NT - 10.06.1984, Blaðsíða 9

NT - 10.06.1984, Blaðsíða 9
Sunnudagur 10. júní 1984 9 lU' ■ Árið 1971 gaf bókaútgáfan Helgafell út litla Ijóóabók , sem bar hið hógværa heiti „Er á þetta lítandi?“ Ljóðin, sem þar lágu milli spjalda, eru eftir Unni S. Braga- dóttur, sem á þessum árum var menntaskóiasnót í MR, en þangað hafði hana borið austan af Eski- firði. Nú er það ekki ætlun mín, að fara að skrifa gáfulegar athuga- semdir um þessa bók og kalla krítík. Bæði væri heldur seint af stað farið, og eins hentar mér bctur, að lesa bækur fyrir sjálfan mig en annað fólk. Þó skal þess getið, að í þessari bók voru bæði fögur Ijóð og einlæg. Aldrei átti ég annars von, en að ég fengi að sjá fleiri Ijóð frá Unni. En það fór á annan veg. Sú stutta gerði sér lítið fyrir, og lét sig hverfa sporlaust úr bókmenntalífi þjóðar- innar. Á þrettánda ár hef ég beðið þess, að fá að sjá, þó ekki væri nema eitt stykki Ijóð í lesbók. Hafi það birst, sem ég dreg stórum í Spjall Pjetur Hafstein Lárusson. efa, þá hefur það farið framhjá mér. Þótt mér sé hlýtt til Unnar, bæði sem skálds og gamals félaga úr heimi ungra skálda í upphafi síð- asta áratugar, þá þykja mér það hæpnir mannasiðir af hennar hálfu, að meina fólki aðgang að list sinnio Því miður er það svo, að fleiri góðar skáldkonur en Unnur S. Bragadóttir láta alltof lítið frá sér heyra meðan við karlarnir þveng- ríðum Pegasusi út um holt og móa. Hvergi er það t.d. mcð Kristínu Bjarnadóttur og Elísabetu Jök- ulsdóttur? Á maður kannski að þurfa að brjótast inn hjá þeim, stela Ijóðum þeirra úr læstum hirsl- um og lauma þeim í prentsmiðju, til að fólk fái að sjá eitthvað meira frá þeim en stöku Ijóð í tíma- ritum ? Svona i lokin ætla ég að nefna citt dæmi þess, hve yfirgengilega hógværar skáldkonur eru á ritvell- inum. Fyrir nokkrum áruin hélt Rauð- sokkahreyfingin samkomu í Fé- . lagsstofnun stúdenta. Meðal þess, scm auglýst var að yrði á boðstúln- um, var lestur kvenna á eigin Ijóðum. Við hjónin mættum á staðinn og hlökkuðum mikið til að hlýða á blessaðar konurnar lesa Ijóð sín. En viti incnn. Þær létu ekki sjá sig. Fyrst í stað vonuðu menn, að landlæg óstundvísi orsakaði fjar- veru skáldanna, en þegar sýnt þótti, að svo væri ekki, veit ég ekki fyrri til, en ein þeirra ágætu kvcnna, sem stóðu fyrir samkom- unni hvíslar því i eyru mér, að nú verði ég að bjarga því sem bjargað verði og lesa eigin Ijóð. Því næst var ég keyrður hcim á babúbíla- hraða til að sækja Ijóð oni mann- skapinn. Þessari kynningu á Ijóða- gerð kvenna lyktaði sem sagt með því, að ég, karlrembusvín holdi klætt, las úr eigin verkum yfir liðinu. Púkinn í mér skemmti sér vitan- lega konunglega, en skelfing urðu áheyrendur klumsa. ■eaerí AL-GROÐURHÚS og sólreitir fyrir heimagarða Stærðir: 3,17x3,78 (10x12 fet) m/gleri 2,55x3,78 ( 8x12 fet) m/gleri 2,55x3,17 ( 8x10 fet) m/gleri Vegghús: 1,91x3,78 ( 6x12 fet) m/gleri Ýnisir fylgihlutir fyrirliggjandi: Hillur, sjálfvirkir gluggaopnarar, borð, rakamælar, rafmagnsblásarar o.fl. o.fl. Sólreitirnir eru af nýrri gerð, með plastgleri (óbrjótan- legt) og innbyggðum, sjálfvirkum opnunar- og lokunar- biinaöi, sem vinnur á sólarorkunni. Stærð 122x92x38. Eden garðhúsin eru nú fyrirliggjandi, en við höfum yfir 10 ára reynslu i þjónustu við ræktunarfólk. Engin gróðurhús hafa náð sömu útbreiðslu hérlendis. Þau lengja ræktunar- timann og tryggja árangur. Sem fyrr bjóðum við lægsta verð, ásamt frábærri hönnun Eden álgróðurhúsa. Sterk- bvggð og traust hús. Sýningarhús á staðnum Kynnisbækur sendar ókeypis \jr * ■ r ■ r Grandagarði 13, IxllT rlt. Reykiavik — Simi 23300 Heilög Sesselja í loft- köstum yfir Listahátíð ■ Menn hafa verið að velta fyrir sér hver þessi beri kvenmaður sé sem þeir Listahátíðarmenn flagga utan á Útvegsbankanum í Reykja- vík og reyndar víðar. Til að komast að hinu sanna í málinu slógum við á þráðinn til Bjarna Ólafssonar fram- kvæmdastjóra Listahátíðar. Hvaða kona er þetta sem þið eruð svona hrifnir af Bjarni að þið hafið gert að einhvers konar vörumerki hátíðarinnar? „Þetta er nú hún Sesselja sem mun vera eins konar verndari tónlistarinnar í heiminum. Það var ákveðið að efna til sam- keppni um veggmynd sem gæti verið merki hátíðarinnar og þessi mynd varð fyrir valinu. Þessu var tekið mjög skemmtilega og við höföum fjölda mynda upp úr krafsinu sem dómnefnd valdi svo úr. Sá sem svo listilega teiknar heilaga Sesselju er Hannes Sigurðsson nemandi úr mál- undardeild Myndlista- og handíðar- skólans í Reykjavík. Með myndinni lét listamaðurinn fylgja texta þar sem segir að heilög Sesselja stökkvi hæð sínaí loft upp af ánægju vegna blómstrandi listalífs á höfuðborgar- svæðinu. Myndin hefur vakið at- hygli og við köllum hana lukku- tröllið okkar. Hvort sem það er henni að þakka eða einhverju öðru þá hefur hátíðahaldið gengið stór slysalaust og það er svolítill stígandi í þessu hjá okkur þannig að ekki verður síður mikið um að vera seinni hluta hátíðarinnar en á fyrri hlutanum." STETJ m°STÉ UR HELLUM OG BROTSTEINUM SEM VID SELJUM. HJA OKKUR FAIÐ ÞIÐ MARGS KONAR HELLUR OG BROTSTEINA I STÉTTAR OG GARÐSKREYTINGAR, STIGA OG ÞREP. MUNIÐ OKKAR ÓTRÚLEGA HAGSTÆÐU GREIÐSLUSKILMALA - 20% ÚT OG AFGANGINN Á 6 MANUÐUM. SÍMINN ER 28600 BYCClNGflVORURl HRINGBRMrM20^^^^^ SOLUSTJORI. 28-693 MÁLNING OG VERKFÆRI . 28-605 ■ GÓLFTEPPADEILD 28-603 SKRIFSTOFA. 28-620 BYGGINGAVÖRUR 28-600 TIMBURDEILD. 28-604 HARÐVIÐARSALA 28-604 FLfSAR, HREINUETISTÆKI. 28-430

x

NT

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: NT
https://timarit.is/publication/305

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.