NT - 10.06.1984, Blaðsíða 22

NT - 10.06.1984, Blaðsíða 22
M Hún Perla er í miklu upp- áhaldi hjá Guðríði. En samt eru poodle-hundarnir vandlát- ir og það verður að sjóða í þá sérstaklega matinn. M Þessi „Golden Retriever“ hafði komið á hótelið daginn áður. Hann var með afbrigðum spakur og tók lítinn þátt í háværu spjalli félaga sinna í næstu búrum. þetta upp með'því að fara með þá í daglegan göngutúr, hvern fyrir sig. Þá er hún Saga okkar venjulega með, svona sem sel- skapsdama, því hún er svo gæf. Saga er hreinræktuð ís- lensk tík frá Húsatóttum í Grindavík. Hún fékk verðlaun í fyrra sem fallegasta íslenska tíkin og hérna er líka hundur- inn sem fékk karlaverðlaunin, en hann heitir Játvarður. Við erum með sex íslenska hunda í vist núna. Þrír þeirra eru úr Garðabænum og eru því sam- an í búri. Já, ef hundar eru i fleiri en einn frá sama heimili fá þeir að vera saman, ef óskað er. Þetta er ákaflega mikil vinna, alveg fullt starf. Verðið? Jú, við tökum 125 krónur á dag fyrir einn hund, en 115 krónur ef tíminn er lengri en 3 vikur. Við rekum hundahótelið allt árið. Nei, fóðrið er ekki svo mikið vandamál. Við notum sér framleiddan hundamat, því þannig tryggjum við okkur að það sé óskemmt og þau efni í M Það mætti halda að það værí ball á hótelinu, þegar okkur ber að garði. Það er líka von, þar sem gestirnir eru mjög alþjóðlegt úrtak, eí svo má segja. Hvern undrar þótt íslendingarnir, hreinræktaðir, hafi sitthvað að spjalla við vini komna a.m.k. að langfeðgatali, frá Labrador, Þýskalandi, Skotlandi og ham- ingjan má vita Itvaðan víðar að. íá, það mætti halda að það væri ball, kannske kokteil- partý. Hver talar uppí annan á sinni tungu og enginn má bíða eftir að hinn Ijúki máli sínu. Ef til vill hefur það sín áhrif að það er kominn Ijósmyndari og hver vill ekki fá sér mynd og komast ef til vill í blöðin? Þetta nýstárlega hótel sem um er rætt hér að Arnarstöðum í Hraungerðishreppi, og er aðeins um fimm mínútna akst-1 ur frá Selfossi. Gestirnir, einsj og einhvern mun nú vera farið ‘ að renna í grun, eru hundar af öllum mögulegum stærðum og tegundum og eins og á hverju öðru hóteli, þá eru þeir hér vistaðir í mismunandi langan tíma, sumireina helgi, en aörir nokkrar vikur. Það er Hunda- ræktarfélag íslandsog Hunda- vinafélag fslands sem gengust fyrir stofnun hótelsins og tók það til starfa í fyrra. „Við vorum hér með um 40 hunda í fyrra,1' segir Guðríður Valgeirsdóttir, sem hcfur einna mest af hótelrekstrinum að segja, „en ég lield að á þessu ári sé fjöldinn þegar orðinn ámóta og mér sýnist að hér muni fyrir vikið verða mun meiri gestafjöldi í ár. Um þess-1 ar mundir eru hérna 18 hundar' á hundahótelinu og einn inni í bæ. íslenska tíkin okkar, hún Saga, er auðvitað ekki talin með. Já, fólk getur komið hingað með hundana sína ef það fer í frí, vegna veikinda og svo framvegis. Já, öllum er heirn- ilt að sækja um vist fyrir hund hér, en þá þurfa þeir að gerast félagar í annað hvort Hunda- ræktarfélaginu eða Hunda- vinafélaginu. Árgjaldið í Hundaræktarfélaginu er nú 400 krónur og fylgir þá með hundablaðið „Sámur‘\ Ár- gjald í Hundavinafélaginu er 250 krónur. Hægt er að gerast félagi hérna, ef menn vilja. Það má segja um hundana sem koma hingað að þeir eru allir sérstaklega mannelskir og gæfir, sem sýnir að þeir eru vanir góðu. Þeir hafa venju- lega með sér einhverja hluti sem þeir þekkja, körfuna sína teppi og jafnvel inniskó af eiganda sínum. Það skiptir marga þcirra afskaplega miklu máli. Annars er það mjög misjafnt eftir tegundum hverjir eru ról- egastir og hverjir fyrirferða- mestir, en um það ræði ég ekki í blöðin. Sumir hundarnir eru búnir að vera hér oft og þá er augljóst að þeir þekkja sig og eru fljótir að venjast við. Ann- ars eru þeir flestir mjög fljótir að átta sig og ég held að þeim líki hér vel. Þeir eru látnir fá sitt eigið búr hver, bæði inni og útibúr, því ef þeir gætu verið hver innan um annan er hætt við að komið gæti til slagsmála. Það þarf ekki nema einn til þess að byrja á slíku. En við reynum að bæta þeim Sunnudagur 10. júní 1984 22 Samkvæmislif með alþi óðlegum blæ heimsókn í hundahótelið að Amarstöðum M Fjölskyldan á Arnarstöðum. Lengst til vinstri er Ragna, 13 ára, þá hjónin Gunnar og Guðríður. Þá kemur Guðmundur Valgeir, 6 ára Birgir 10 ára og Valgerður 17 ára. M Á hótelinu er stundum talsverður kliður, þegar allir gestirnir tala hver upp í annan.

x

NT

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: NT
https://timarit.is/publication/305

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.