorum að byrja þá fengum við vissa andúð í heimabænum, þetta var gamla sagan, enginn verður spámaður í sínu föður- landi. Þetta styrkti okkur. Samstarfið hefur alltaf verið mjög gott. Ég veit ekki hvað veldur þessu, ég held að það séu bara góðir víbrarar í hljómsveitinni. Við höfum haldið vel saman, t.d. í ferðum til Reykjavíkur, og það hefur skapað móral sem maður finn- ur varla hjá öðrum hljómsvei- tum. Við hittumst ekki bara á æfingum eins og flestar aðrar hljómsveitir, heldur höldum vel saman utan þess.“ - Heldurðu að langlífi hljómsveitarinnar sé því að þakka að þið hafið alltaf starf- að á Akureyri? „Ég held að ef við hefðum flutt strax hingað í byrjun vær- um yið ekki sama band. Menii eru orðnir miklu stað- fastari núna, svo að við stefn- um að því að flytja suður Bara-flokkurinn. fljótlega. Þegar kominn er ein- hver farvegur þá eru menn öruggari. Þó svo að bandið sé þétt þá er ekkert því til fyrirstöðu að við vinnum utan við Bara- flokkinn, og ég stefni að því aþ gera tvö prjójekt sem síðar koma í ljós.“ - Hvaðan koma áhrifin í tónlist ykkar? „Ég veit ekki hvort rétt er að skilgreina það því að áhrifa- valdarnir eru svo margir. Það er enginn sérstakur artisti sem við tökum okkur til fyrirmynd- ar. En rythma blús var lagður til fyrirmyndar fyrir fyrstu ■ Ásgeir bendir á mikilvæga staðreynd á hljómleikum. plötuna, japönsk koto- oggeis- hu músík fyrir aðra. Eg er sjálfur alæta á tónlist.” - Ertu aldrei í vandræðum með að semja lög? „Ég sem lítið af fullklár- uðum lögum, heldur á ég á lager fullt af ómótuðu efni. Svo ef ég dett niður á eitthvað konsept þá fer ég með það á æfingu og við útsetjum það saman. Eg sem á gítar og hljómborð.” - Eru textar mikilvægir hjá þér? „Ég hef ekki gaman af að semja texta. Maðurgetur sam- ið hvaða bull sem er sé maður ekki mjög óryþmískur. Ég hef alltaf vérið að leita mér að íslenskum textahöfundi sem ég gæti fengið sem samstarfs- mann, en það hefur ekki tekist ennþá. En ég er samt líklega búinn að finna mann sem verð- ur kannski með á næstu plötu. Ég vanda mig ekki við texta, er miklu meiri músíkant en ljóðskáld. Þó að það sé slæmt að vera með prójekt sem er vandað að öllu öðru leyti en því að það eru slappir textar.“ - Hvernig hafið þið farið út úr samstarfinu við Steinar?. „Við höfum farið vel út úr því. Við erum uppáhalds- grúppan hans og hann hefur veitt okkur allt sem við höfum beðið um.“ - Framtíðin? „Það er bara að gera sern mest, komast yfir sem allra mest. Við ætlum að reyna að koma okkur erlendis til að spila, spila fyrir annað fólk. Við erum byrjaðir að vinna nokkur lög fyrir næstu plötu, en það er ekki ákveðið hvernig hún verður. Við erum jafnvel að spá í að gera litla plötu með íslenskum textum, með veru- lega hamingjusamri músík. Fara inn í stúdíóið með nokkr- ar viský og jónur og skemmta sér. Við erum búnir að endur- nýja samninginn við Steinar og hann hljóðar nú upp á 3 plötur í viðbót.“ -Er ekkert érfitt að eiga eftir að gera 3 stórar plötur í viðbót? „Nei, það er ekki, það er heldur of lítið." -Þú lifir af þessu? „Þetta er það-eina sem ég geri, og ég er ennþá á lífi. Ég hef alltaf unnið á sumrin, en ég nota veturna til að semja.” IFimmtudagur 17. maí 1984 8 ÁBÓT__Unga fólkið 1_____ ---1 í Bara-flokknum: ,------------------- „Enginn er spámaður í sínu föðurlandi“ „Vonum að platan verði í háum gæðaflo M „Það er vissulega ekkert bjart yfir brasanum að v&ða en við vonum að plata sú sem við erum að taka emhvaö sv0 upp þessa dagana sé í það háum gæðaflokkiað fólk sjái sér fært að kaupa hana ", sögðu þeir Skúli Sverrisson og ÞorvaldurJónsson í viðtali viðþetta NT-poppblað sem þið eruð nú með í höndunum. Skúli og Þorvaldur eru helmingurinn afhljómsveit’ inni Pax Ifobis, en sú stórsveit stendur í stór• ræðum þessa dagana og er alla daga í stúdíói að taka upp hljómplötu sem væntanleg er í júní og verður gefin út á merki Steina hf. Blm. brá sér eitt síðkvöld í Sörlaskjólið þar sem Pax Vobis æfir í nokkurra herbergja íbúð við bestu skilyrði. Auk þessara tveggja myndarpilta skipa Pax Vobisþeir Steingrímur ðli Sigurðarson og Ásgeir Sæmunds■ son. Steingrímur kallast trommari, Ásgeir hljóm* borðsleikari og söngvari, Skúli á bassa og Þor• valdur ber alla ábyrgð á hljóðum þeim sem koma úr hljóðfæri sem kallast rafmagnsgítar á nútíma íslensku. Pax Vobis er 1 og V2 árs gamalt band, var víst formlega stofnað 23. október einhvern tímann ígamla daga (pax vobisþýðiryðarfriður). Vobismenn Pax segja urðu Lög ykkar eru á ensku, af- hverju ekki móðurmálinu? Skúli: „Við gerðum tilraunir með að syngja á íslensku en það kom eitthvað svo væmið út, ef nota má svoleiðis orð“. Þorvaldur: „Lög sem áttu Eruð þið í þessum svartsýna popparaflokki? Er atómstríð aðalinnihald texta ykkar, eða hommar og lögregluríkið?? „Við erum bæði bjartsýnir og svartsýnir í textum okkar”, svöruðu þeir Þorvaldur og Skúli í einu (enda vel æft svar) Um hvað fjalla textar ykkar? Þ: „Oft um eitthvað hugar- ástand, já ansi oft. Um alit og ekkert". S: „Textinn fylgir alveg lag- inu. Ef lagið er þunglyndislegt þá hlýtur textinn að verða það líka. Á hvcrnig tónlist hlustið þið tveir mest? Kannski Hallbjörn? „Við hlustum á eiginlega allt. Allir höfum við þó ákveðnar uppáhaldstónlistar- stefnur og allir mjög ólík upp- áhöld". S: „Ég hlusta mest á jazz- tónlist, en einnig töluvert á nýrómantíkina". Þ: „Sem stendur fíla ég klassíkina langbest”. Hvaða tónlistarmenn hafa mest áhrif á Pax Vobis? Þ: „Engir núna sem stendur. Við erum orðnir nokkuð sjálfstæðir miðað við það sem við vorum kannski fyrst. Við verðum þo atíðvitað fyrir alls kyns áhrifum éins og lallir aðrir. Þá af öllu lém cr-f kringum okkur". Eruð þið bjartsý nir á að geta selt þessa plötu vel? S: „Við getum alveg horfst í augu við það að |iað er svart yfir bransanum en sé platan góð og í.háum gæðaflokki er ekki loku fyrir það skotið að góðir menn kaupi hana". Hvernig á svo að fylgja henni eftir? Þ: „Fyrst og fremst með öfiugu tónleikahaldi víða um héruð. Hugsanlegt er meira að segja að við kíkjum út fyrir landsteinana". S: „Greindarlegt svar”. Þið náttúrlega græðið á tá og fingri á að spila með Pax Vobis, ckki satt? S: „Nei það er rógburður og illra manna tal. Það lifir enginn á að spila svona frum- samið efni. Allir þeir peningar sem við fáum fyrir að koma fram fara í græjur. Þetta er dýrt áhugamál. Pax Vobis er hugsjón". Nú spilar þú Skúli í öðru hverju jazzbandi í bænum auk þess að vera í Pax Vobis, Sérstaklega virðist mikið vera að gcra hjá Gömmunum. Hvort eru Gammarnir eða Pax Vobis þitt band númer neitt? S: „Pax Vobis, tvímæla- laust. Við strákarnir hölum vcrið santan og spilað saman frá því í barnæsku. Þetta cr allt sköpun, en í jazzinum eru flest lögin gamlir standardar". Stefnið þið að því að verða tónlistarmenn að atvinnu? S: „Það geri ég. Takmarkið er að afia sér víðtækrar tónlist- armenntunar til að geta lifaö af henni, en þó ekki eingöngu sem poppari". Þ: „Eg tek undir þetta”. Snúum okkur aftur að plöt- unni. Er í bígerð að reyna að koma henni á framfæri erlend- is? Þ: „Það tel ég nokkuð líklegt, en það fcr þó mikið eftir viðtökunum hér heima og svo auðvitað útkomunni sjálfri”. Hvað kemur meistarastykk- ið til með að heita? S: „Ætliþaðverðiekkibara Pax Vobis“. Er ekkert cinhæft að hafa einn söngvara í bandinu, engar bakraddir? Þ: „Það má vera og líklegt er að við fáum aðstoð í fram- tíðinni á hljómleikum með jj - gjSjffi' bakraddir og þvíumlíkt. Við Skuh getum alla vega ékki sungid, erum ekkert sérlega sleipir á þvt.sviöi. við einbeit- •úm okkur að spilamennskunni í staðinn". Hvað finnst ykkur um Bubba Morthens sem tónlist- armann? Þ: Ég hef ekkert álit á honum sent tónlistarmanni en vissulega gerði hann góða hluti á sínum tíma. Hann kom bylgj- unni af stað og fyrir það á hann heiður skilinn". Segið mér aðeins frá Finn- landsferðinni góðu, sigurför- inni miklu. S: ,.Já við fórum þarna út á æskulýðsmót og spiluðum ásamt 20-30 öðrurn hljóm- sveitum af Norðurlöndum. Þegar við höfðum lokið okkur af settumst við fram ogfengum okkur að borða. Þá var skyndi- lega náð í okkur og Ásgeir tekinn upp á svið. Finninn sem náði í hann bablaði eitthvað á finnsku og sagði svo „Pax Vobis" og þá var klappað og klappað og við skildum ekkert hvað um var að vera. Svo kom Ásgeir til okkar og við héldum áfram að borða, og vorum dulítið fúlir yfir að fá ekki að borða í friði. Þá kom einn Finni í viðbót og segir: (við skildum það) „Hvað er þetta, þið unnuð?“ Við vissum ekki hvað við höfðum unnið, og þá fyrst gerðum við okkur ljóst að við höfðum verið að spila í allan timann. keppni Skpndið!" Eg ætla ekki að biðja ykkur um nein lokaorð, heldur vil ég fá að vita hvað þið gerið meira en spila með Pax Vobis. Þ: „Ég er í klassísku gítar- námi í Tónlistarskóla Sigur- sveins og er að taka 6. stig“. S: Ég spila jazz með Gömm- unum og fleirum og er að læra á kontrabassa í FIH og ýmis- legt fleira. Ásgeir er að læra til kokks og Steingrímur Óli kennir trommuleik í tónlistar- skóla FÍH“. Látum þætti Pax Vobis í þessu blaði, lokið í bili. Fimmtudagur 17. maí 1984 9 □ Þorlákur Kristinsson -The Boys From Chicago. Tilboðsverð: 199 kr. Hljómsveitin íkarus'varð til í kringum gerð þessarar plötu. Nú, þegar nýja íkarusplatan kemur út bjóðum viö „The Boys From Chicago" á tilboðs- verði meðan upplag endist. Flestir muna eflaust eftir Krókudílamannin- um, Hvíta hestinum, Kyrrlátt kvöld við fjörðinn og Óskalag sjómanna. □ KUKL - Söngull/Pönk fyrir byrjend- ur 7“ □ NEW ORDER - Thieves Like Us/ Murder 12“ 45rpm Thieves Like Us er glæný plata með hinni vinsælu hljómsveit New Order (Blue Monday). Hér vekja New Order á ný upp gömlu aðdáendurna, jafn- framt því sem hún mun eflaust falla í kramið á diskótekum. □ NEW ORDER - POWER, CORRUPTION AND LIES. Tilboðsverð: 290 kr. Fyrsta plata Kuklsins fáanleg aftur. Platan verður ekki endurútgefin Nýjar og áhugaverðar plötur □ Bauhaus - Burning From The Inside □ The Birthday Party - Mutiny □ Cabaret Voltaire - Johnny Yesno □ Julian Cope - World Shut Your Mouth □ Cramps - Smell Of Female □ Cure - Caterpillar/Japanese Whispers + allar hinar □ Metalic - Kill’em All (Heavy Metal) □ The Smiths-The Smiths (1. Lpfrá einni vinsælustu hljmsv. Breta) □ The Style Council - Café Bleu (P. Weller úr Jam) □ Soft Cell - This Last Night □ Torch - Torch (Heavy Metal) □ Roger Water - The Pros and Cons of Hitch Hiking □ Whitesnake - Live at Hammer- smith Nýjar 12“ □ Aswad (ein af stærstu reggae hljómsveitum í Bretlandi) tvöföld □ Holger Czukay - The Photo Song □ The force M.D’s - Let me love you (Break) □ G.L.O.B.E. & Whiz Kid - Play That Beat Mr. D.J. (Break) □ Hashim (Break) □ King Crimson - Sleepless □ Malcolm X - No Sell Out □ Propanda - Dr. Mabuse Eigum einnig fyrirliggj- andi fjölbreytt úrval af alls konar tónlist, blús, soul, jazz o.s.frv. Furðurveröld fyrir

x

NT

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: NT
https://timarit.is/publication/305

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.