NT - 10.06.1984, Qupperneq 3
M „Trufliðmigekkimeðanhann
tekur myndina, “ sagði Konni,
þegar Ijósmyndarinn lyfti
myndavélinni. Baldur sagði
auðvitað ekki orð!
Sunnudagur 10. júní 1984
■ Okkar maður í Madríd, Kristinn
R. Ólafsson ræðir við spánskan
mann sem talar ágæta íslensku en
hefur aldrei á skerið komið. Sá hinn
síðarnefndi er reyndar kennari í
íslensku og hefur þýtt perlur ís-
lenskra bókmennta yfir á spönsku.
■ Útsendari Helgarblaðsins var á
ferð um Þýskaland og lenti þar í
ævintýrum sem hann segir frá í
grein sem ber hvprki meira né
minna en nafnið „( heimahögum
jungfrú Alexöndru á Behashof."
■ Við heimsækjum líka mjög sér-
stakt hótel þar sem gestirnir eru
með alls kyns hundakúnstir í orðs-
ins fyllstu merkingu. Á
þessu sérkennilega gistihúsi þykir
heldur ekkert slæmt að vera svol ítið
tíkarlegur og menn eru upp með sér
af að fara í hundana.
■ Krýsar á íslandi, eru þeir hug-
arfóstur eða var hér blómleg menn-
ing löngu áður en norrænir menn
komu til íslands? Kenningin um
þessa fornu menningarþjóð sem
hraktist frá Egyptalandi til íslands er
umdeild meðal fræðimanna og hef-
ur hvorki verið sönnuð ne afsönnuð.
FORSÍÐUMYND:
■ Krýsar í Kapelluhrauni
Ljósmynd: Róbert
Umsjónarmenn:
Atli Magnússon
Jón Ársæll Þórðarson
Þorsteinn G. Gunnarsson
TOYOTA
Líttu við í Hafnarstrætinu,
hinum nýja sýningarsal okkar.
Þar er opið virka daga frá kl: 10:00-18:00.
E
E
■ „Búktalið er listgrein sem er
að deyja út,“ sagði Baldur Georgs,
faðir þess fræga „Konna,“ þegar
við hittuni hann að máli í vikunni,
en Baldur gerði eins konar
„comeback“ eftir tíu ára þögn
austur í Hveragerði um daginn, en
þá tróð hann upp á sýningu
Steingríms Sigurðssonar.
„Dæmi um það eru brúðurnar
sjálfar," sagði Baldur. „Það var
breskur snillingur sem smíðaði
„Konna“ á sínum tíma en nú er
hanndáinn. Þeirsmíðabrúðurnar
núna úr einhverjum plastefnum og
það er ómögulegt að komast í rétt
samband við það efni.
Já, það þarf að myndast
alveg sérstakt samband á milli
búktalarans og brúðunnar. Það
geta í rauninni ekki allir lært þetta.
Menn verða að geta verið tveir
einstaklingar í senn. Annars
verður þetta aldrei ekta. Það er
hægt að læra taltæknina, en ekki
hitt, ef menn hafa það ekki í sér.
F.gvar 16áraþegarvið„Konni“
komum fy rst fram. Ég var svo með
hann í ein 30 ár, en hætti fyrir tíu
árum vegna veikinda. Ég ætD að
vita hvort mér tekst enn að gera
þetta eins og í gamla daga. Ég veit
ekki hvernig tekst. Maður verður
að sjá til.“
TOYOTA
- þjónustan er í sama gæðaflokki og bílarnir.
TOYOTA
Söludeild Hafnarstræti 7 101 REYKJAVÍK Sími 91 25111