NT - 19.06.1984, Page 7
fíT Þríðjudagur 19. júní 1984 7
liL Fréttir
Hvað segja þeir
um NT-úttektina?
■ Fríðrik Sóphusson
■ t síðustu viku fjallaði
NT um horfurnar í kjara-
málum landsmanna og
ræddi við ýmsa helstu forsvars-
menn verkalýðshreyfingarinn-
ar. 1 kjölfar þeirrar umræðu var
haft samband við tvo forsvars-
menn ríkisstjórnarflokkanna,
þá Steingrím Hermannsson,
forsætisráðherra og Friðrik
Sóphusson, varaformann Sjálf-
stæðisflokksins, og þeir spurðir
álits á ummælum verkalýðsfor-
ystumanna.
Friðrik Sóphusson,
varaformaður Sjálfstæðis-
flokksins:
„Við verðum að hafa hugfast,
að verði kjarasamningunum
sagt upp á þessu ári og samið
um meira en til skiptanna er, þá
er verið að fylla út innistæðu-
lausa ávísun sem aðeins verð-
bólgan getur leyst út. Verömæt-
in verða nefnilega ekki til í
kjarasamningum. Láti verka-
lýðsforystan undan pólitískum
þrýstingi róttækustu aflanna og
efni til verkfalla, þvert ofan í
skoðanir meirihluta lands-
manna samkvæmt skoðana-
könnun, verða þeir að axla
ábyrgðina. Verkföll auka ekki
aflann í sjónum eða möguleika
fyrirtækjanna til að hækka laun.
Otímabær verkföll geta hins
vegar leitt til kosninga, ef sá er
tilgangurinn. Við verðumeinnig
aö hafa hugfast að verðbólgu-
hraðinn var 130% fyrir ári
síðan, nú er hann tíu sinnum
minni. Þessi árangur hefði
aldrei náðst nema vegna þess að
fólkið í landinu var tilbúið til að
taka á sig byrðar og færa fórnir.
Er þá ekki orðið tímabært að
rétta kjör þeirra lægstlaunuðu?
„Það er tímabært á öllum
tímum. En það er auðvitað ekki
hægt að greiða meira út en
atvinnureksturinn rís undir, án
þess að auka erlendar eyðslu-
skuldir eða setja atvinnu-
reksturinn á hausinn. Það er
ekkert svigrúm að svo stöddu."
Steingrímur Hermanns-
son, forsætisráðherra:
„Eg held, því miður, að við
þessar aðstæður í ár, þá gangi
það illa upp að hækka launin
verulega. Ríkisstjórnin hefur
reynt að sníða sínar aðgerðir að
því að halda sem mestum kaup-
mætti sem um var samið, og við
höfunr kannske gengið heldur
skentmra en við hefðurn átt að
gera til að loka fjá'rlagahallan-
um, einmitt til þess að ganga
sem minnst á þann kaupmátt
sem um var sarnið."
En hvað um kjör þeirra lægst
launuðu, er ekki orðið tímabært
að rétta þau?
„Ég held ég.megi fullyrða að
það hefur aldrei verið gert meira
fyrir þá sem lægstar tekjur hafa,
í tíð neinnar ríkisstjórnar. Þetta
er í fyrsta skipti sern gerð er
skipuleg athugun á því í samráði
við verkalýðshreyfinguna,
hverjir hafi lægstu launin. Sam-
kvæmt útreikningi verkalýðs-
hreyfingarinnar sjálfrar, þá
hækkuðu tekjur þeirra lægst
launuðu um 30% eða um það
bil, nteð greiðslu barnabótavið-
auka og persónuafslætti frá
skatti o.fl. Engu að síður er ég
sammála því, að það eru einmitt
þeir sem lægstu tekjurnar hafa
sem þyrftu að fá raunverulega
úrbót. En það virðist gerast
aftur og aftur í þessu þjóðfélagi,
að um leið og kjör þeirra lægst
launuðu eru bætt, þá byrjar
launaskrið í efri launaflokkun-
um. Og það er hlutur sem hið
opinbera ræður ákaflega illa
við."
■ Steingrímur Hermannsson
■ Fjölskyldan að Stuðlum árið 1896. Talið frá vinstri, Kristrún síðar Ijósmóðir, Valdór útgerðarmaður, Jón bóndi á Eyri í Reyðarfirði,
húsfreyjan Sigurbjörg Halldórsdóttir, Edvard búnaðarráðunautur og bóndi á Dhalgárd við Ósló, Hildur húsfreyja á Stuðlum, Pétur
kaupmaður á Siglufirði, Jónas bóndi og starfsmaður Sauðfjárveikivarna, heimilisfaðirinn Bóas Bóasson og Gunnar útvegsbóndi að
Bakkagerði í Reyðarfirði. Á myndina vantar eina dóttur þeirra hjóna, Guðrúnu Brunborg en af 11 börnum þeirra komust þessi 10 til
fullorðinsára.
Ættarmót á Austfjörðum
- niðjar Bóasar á Stuðlum koma saman
■ Dagana 6. til 8. næsta mán-
aðar hafa ættmenni og vensla-
fólk Bóasarættar frá Stuðlum í
Reyðarfirði ákveðið að hittast
á nokkurskonar kynningarhátíð
fyrir austan. Ættin er rakin frá
Bóasi Bóassyni og Sigurbjörgu
Halldórsdóttur en þau bjuggu
að Stuðlum um og fyrir síðustu
aldamót og eignuðust 11 börn
sem nú eru öll látin. Afkomend-
ur þeirra í dag eru yfir 1000
talsins þannig að búist er við
fjölmenni á mótinu.
Gist verður í tjöldum í Atla-
vík eða á Eddu hóteli fyrir þá
sem það vilja. Aðalhátíðin
verður svo á laugardaginn 8.
júlí en þá verður haldið inn að
Stuðlum og kunnugur ættingi
fenginn til að skýra frá staðhátt-
um og næsta umhverfi. Vitað er
að stór hópur Bóasarættarinnar
sem búsettur er í Noregi hyggur
á ferðalag hingað vegna móts
þessa. Þátttakendureru minntir
á að taka með sér minnisbók
Stuðlaættar 1984.
Samkeppni ferðaskrifstofa á Norðurlöndum:
Ferðaskrifstofa ríkisins í fyrsta sæti
■ Ferðaskrifstofa Ríkisins
hlaut nýlega fyrstu verðlaun í
samkeppni allra Norðurland-
anna um best skipulagðar
hring - hópferðir. Verðlauna-
ferðin er fimm daga ferð um
Suðvestur - og Suðurland þar
sem gist er á hótelum í Reyk-
holti, Laugarvatni, Hvolsvelli,
Skógum og Kirkjubæjar-
klaustri.
Verðlaunin eru veitt af Ferða-
málaráði Norðurlanda og er
þetta í fyrsta skipti sem þeim er
úthlutað og því sérstaklega
ánægjulegt að íslensk ferða-
skrifstofa skyldi hreppa fyrsta
sætið.
■ Lúdvig Hjálmtýsson fram-
kvæmdastóri Ferðamálaráðs ís-
lands afhendir Kjartani Lárus-
syni forstjóra Ferðaskrifstofu
ríkisins viðurkenningarskjalið.
Með þeim á myndinni er Birgir
Þorgilsson markaðsstóri hjá
Ferðamálaráði.
Málefni fatlaðra:
Víst getum við lært
af reynslu frænda vorra
í Skandinavíu
■ Fyrir nokkru var haldinn í
Reykjavík stjórnarfundur
Nordiska forbundet för psysisk
utveclingshámning (NFPU),
sem eru norræn samtök um
málefni vangefinna. Lands-
samtökin Þroskahjálp eru aðili
að þeim samtökum fyrir íslands
hönd og stóðu þau fyrir þeim
fundarhöldum sern hér um
ræðir.
Um svipað leyti fundaði einn-
ig í. Reykjavík Norræna sarn-
vinnuráðið um málefni vangef-
inna, en það er fulltrúaráð norr-
ænna foreldrafélaga, stofnað
78, í framhaldi af því að for-
eldrum þótti áhrifa sinna ekki
gæta nægilega í NFPU, þar voru
embættismenn og sérfræðingar
of ráðandi. Það hefur reyndar
breyst síðan.
Einn megintilgangur funda á
borð við þessa er að skiptast á
skoðunum og reynslu t.d.
greindu fulltrúar frá þjónustu
við þroskahefta og fjölskyldur
þeirra hvað varðar t.d. skamm-
tímavistanir og stuðningsfjöl-
skyldur. Svo eru nefndar fjöl-
skyldur sem taka að sér fatlaða
um skemmri eða lengri tíma
t.d. um helgar eða í sumarfrí-
um, til hvíldar hinum eiginlegu
fjölskyldum þeirra.
Mjög mikilvægt er fyrir ís-
lendinga að taka þátt í samstarfi
sem þessu, því enn stöndum við
alllangt að baki nágrönnum
okkar í Skandinavíu hvað varð-
ar þjónustu við vangefna og
foreldra þeirra og getum margt
lært af reynslu þeirra.
Athugasemd
■ Jón Kjartansson, forstjóri
ÁTVR, hafði samband við blað-
ið og vildi gera athugasemd við
umrnæli, sem höfð voru eftir
honum í frétt sem birtist á
föstudaginn. Hann sagðist alls
ekki hafa meint að hann vildi
ekki ræða það við blaðamenn
hvað réði vali á því hvaða
víntegundir væru seldar í út-
sölum ÁTVR. Heldur sagðist
hann hafa sett sér þá reglu að
ræða þessi mál ekki í síma við
blaðamenn. Þeim væri hins veg-
ar velkomið að heimsækja sig á
skrifstofuna til að leita upplýs-
inga.
Happdrætti
Krabbameinsfélagsins
Vinningsnúmer 17. júní 1984
Mercedes Benz bifreið: 134638
Honda Civic bifreið: 15476
Bifreiðar fyrir 320 þús. kr:
24626 110133 140151 170004
Sinclair Spectrum heimiiistölvur:
4657 37377 65638 104132 125356 155893
10770 37975 72532 105068 129883 157130
14058' 56644 73540 107662 139123 157189
14109 59052 85091 109122 141298 169276
14387 59835 88339 113486 146820 172747
15069 61148 89708 114769 149118
27305 63139 91055 115571 149718
29900 63892 96129 119686 151849
35074 65539 97023 120730 153975
Handhafar vinningsmiða framvísi þeim á skrifstofu Krabba-
meinsfélags Reykjavfkur að Tjarnargötu 4,4. hæð, sími 19820.
Krabbameinsfélagið þakkar landsmönnum veittan stuðning.