NT - 19.06.1984, Side 25
Þriðjudagur 19. júní 1984 25
Utlönd
Sovétríkin:
Dagblaðið Bild:
Birtir nýja Ijós-
mynd af Sakharov!
Rússum fækk-
ar lítið
- en fólki af öðrum þjóð-
ernum þeim mun meira
Bonn-Reuter
■ Vestur-þýska dagblaðið Bild hélt því fram í gær að því
hefði borist ný Ijósmynd af Andrei Sakharov sem sýndi að
hann væri á lífi. Þá skýrði blaðið einnig frá því að það
hefði fengið mynd af konu Sakharovs, Yelena Bonner.
Blaðið, segist hafa fengið í almenningsgarði í Gorky, þar
myndirnar frá sovéskum blaða- sem Sakharov hefur verið í
manni, Viktor Louis, og væru útlegð frá árinu 1980, klæddan í
þær teknar 12. og 15. júní. ullarpeysu með kuldaúlpu yfir
Myndin af Sakharov sýndi hann handleggnum, og hefði Sakha-
rov greinilega horast mikið.
Myndin af Bonner sýnir hana
standa fyrir framan bíl með
strætisvagn í baksýn.
Louis ábyrgist að myndirnar
séu ófalsaðar og sagðist Bild
myndi birta þær í dag. Bild
hafði það einnig eftir Louis,
sem hefur tengsl við háttsetta
embættismenn í sovéska
kommúnistaflokknum, að
stjórnvöld íhuguðu að leyfa er-
lendum læknum að rannsaka
Sakharov.en fyrst yrði hann að
komast til fullrar heilsu.
Vinir Sakharovs á Vestur-
löndum héldu því fram að hann
væri í hungurverkfalli til að
leggja áherslu á kröfur um að
Yelena Bonner fengi að leita
sér lækninga á Vesturlöndum.
Þá hefur verið uppi sterkur
orðrómur um að Sakharov væri
látinn.
■ Rússar hafa áhyggjur
af þróun mannfjölgunar í
Sovétríkjunum. Nú hefur
verið stofnuð sérstök deild
við Moskvuháskóla þar
sem rannsóknir fara fram
á fólksfjölgun, eða fækkun
og hvernig bregðast eigi
við óæskilegum hreyfing-
um í þeim efnum.
í Sovétríkjunum standa
málin þannig að þeir sem
litla menntun hafa hlotið
og búa við verri skilyrði
eignast mun fleiri börn en
þeir sem aflað hafa sér
menntunar og hafa betri
tekjur.
Einnig veldur það
nokkrum áhyggjum að
þeir þegnar Sovétríkjanna
sem ekki eru af slavnesku
bergi bortnir eru mun fjó-
samari en Rússar, Hvít-
Rússar og Úkraníumenn.
Ein af orsökum þessa er
talin að þeim borgum sem
Rússar og Úkraínumenn
byggja eru víða mikil
húsnæðisvandræði og í
mörgum tilvikum búa ung
hjón í einu herbergi hjá
foreldrum annars hvors
þeirra. Barneignir bæta
síst úr húsnæðisþrengslun-
Mondale í varaforsetaleit:
Vill konu eða
blökkumann
North Oaks, Minnesota-Keuter
■ Walter Mondale hefur boð-
ið Tom Bradley, borgarstjóra
Los Angelesborgar, til við-
ræðna um hugsanlegt framboð
Bradleys sem varaforseti
demokrata.
Bradley, sem er blökkumað-
ur, bættist þar með í hóp öld-
ungadeildarþingmannsins Loyd
Bentsen og Dianne Feinstein
borgarstjóra San Francisco.
Mondale hefur gefið grænt Ijós
á þau sem hugsanleg vara-
forsétaefni.
Með því að bjóða Bradley til
til minnihlutahópa sem studdu
Jesse Jackson í kosningabaráttu
hans Og með því að velja
blökkumann , eða konu sem
varaforsetaefni gæti Mondale
leikið sterkan upphafsleik í bar-
áttu sinni við Ronald Reagan í
forsetakosningunum í haust.
■ Atkvæði í kosningum til Evrópuþingsins voru talin í gær. Á myndinni eru atkvæði í Dan-
mörku talin, í Svanemöllehallen í Kaupmannahöfn. Poifoio - Sinwmynd
Sveifla til
öfgaflokka
Brussel-Rcuter
■ Allir stærstu stjórnmála-
flokkarnir, nema sósíalistar
töpuðu fylgi í kosningunum til
Evrópuþingsins í Strassburg.
Úrslit kosninganna sýndu
sveiflu til sósíalískra flokka og
öfgaflokka, m.a. fengu græn-
friðungar í Þýskalandi, Hol-
landi og Belgíu kjörna þing-
menn og hægri öfgamenn í
Frakklandi.
Mjög lítil kjörsókn var víðast
hvar í þeim löndum sem aðilar
eru að Efnahagsbandalagi
Evrópu. Aðeins í Danmörku
var kjörsóknin meiri en árið
1979 þegar síðast var kosið og
þar bættu íhaldsmenn við sig
manni.
Evrópuþingið í Strassburg
hefur verið valdalítið og er talið
að þessar kosningar muni völd
þess enn minnka. Er óttast að
öfgahópar hafi þau áhrif að
minna mark verði tekið á þing-
inuen áðurog eins er talið að
kosningarnar í hverju landi fyrir
sig hafi frekar snúist um málefni
innanlands en Evrópu í heild og
sé það merki um áhugaleysi
kjósenda á Evrópuþinginu.
■ Þó íslendingar kvarti yfir sólarleysi og kuldum er ástandið þó ekki svona slæmt. Þessi mynd var
tekin fyrir nokkrum dögum af vegagerðarmönnum í Swiss þegar þeir opnuðu veginn milli Grimsel og
Neufenen svo sumaraksturinn gæti gengið óhindraður. polfoto -símamynd
, •*»*& »*<* f"
Bandaríkin af>
neita njósnaf lugi
New York-Reuter
■ Varnarmálaráðherra
Bandaríkjanna, Casper
Weinberger, sagði í gær að
frétt sem brCskt tímarit birti
um að suður-kóreanska far-
þegaflugvélin sem sovét-
menn skutu niður fyrir ári
hefði verið í njósnaflugi, væri
hreinræktuð lygi.
Tímarítið hélt því fram að
flugvélin hefði verið látin
fara yfir sovéskt yfirráða-
svæði til að gabba Rússa til
að setja rafe indastýrt loft-
varnakerfi í gang og Banda-
ríkjamenn gætu þannig náð
upplýsingum um kerfið í
gegnum geymskutluna
Challenger og bandarískt
njósnagervitungl.
Weinberger sagði í viðtali
við CBS sjónvarpsstöðina
að tímaritið hefði gleypt lygar
sem sovétmenn birtu eftir að
flugvélin var skotin niður.
Sovétmenn hefðu, síðan
þessi atburður gerðist, verið
að reyna að breiða yfir þá
staðreynd að þeir hefðu myrt
269 manns án nokkurrar
ástæðu.
Pandabirnir á
Ólympíuleikana
Los Angeles-Reuter
■ Kínverjar ætla að senda
tvo pandabirni á Ólympíu-
leikana í Los Angeles, þar
sem þeir verða hafðir til
sýnis í dýragarði meðan á
leikunum stendur. Þeir
verða síðan sendir í sýning-
arferð um Ameríku.
„Þetta er mikill heiður fyr-
ir þær 142 þjóðir sem senda
íþróttamenn á Ólymíuleik-
ana“, sagði Tom Bradley,
borgarstjóri Los Angeles-
borgar í viðtali.
Tveir pandabirnir eru í
þjóðardýragarðinum í Was-
hington en Nixon fyrrver-
andi forseti fékk þá að gjöf
þegar hann fór í sögulega
heimsókn til Kína árið 1972.
Aðeins um 1000 pandabirnir
eru taldir lifa villtir í Kína og
þeir eru í útrýmingarhættu
vegna skorts á bambus sem
er þeirra aðalfæða.