NT - 10.06.1984, Page 5
Jæ^gssii
HT-myndir Ami Bjama
ast nú upp á síökastið. Danir
og Norðmenn og svo Þjóðverj-
ar eru einnig ofarlega.'1
Skiptinemi AFS
„Ég er að fara utan í sumar
sem skiptinemi á vegum AFS
- ég ætla að vera þar í sumar.
Þetta er í Oregon fylki, en ég
er nú varla búinn að átta mig á
staðsetningunni. Við byrjum
á því að vera á háskóla í
enskunámi en förum svo til
fjölskyldnanna.
Ég veit nú ekki ennþá hvort
maður getur kíkt á dansmenn-
ingu Bandaríkjamanna, en
auðvitað væri gaman að geta
kynnt sér kúrekadansana.
Mér líst vel á fjölskylduna.
Þetta er miðaldra fólk, sem
býr rétt fyrir utan stórborg - ég
bara veit ekki hvaða borg þetta
er. Ég held að þetta sé barn-
laust fólk.“
Veiðivörður
„Fjölskylda mín rekur veiði-
heimili við Laxá í Aðaldal og
ég hef starfað sem leiðsögu-
maður við ána á sumrin. Það
koma þarna margir útlendingar
og yfirleitt eru þetta nú miklir
kunnáttumenn. Þetta eru yfir-
leitt hópar sem dvelja í viku -
og hópurinn sem hefur verið
lengst hjá okkur hefur kornið
fimmtán sumur.
Annars hefur þetta verið
dálítið erfiður tími hjá mér.
Þetta eru náttúrlega ekki há
laun sem nemi hefur. Það hef-
ur þó hjálpað mér mikið að ég
hef búið hjá móðurforeldrum
mínum hér í Kópavogi.
Islenskir dansstaðir
„Ég sæki þá nú ekki mikið -
m Vidar
Völundarson
a
S£gir
til að dansa. Það er bara ósköp
léleg aðstaða til þess. Þetta eru
þá yfirleitt bara diskótek.
Diskódans og svoleiðis er
náttúrlega hluti af okkar
vinnu, við kennurn þetta.
Breakdansinn er tískubóla og
kemur til með að dala með
tímanum. En þetta eru náttúr-
lega frábrugðnar hreyfingar
sem við höfum ekki kennt
áður þannig að það hefur verið
ansi strembið hjá okkur. Við
höfum ekki haft mikinn tíma
því þetta kom inn á kennslu-
prógram hjá okkur á vorönn.
Því er lítill tími sem við höfum
haft til æfinga. Enþetta kernur
vonandi aftur í haust þannig
að betri tími gefst þá.“
Framtíðin
„Þetta er ósköp lítið planað
hjá mér. Ég reikna með að
starfa við þetta næsta vctur.
Ég sé ekki að við förum í
neinar keppnir. Það er ekkert
sem bendir til þess hjá okkur,
sem kennurum.
Ég reikna fastlega með því
að starfa næstu árin sem kenn-
ari en það fæst reynsla á það á
SON
næsta ári. Ég ætla bara að sja*
hvernig gengur áður en ég geri
nokkur plön.“
Viðar er nú á Flúsavík hjá
foreldrum sínum, áður en
hann heldur vestur um haf.
Áhugamál hans, önnur en
dans, er veiðiskapur og íþrótt-
ir.
Hann var á Héraðsskólanum
að Laugum áður en hann hóf
dansnámið. NT óskar Viðari
alls góðs í dansinum.
GERIÐ VERÐSAMANBURÐ
GOODYEAR GER
KRAFTAVERK
Til kraftaverka sem þessa þarf gott jarðsamband.
Það næst með GOODYEAR hjólbörðum.
Gott samband jarðvegs og hjólbarða auðveldar alla
jarðvinnu.
Hafið samband við næsta umboðsmann okkar.
GOODWYEAR
GEFUR ^RÉTTA GRIPIÐ
HEKIA HF
1 Lattgavegi 170-172 Sími 21240