NT - 17.05.1984, Blaðsíða 14

NT - 17.05.1984, Blaðsíða 14
Fimmtudagur 17. máí1Ö84 14 ■ Þegar Beatles kómu fram á sjónarsviðið seint árið 1962 má með sanni segja að það hafi orðið tónlistarbylting á einni nóttu í heimi dægurlagatónlistarinnar. Árið 1962 hafði verið eitt lakasta tónlistarlega séð og tónlistarhransinn var í sjálfu sér að leita dauðaleit að nýjum stjörnum. 1962 var ár söngvaranna, Elvis Presley átti 4 af 12 fyrsta-sætis lögunum í Bretlandi 1962, og var samtals 17 vikur ífyrsta sæti. Frank Ifield átti tvö fyrsta-sætis lög, Cliff Richard eitt, Ray Charles eitt, Mike Sarne eitt, hin þrjú áttu þrjár „instrumental"grúppur, Shadows, TornadosogB. Bumble & The Stingers. Breskar hljómsveitir komust ekki á plast nema þær væru ístíl við Shadows, eða hefðu íforsvari söngvara, sem mætti gera að sólostjörnu. En hljómsveitir voru í full- um gangi úti um allt í Liver- pool, London, Manchester og Birmingham voru hljómsveitir aö spila í unglingaklúbbum og léku lögin af vinsældalistunum auk laga meö amerískum svertingjaböndum og söngvur- um sem voru vinsæl meðal diskótekaranna í klúbbunum. I Liverpool var mýgrútur af efnilegum böndum sem engin útgáfufyrirtæki vildu sjá, þ.á.m. Beatles, Cass & The Casanovas, Gerry & The Pack- makers, Big Three, Fourmost, Billy J Kramer & The Dakot- as, Merseybeats, Swinging Blue Jeans og fleiri. Beatles voru með fyrstu böndunum til aö komast á samning, en þrátt fyrir það vissu vitrir menn í hljómplötu- fyrirtækjunum að þessar rokk grúppur ættu eftir að gera eitthvað því krakkarnir voru hættir að kaupa plöturnar sem þau voru mötuð á og farnir að flykkjast í klúbbana til að hlusta á tónlist sem höfðaði til þeirra. Eitt af fyrstu fyrirtækj- unum sem höfnuðu Beatles var Decca, en náunginn sem hafnaði þeim gerði það vegna þess að hann var með tvær hljómsveitir í sigtinu og mátti aðeins velja aðra, og hann valdi Brian Pool &TheTreme- loes, því þeir virtust viðráðan- legri og snyrtilegri og höfðu einn söngvara. Beatles aftur á móti voru með þrjá söngvara, og vissu ekki hvað þeir áttu helst að spila, eigin lög, vinsældalist- ana, uppáhaldssoul og Rhythm & Blues lögin sín, eða upp- áhaldslögin hans Brian Ep- stein, umboðsmanns síns. Hvað um það, eftir að HMV, Pye, EMI og Columbia (EMI merki ekki CBS), sem voru helstu merkin í Bretlandi 1962, höfðu hafnað þeim enduðu þeir á Parlophone, sem var EMI merki. Beatles Fyrsta plata Beatles, „Love Me Do“ náði 17. sæti á breska listanum, sem var alls ekki lélegt innan um Cliff Richard, Frank Ifield, Helen Shaphiro, Mark Wynter, Fabian og Shadows. Næsta lag þeirra „Please Please Me“ fór í fyrsta sætið, og svo gerðu næstum því öll lög þeirra, 27 sem fóru á lista. Um mitt ár 1963 var Beat Músík föst í sessi. >ó Cíiff (The Next Time) og Shadows (Dance On), Jet Harris & Tony Meehan (Diamonds) hafi átt þrjú fyrstu no. 1 lögin 1963, þá voru „beat-lög“ að einu undanskildu, sem áttu öll fyrsta sætis lögin eftir 11. apríl. Fyrstir á eftir Beatles komu Gerry & The Pacemakérs, síð- an Searchers, Billy J. Kramer & The Dakotas, Brian Poole & The Tremeloes. Beatles áttu 4 fyrsta sætis- lög 1963, Please Please Me, From Me To You, She Loves You og I Want To Hold Your Hand. í dag virkar ferill og tímabil Beatles eins og draumur. Þau áhrif sem þeir höfðu á þær kynslóðir sem voru á aldrinum 3 til 30 ára 1963 eru eflaust miklu meiri heldur. en nokkurn grunar. Þeir sem lifðu ekki þessa tíma geta seint skilið hversu kraftur þeirra var mikill á árunum 1963 til 1969, á tímum gífurlegra þjóðfélags- breytinga um heim gervallan. Þó ferill Beatles hafi oft verið rakinn í blöðum, bókum og tímaritum, skulum við rekja hann hér í stuttu máli. Jóhn Lennon og Paul McCartney hófu fyrst að leika saman 1956 í skiffle-bandi Lennons, Quarrvmen, sern hafði flöktandi liðsskipan. Ge- orge Harrison gerðist einn af mörgum gítarleikurum Quar- rymen 1958, en hann hafði áður leikið í hljómsveit bróður síns Peter, The Rebels. 1959 breyttu þeir nafninu og gerðust rokkband með nýja bassa- leikara, Stuart Sutcliffe, undir heitinu Johnny & The Moon- dogs, Johnny & The Moondogs urðu síðan Silver Beatles, síð- an Rainbows og loks Beatles. 1960 gerðist Pete Best trommuleikari þeirra eftir nokkrar misheppnaðar tilraun- ir með aðra trommara. Þeir léku í klúbbum Liverpool, sér í lagi í Jacaranda og Cavern klúbbnum en þá báða átti náungi að nafni Alan Williams, en hann gerðist fyrsti umboðs- maður þeirra. Alan hafði sent aðra af hljómsveitum sínum, Howie Casey (síðar í Wings) & The Seniors til Hamborg með slíkum árangri að hann ákvað að senda Beatles þangað einnig. Á eftir Beatles fóru tugir Liverpool hljómsveita einnig til Hamborgar. Þýsku áheyrendurmr vildu háværa tónlist, mikið að gerast á svið- inu og fjör! Bresku hljómsveit- irnar sem þurftu oft að leika í 6-8 tíma törnum einangruðust fljótt frá breskum áhrifum, Shadows og Cliff, en einbeittu sér að Rock Yi Roll og R&B músík. í apríl fóru þeir fyrst í stúdíó, með Tony Sheridan, enskum söngvara sem var vin- sæll á meginlandinu. Þeir tóku upp nokkur lög með Sheridan og sjálfir allavega þrjú lög. í júní'61 ákvað Sutcliffe að vera eftir í Þýskalandi ásamt vinstúlku sinni og auka við menntun sína í myndlistinni. Þar með varð Paul bassaleikari • hljómsveitarinnar. I desember sama ár gerðist Brian Epstein umboðsmaður þeirra. Strax hófst hann handa við að koma prufuupptökum á framfæri við hljómplötufyrir- tæki í London. I fjóra mánuði gekk hann á milli Decca, Pye, Columbia, HMV og EMI og fékk oftast þvert nei. Loksins var einn tilbúinn að gefa þeim áheyrn (þeir höfðu reyndar tekið upp prufuupptökur fyrir Ðecca, sem nú eru til á plötu), en það var George Martin, upptökustjóri og A&R maður hjá Parlophone. í júní komu þeir í stúdíó, John, Paul, George og Pete. George Martin sá að þeir voru efnilegir en líkaði ekki við trommarann og sagði að annað hvort skiptu þeir um trommu- leikara eða hann þyrfti að nota stúdíó mann í upptökunum. John, Paul og George höfðu þegar augastað á öðrum trymbil, sem þeir höfðu leikið með í jam sessionum og í upptökum í Hamborg, Ric- hard nokkur Starkey, sem trommaði með Rory Storme & The Hurricanes, sem var vin- sæl hljómsveit í Liverpool. Richard sem gekk reyndar þá þegar undir nafninu Ringo Starr, var ekki beinlínis í stíl við hina Bítlana því hann gekk með alskegg, gráar strípur í hárinu og greiddi hárið upp og í píku að hætti rokkara. Þessu öllu varð hann að fórna líkt og Pétur Östlund þurfti að safna hári og gott ef ekki raka sig þegar hann gekk í Hljóma nokkrum árum síðar. George Martin var ánægð- ari, en hafði þó vara trymbil á svæðinu og tók reyndar aðra upptökuna á „Love Me Do" með Ringó á tambórínu en Andy White lék á trommurn- ar. Skömmu eftir upptökurnar drifu þeir sig í enn eina ferðina til Hamborgar, sem reyndist verða þeirra síðasta til að spila í næturklúbbum. Um áramótin var gerð upptaka á balli í næturklúbbnum Star Club sem síðar kom út á hljómplötu löngu eftir að Beatles höfðu hætt störfum. Þegar þeir sneru aftur í janúar 1963 gáfu þeir út „Please Please Me“ sem fór í fyrsta sætið á þrem vikum og dreifðust vinsældir þeirra og forvitni fólks um þessa furðu- fugla eins og eldur um sinu yfir gervalla Evrópu og víðar. En það var ekki bara músík- in sem vakti athygli, útlit þeirra félaga, sítt hár (þ.e. greitt niður á einni í stíl „bóhema“ Parísar, í rúllukragapeysum kragalausum jökkum, támjó- um „Bítlaskóm", strákslegir piltar sem voru saman í hljóm- sveit, ekki sjálfstæðir söngvar- ar, nokkurs konar gengi. Þetta hreif. Stúlkurnar urðu: allar ástfangnar af sínum Bítli, og gátu verið vinkonur áfram, strákarnir sáu gengisljómann og það var ekki lengur bara einn töffari í hópnum í stíl James Dean eða Elvis Presley sem stjórnaði genginu. Beatles gáfu út þrjár litlar plötur til viðbótar 1963 „From Me To You“, She Loves You“ og „I Want To Hold Your Hand“. 1964 kom „Can’t Buy Me Love“, „A Hard Day’s Night“ og „1 Feel Fine“ . I febrúar 1964 komust Beat- les fyrst á lista í Bandaríkjun- um með lagið „I Want To Hold Your Hand“, en meira um bresku innreiðina í Amer- íku síðar. . Beatles héldu vinsældum sínum allan þann tíma sem þeir störfuðu eða til 1970, flest laga þeirra náðu fyrsta sætinu í Bretlandi og víðar, og stóru plöturnar þeirra náðu jafn miklum vinsældum og eru enn máttarstólpar í öllum góðum plötusöfnum. Breiðskífur þeirra voru, á meðan þeir störfuðu, þessar: 1963 Please Please Me 1963 With The Beatles 1964 A Hard Days Night 1964 Beatles For Sale 1965 Help 1965 Rubber Soul 1966 Revolver 1966 A Collection Of Bea- tles Oldies (But Goldies) 1967 SGT Pepper Lonely Heart Club Band 1968 The Beatles (White Album 1969 Yellow Submarine 1969 Abbey Road 1970 LetltBe Þessar plötur eru grund- völlurinn í Beatles safninu, en síðan má nefna fjöldann allan í viðbót, en til frekari lestrar um plötur Beatles má benda á tvær mjög góðar bækur, „The Long Ánd Winding Road“ og „Working Class Heroes" báð- 'ar gefnar út af Virgin. Gerry & The Pacemakers Gerry & The Pacemakers komu næstir á eftir Beatles með lag upp vinsældalistann. Gerry Marsden hafði leikið í ýmsum skiffle og rock 'n roll böndum í Liverpool þegar hann stofnaði eigin hljómsveit ásamt bróður sínum Freddie, The Mars Bars. Þeir hafa lík- lega verið hrifnir af Mars súkkulaði. 1959 stofnuðu þeir ásamt Les Chadwick The Pace- makers og héldu til Top Ten

x

NT

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: NT
https://timarit.is/publication/305

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.