NT


NT - 18.07.1984, Side 1

NT - 18.07.1984, Side 1
■ Eitt hundrað villtir íslenskir refir, flestir af hvíta íslenska heimskautarefakyninu, voru fluttir með flugvélum til Noregs í gærdag. Það er Samband íslenskra loðdýraræktenda sem stóð fyrir þessum flutningum, en undanfarið hefur það safnað þessum yrðlingum saman til að selja loðdýrabónda í Rogalandi í Noregi. Ætlar bóndinn að blanda þeim íslenska við silfurref, en með því fæst verðmikið skinnafbrigði sem nefnt hefur verið Golden ísland. M-mvnd: Kóbcrt. Flestir útgerðarmenn á Austfjörðum: Ákveða stöðvun tog ara sinna 24. júlí ■ Útgerðarmenn ellefu tog- skipa á Austfjörðum hafa ákveðið að sigla skipum sínum í höfn 24. júí vegna þess að rekstrargrundvöllur útgerðar- innar er svo slæmur. Verði af þessum aðgerðum má gera ráð fyrir að flskvinnsla á Neskaup- stað, Seyðisfirði, Stöðvarfírði, Eskifirði og Reyðarfirði leggist að mestu leyti niður í byrjun ágúst, og meirihluti vinnandi fólks á fjörðunum missi atvinn- una. „Þetta tekur okkur mjög sárt, en við getum ekki staðið að þessu lengur vegna þeirra skuld- bindinga sem því fylgja. Það væri ábyrgðarleysi að halda þessu áfram svona,“ sagði Ólaf- ur M. Ólafsson, útgerðarmaður á Seyðisfirði í samtali við NT í gærkvöldi. „Rekstrargrund- völlurinn er algjörlega brostinn, enda talað urn að tapið sé nú um 15% að meðaltali," bætti hann við. Guðjón Smári Agnarsson, út- gerðarmaður á Stöðvarfirði, tók í sama streng. „Það er nauðsyn- legt að breyta rekstrargrund- velli sjávarútvegsins, en hann býr nú við alveg fastar tekjur á meðan aðrir geta hækkað verð á vörum sínum og hækkað kostnað okkar.“ Talið er að olíukostnaður togaranna nemi nú 30-35% af tekjum þeirra. Logi Kristjánsson, bæjar- stjóri á Neskaupsstað, sagði að bæjaryfirvöld þar hefðu miklar áhyggjur af því ástandi sem skapaðist ef skip síldarvinnsl- unnar hættuveiðum. Þegarsíld- arvinnslan, „móðurskipið“,yrði að loka, þá myndi atvinnulíf staðarins smátt og smátt stöðvast. En 55-60% af vinn- andi fólki á Neskaupstað starfar hjá fyrirtækinu. Á Seyðisfirði mun um 60% af vinnandi fólki missa atvinnuna í framhaldi af veiðistöðvun, og um 70% af fólki á Stöðvarfirði. Útgerðarmenn togaranna á Djúpavogi, Fáskrúðsfirði, Breiðdalsvík og Vopnafirði skoruðust undan að taka þátt í veiðistöðvuninni 24. júlí. Að sögn Gunnlaugs Ingvarssonar hjá Búlandstindi á Djúpavogi er það þó ekki vegna þess að þeir séu á annarri skoðun um rekstrargrundvöll útgerðarinn- ar. Þeir vildu aðeins reyna að þrauka lengur við veiðar. Þrír galvaskir Kanadamenn: Róið á kajökum til Vestfjarða ■ Þrír galvaskir ferðalangar á kajökum komu róandi til Akraness nýlega. Þeir sögðust vera fra' Kanada, en væru að koma úr Reykjavík og ætluðu síðan að róa vestur á firði. Erindið á Skaga sögðu þeir að fá sér gott vatn á vatnsbelgi sína. Að því loknu réru þeir rösklega ábraut og hurfu í NV-átt. NT-mynd Stcfán Lárus. Súluhlaup: Hringveg* urinn ekki í hættu ■ Vatnið í ánni Súlu, sem byrjaði að hlaupa fram í fyrrinótt, var síðdegis, í gær orðið jafn hátt varn- argörðunum uppi við Lómagnúp. Þjóðvegurinn var þó ekki enn í neinni hættu og ekki var hægt að merkja hækkun á vatns- borðinu. Súluhlaupið nú hefur ekki náð stærð hlaupsins í fyrra. Þá runnu fram rúm- lega tvö þúsund tenings- metrar af vatni á sekúndu, þegar mest var, og var það stærra en hlaup í mörg ár næst á undan. Þrír menn frá Orku- stofnun fóru austur að Súlu í gærkvöldi til að kanna aðstæður og taka sýni. Sjá fasteignaaug- lýsingarábls.9-17 Ásgarðsjörðin keypt fyrir Grímsneshrepp? fjársterkir aðiiar á höfuðborgarsvæðinu vilja styrkja kaupin ■ Fjársterkir aðilar haf lýst vilja sínunt til að styrkja Grímsneshrepp til að kaupa jörðina Ásgarður sem hreppn- um býðst til kaups samkvæmt forkaupsrétti. Eins og skýrt hefur verið frá féllst Hæstirétt- ur á kröfu jarðareigenda um kaupverð sem er 15 milljónir króna. Að sögn Böðvars Pálssonar varaoddvita er um að ræða fleiri en einn aðila. Hefur einn þeira sælst eftir veiðihlunn- indum í ánni til eignar en annar hefur áhuga á landskika fyrir vikið. Almennur sveitar- fundur verður um kaupin í kvöld og þá væntanlega mótuð afstaða til þeirra. Ástæða þess að Grímsness- hreppur sækir svo stíft að kaupa jörðina þrátt fyrir óhag- stætt verð er að sögn Böðvars hversu mikið land hefur þegar horfið úr sveitarfélaginu í eigu utansveitarmanna en hinar miklu sumarbústaðalendur austan við Sog sem allir kann- ast við teljast til Grímsness. Eru bændur uggandi um að tapa enn einni jörðinni úr byggð í hendur utanhreppsbúa en á Ásgarði hefur til þess verið rekinn blómlegur bú- skapur. Annar sakborn- ingurinn játar - að hafa stolið bankabók- um frá fógetaembættinu ■ Játning mun nú liggja fyrir hjá öðrum mannanna tveggja sem sitja í gæsluvarð- haldi, grunaðir um aðild að stuldi bankabóka í vörslu bæjarfógetaembættisins í Reykjavík. Heimildir NT herma hins vegar, að hinn neiti staðfastlega að vera við- riðinn málið. Bankabækurnar, sem hér um ræðir voru í vörslu skipta- ráðanda og komst upp um hvarfið í byrjun mánaðarins, þegar reynt var að taka fé útaf einni þeirra í banka í Reykjavík. Rannsóknarlög- reglu ríkisins var tilkynnt um málið og hefur síðan verið unnið ötullega að lausn þess.

x

NT

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: NT
https://timarit.is/publication/305

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.