NT - 19.06.1984, Side 6
Þriðjudagur 19. júní 1984 6
■ „Jú það er rétt ég var tekinn fyrir að veita sterk vín
Sigmar B. Hauksson.
Veitingamenn óánægðir með áfengislöggjöfina:
„Yf irvöld fjandsam-
leg vínveitendum“
segir Sigmar B. Hauksson veitingamaður
■ Gins og lcsendur NT sjálf-
sagt muna, þá lentu nokkur
vínveitingahús upp á kant við
lögin um hvítasunnuhelgina,
vegna vínsölu og sterkvínsölu
til matargesta á hvítasunnudag.
í kjölfar þess hafa heyrst óá-
nægju- og gagnrýnisraddir um
gildandi reglugerð um vínveit-
ingar, í þá veru að ekki einungis
sé reglugerðin „fáránleg" held-
ur sé orðalag hennar bæði óljóst
og villandi. í umræddri reglu-
gerð um sölu og veitingar áfeng-
is nr. 335/1983 segir í sjöundu
grein: „Fyrra helgidag stórhá-
tíða þjóðkirkjunnar, aðfanga-
dag jóla og föstudaginn langa er
einungis hcimilt að veita borð-
vín með mat á regluiegum mat-
málstíma."
„Ekkert eftirlit á
föstudaginn langa“
Eitt þeirra veitingahúsa sem
fengu heimsókn eftirlitsmanna
um hvítasunnuna, var veitinga-
húsið Rán sem þá var að veita
matargestum sterk vín. „Já, það
er rétt, ég var tekinn fyrir að
veita sterk vín og það var vitnað
til óskýrrar löggjafar þar sem
talað er um páska og jól“, sagði
Sigmar B. Hauksson í samtali
við NT. „Alvarlegasti þátturinn
í þessu máli, er fjandsamleg
afstaða yfirvalda til vínveit-
enda. Ætlist yfirvöld til að þess-
ari löggjöf sé hlýtt, ættu þau að
hafa samband við staðina og
aðvara þá áður en látið er til
skarar skríða, í stað þess að
læðast svona aftan að mönnum.
Stjórnvöldum ber skylda til að
vera upplýsandi og fyrirbyggj-
andi í þessum málum sem
öðrum" sagði Sigmar. Hann gat
þess jafnframt að á föstudaginn
langa hefðu engir eftirlitsmenn
verið á ferðinni, en þá hefðu
mörg hús veitt sterk vín enda
mikið um útlendinga í borginni.
Stöðugt eftirlit
í framhaldi af ummælum Sig-
mars hafði NT samband við
einn eftirlitsmann, Níels Her-
mannsson. „Við vorum íeftirliti
á föstudaginn langa enda erum
við alltaf á ferðinni, alla daga,
öll kvöld og langt fram á nætur
þegar ástæða er til. Enda hefur
þörfin fyrir eftirlit aukist eftir
að vínveitingahúsunum tók að
fjölga þetta mikið. Yfirleitt
höfum við átt góða samvinnu
við það fólk sem rekur vínveit-
ingastaðina enda er ekki alltaf
verið að kæra þetta fólk þó við
reynum að leiðbeina því“ sagði
Níels. Aðspurður kvaðst hann
ekki útiloka að brot á löggjöf-
inni stöfuðu af kunnáttuleysi
„enda vitum við að menn eru
ekki alltaf lesnir í þeint fræðum
sem þeir starfa við“ sagði hann
að lokum.
Pá hafði NT samband við
Baldur Möller, ráðuneytisstjóra
í dómsmálaráðuneytinu vegna
orðalags reglugerðarinnar.
Sagði Baldur að hér væri um að
ræða fyrsta dag stórhátíða kirkj-
unnar, þ.e. fyrsta dag jóla,
fyrsta dag páska og fyrsta dag
hvítasunnu en að auki föstudag-
inn langa og aðfangadag. Þetta
bæri því ekki að skilja þannig að
einungis væri um að ræða páska
og jól.
■ vio opnun synmgannnar. Meingrunur Hermannsson
ræöir viö aldnar kempur. HT-mynd Ámi [ijama
Ný sýning:
Saga skipanna
■ Sýningin Saga skip-
anna var opnuð í Háholti
nýlega. Það er Sædýra-
safnið sem stendur fyrir
sýningunni. Sýnd eru
gömul og ný báta- og
skipalíkön og myndir frá
sjósókn íslendinga. Þá var
, leitað liðsinnis Norð-
manna. Þaðan er kominn
kjörgripur hinn mesti, lík-
an af vðöagKkipi, fengið
að láni úr ftinu heims-
þekkta byggðasafni á Byg-
döj í nágrenni Oslóborg-
ar.
Sædýrasafnið hefur nú
tekið miklum stakka-
skiptum og er sýningin
liður í því að afla safninu
fjár, en mörg fjárfrek
verkefni bíða þar enn
óunnin þar á meðal fram-
tíðaraðstaða fyrir gott og
myndarlegt fiskasafn.
í tilefni sýningarinnar
hefur verið gefinn út bækl-
ingur sem geymir svip-
leiftur úr íslenskri skipa-
sögu.
Landssamband sjálfstæðiskvenna:
í skjóli einok-
unar þróast marg
vísleg spilling
■ Landssamband Sjálfstæðis-
kvenna fagnar þeim árangri sem
ríkisstjórnin hefur náð í efna-
hagsmálum segir í samþykkt
stórnarfundar. Þá er rakin hin
bága afkoma þjóðarbúsins við
viðskilnað ríkisstjórnar Gunn-
ars Thoroddssen: „Verðbólgan
130%, stöðvun atvinnurekstrar
og víðtækt atvinnuleysi yfirvof-
andi, erlend skuldasöfnun gífur-
leg og mikill halli á viðskiptum
við útlönd." Hinn góða árangur
beri að þakka „styrkri efnahags-
stefnu ríkisstjórnarinnar og
vilja þjóðarinnar til tímabund-
inna fórna til að koma á
skynsamlegri skipan fjármála í
landinu." Þá er því lýst hvernig
stjórnarandstaðan hafi notað
hvert tækifæri til að valda óróa
og upplausn og það rakið hvað
atvinnuuppbygging þurfi mikið
á arðsemi að halda.
Öngulstaðahreppur:
Akureyri og ríkið
semja um Laugaland
■ Undirritaður hefur verið á Laugalandi til 75 ára. Greiðir
samningur milli ríkisins og Ak- Akureyrarbær 4000 krónur á ári
ureyrarbæjar um nýtingu jarð- fyrir hvern sekúndulítra.
varmaáLaugalandi íEyjafirði. Samninginn má endurskoða
eftir 20 ár.
Með samningnum fær Akur- Boranir í landi Laugalands í
eyrarbær leiguafnot af jarðhita Öngulstaðahreppi hófust 1975.
Tilboð opnuð í ríkisvíxla
■ Tilboð í ríkisvíxla að upp-
hæð 30 milljónir voru opnuð
nýlega. Alls bárust 34 gild tilboð
og eitt ógilt. Gildu tilboðin eru
í 244 sett af víxlum, hvert að
nafnvirði 250 þús. krónur, sam-
tals 61 milljón kr. Tekið var
tilboðum í alla útboðsfjárhæð-
ina þ.e. 30 milljónir að nafn-
virði. Kaupverðið er28.333.735
kr. sem jafngildir 25.68% með-
alársvöxtum reiknuðum eftirá.
Þetta er lægsta meðalávöxtun
frá því að farið var að bjóða út
ríkisvíxla. Teknu tilboðin voru
á bilinu frá 236.000 til 236.500
kr. Næsta tilboð ríkisvíxla er
fyrirhugað í júlí.
Leiðrétting:
Kýrin var ekki
meðjúgurbólgu
■ Missagt var í blaðinu fyrir
helgi í grein með mynd að kýrin
hafi haft júgurbólgu. Hún hafði
bjúgbólgu sem er óskyldur kvilli
og veldur alls engri sýkingu í
kjötinu eða mjólkinni eins og
júgurbólgan. Orðin eru hljóm-
lík og gerði blaðamaður því
ekki greinarmun þarna á í sím-
tali við Guðmund bónda, eig-
anda kýrinnar. Biður blaðið
hann og aðra lesendur sína
velvirðingar á þessum leiðu
mistökum.
■ Kola, kýrin sem sagt var frá í blaðinu fyrir helgi, þjáðist ekki af
júgurbólgu eins og þá var haldið fram heldur bjúgbólgu sem er
óskyldur kvilli þó orðin séu hijómlík.