NT - 18.07.1984, Blaðsíða 3
Miðvikudagur 18. júlí 1984 3
íslensk lyfjaglös á heimsmarkað:
Utlendingar
fá hagnaðinn
■ Jóhannes Pálsson, íslenskur
uppfínningamaður búsettur í
Kaupmannahöfn, hefur gert
samning við tvö stórfyri rtæki, ann-
að danskt og hitt bandarískt, um
að framleiða og dreifa pilluglösum
með sérstökum öryggisloka, sem
hann fann upp og hefur einkaleyfi
á. Danska fyrirtækið mun fram-
leiða fyrir Evrópumarkað en það
bandaríska fyrír Bandaríkjamark-
að.
„Þetta eru stór fyrirtæki sem
ætía sér að setja milljónir í kyningu
og framleiðslu á glösunum. Ég er
auðvitað mjög ánægður með þetta
enda hef ég lagt margra ára vinnu
í að koma þessari uppfinningu
minni á heimsmarkað,“ sagði Jó-
hannes þegar NT sló á þráðinn til
hans í Kaupmannahöfn í gær.
Jóhannes sagði að samningurinn
hefði verið undirritaður fyrir nokkr-
um dögum. Þá hefði hann verið
búinn að ræða við fjölda fyrirtækja
sem sýnt hefðu uppfinningunni
áhuga. „Það er gífurlegt verk að
koma svona á framfæri. Fyrst
skoða fyrirtækin hlutinn og gera
upp við sig hvort yfir höfuð er
grundvöllur fyrir framleiðslunni.
Síðan taka við flóknir samningar,
sem geta tekið langan tírna," sagði
Jóhannes.
Þegar hann var spurður hvað
hann fengi í sinn hlut út úr samn-
ingnum sagðist hann enn eiga
langt í land með að verða milljóna-
mæringur. „Ég fæ dágóð laun frá
og með undirskriftinni og þegar
framleiðslan og salan er hafin fæ
ég ákveðna prósentu. Þannig að
það fer allt eftir því hvernig gengur
hvað ég fæ út úr þessu. En ég hef
ekki ástæðu til að ætla annað en
það verði þó nokkuð því að fyrir-
tækin leggðu varla út í þetta nema
þau hefðu trú á að framleiðslan
seldist," sagði hann.
Þegar Jóhannes var spurður
hvers vegna hann hefði ekki selt
íslensku fyrirtæki framleiðslurétt-
inn sagðist hann frá upphafi hafa
viljað það. En það væri grátleg
staðreynd að íslendingar hefðu
enn ekki áttað sig á bví að uppfinn-
ingar væru vaxtarbroddur alls iðn-
aðar, en það hefðu til dæmis Danir
vitað í aldir.
Um aðrar uppfinningar sínar
vildi Jóhannes lítið segja annað en
það að framsýnir aðilar á íslandi
hefðu sýnt öryggislás á lyfjaskápa,
sem hann hefði fundið upp fyrir
nokkrum árum, mikinn áhuga. En
hvað úr yrði væri ómögulegt að
segja strax.
„Annars hefur allur minn tími
undanfarna mánuði farið í þessa
samninga svo að ég hef sannast
sagna ekki haft tíma til að sinna
öðrum uppfinningum mínum. En
nú mun ég snúa mér að þeim af
fullum krafti."
■ Eftir margra ára streð sér Jóhannes nú loksins fram á að
lyfjaglösin hans komist á alheimsmarkað. Hann segist þó eiga
nokkuð langt í land með að verða milljónamæringur.
Úttekt á kjörum einstæðra foreldra:
Ófaglærðir, hús-
næðislausir og með
tvöfalt vinnuálag!
- á meðan hitt foreldrið sleppur með meðlagið
■ Rúm 80% einstæðra foreldra
vinna 40 stunda vinnuviku eða
meira auk þeirra 30 stunda sem
er vinnustundafjöldi þeirra við
börnin að meðaltali. Álíka
margir vinna við ófaglærð störf
og um 70% hafa enga fram-
haldsmenntun. Helmingur býr
ekki í eigin húsnæði en 10% hjá
samanburðarhópum og rúmur
þriðjungur heldur ekki sjálf-
stætt heimili heldur býr hjá
aðstandendum.
Þetta er meðal upplýsinga
sem koma fram í nýlegri skýrslu
sem félagsmálaráðuneytið hefur
látið vinna um kjör og félagslega
aðstöðu einstæðra foreldra. Fé-
lagsvísindadeild Háskóla ís-
lands vann könnunina og voru
sendir út spurningalistar til 10%
þeirra 6250 einstæðu foreldra
sem skráðir eru en aðeins 57%
þeirra svöruðu og er sýnt að
færri einstæðir foreldrar eru í
landinu en opinberar tölur gefa
til kynna.
Yfirgnæfandi meirihluti ein-
stæðra foreldra er konur, eða
um 93%, og af könnuninni má
ráða að aðstoð hins foreldrisins
við fjölskylduna sé óveruleg
þegar meðlagi sleppir. Rúmur
helmingur einstæðra foreldra
hefur tvö eða fleiri börn á
framfæri sínu og af þeim hópi
eru um 20% sem hafa þrjú eða
fleiri. Samanburður á kjörum
einstæðra mæðra og feðra er
ekki gerður í skýrslunni þar eð
feðurnir eru of fáir til að slíkur
samanburður gæti talist raun-
hæfur. Hjá Jóhönnu Kristjóns-
dóttur formanni félags ein-
stæðra foreldra fengust aftur á
móti þær upplýsingar að sam-
kvæmt minni háttar könnunum,
sem félag hennar hefði gert, þá
væru kjör feðra með börn á
framfæri miklum mun betri.
■ Liðið sem keppa mun á
Evrópumóti ungra spilara í
bridge. Aðalsteinn Jörgensen,
Runólfur Pálsson, Sigurður Vil-
hjálmsson, Sturla Geirsson og
Jón Baldursson fararstjóri.
NT-mynd Árni Bjarna
■ Danskur ferðamaður lést úr
hjartaslagi á Kjalvegi í fyrra-
kvöld. maðurinn var þar á ferð
ásamt fleira fólki á tveimur
bílum.
Bíll frá vegalögreglunni, sem
var í Varmahlíð fór á staðinn
Ungir bridge
spitarar
■ Landslið ungra spilara í
bridge lagði af stað í morgun til
Belgíu en þar mun Evrópumót
ungra spilara hefjast á föstu-
dagskvöld. íslenska liðið er
skipað þeim Aðalsteini Jörgens-
en, Runólfi Pálssyni, Sigurði
Vilhjálmssyni og Sturlu Geirs-
syni, en fyrirliði er Jón Baldurs-
son.
Evrópumótið veðrur haldið í
bænum Hesselt og er það 9. í
röðinni. ísland hefur sent lið á
sex Evrópumót ungra spilara og
hafa yfirleitt endað rétt fyrir
neðan miðjan hóp. Besti árang-
ur er 6. sætið árið 1980.
Að þessu sinni senda 19 Evr-
ópuþjóðir lið á mótið. Spiluð
verður einföld umferð með 20
spila leikjum og stendur mótið
yfir í viku.
Núverandi Evrópumeistarar
ungra spilara eru Pólverjar.
eftir að hjálparbeiðni hafði bor-
ist til Slysavarnafélagsins. Lög-
reglumennirnir kvöddu til þyrlu
frá varnarliðinu til að sækja
manninn, sem lést skömmu eftir
komu hennar. Hinn látni var
sextugur.
Danskur ferðamaður deyr á hálendinu
Bandaríska sendi-
nefndin um
varnarliðsflutningana
farin heim:
Gerir tillögur
til bandarískra
stjórnvalda
eftir 2 vikur
■ „Þetta er sérfræðinganefnd,
og ekki hér til að taka ákvarðan-
ir. En við teljum heimsóknina
hingað hafa verið mikilvæga, og
mikilvægt að heyra viðhorf ís-
lenskra stjórnvalda til málsins.
Við höfum fengið nokkrar hug-
myndir frá íslenskum stjórn-
völdum og munum taka þær
með okkur til Washington þar
sem þær verða skoðaðar nánar.
En síðan munum við gera okkar
tillögur til bandarískra stjórn-
valda um lausn málsins," sagði
Martin Wenick, deildarstjóri í
Norður-Evrópudeild bandaA
ríska utanríkisráðuneytisins, og
foringi tíu manna sendinefndar
sem í gær lauk viðræðum við
utanríkisráðherra og íslensku
skipafélögin um flutninga fyrir
varnarliðið.
Wenick sagði á blaðamanna-
fundi að vegna lagalegra hliða
málsins myndi úrvinnsla sendi-
nefndarinnar taka sinn tíma
þegar heim kæmi. Marshall Bre-
ment sendiherra bætti því við
að málinu yrði flýtt og veittur
forgangur. Mun búist við að
nýjar tilögur í málinu liggi fyrir
eftir tvær til þrjár vikur.
Fram kom að fyrir tveimur
vikum hefði Richard Lugar,
þingmaður frá Indiana, flutt
viðaukatillögu við fjárveitinga-
frumvarp í bandarísku öldunga-
deildinni, um undanþágur frá
þeim siglingalögum sem breyt-
ingar á varnarliðsflutningunum
byggðust á; hefði þessi tillaga
opnað íslensku skipafélögunum
aftur leið að flutningunum. Til-
lagan var liins vegar dregin til
baka þegar Ted Stevens, þing-
maður frá Alaska, hótaði að
koma í veg fyrir afgreiðslu
hennar með málþófi.
Jón Hákon Magnússon,
deildarstjóri hjá Hafskipum,
sagði í gær að hann væri ekki of
bjartsýnn um lausn málsins. Þó
hefði greinilega verið kominn
annar og betri tón í viðræðurnar
í gær, og skilningur Bandaríkja-
mannanna á afstöðu íslending-
anna glæðst.
hæöir og brýr
eru vettvang-
ur margra um-
feröarslysa. Viö
slikar aöstæöur
þarf aö draga úr
ferö og gæta þess aö
mætast ekki á versta
staö.
|JUIj*FERÐAR
Einstæðir foreldrar segja frá:
Flutti þrisvar á 10 mánuðum
■ Hér á eftir er vitnað í brot af þeim
frásögnum sem eru í skýrslunni.
„Áður lifði ég lífinu eins og hver
annar unglingur en nú vinn ég mikið
og lengi. Kem oftast heim í fyrsta lagi
klukkan níu. Þá elda ég mat og
gargast svolítið í barninu áður en við
sofnum. Vöknum síðan upp dauð-
þreytt daginn eftir. Á sunnudagsmorgn-
um geri ég verkin fyrir vikuna. Ég
er alltaf dauðþreytt.“ Þannig segir
móðir á þrítugsaldri með eitt barn á
framfæri frá og í skýrslunni um kjör
einstæðra foreldra er fjöldi annarra
tilvitnanna í frásagnir þeirra sem
könnunin nær til. „... Skilnaðurinn
kom flatt upp á mig og ég var rétt búin
að fæða seinna barnið, átti fyrir ungt
barn. Ég flutti þrisvar fyrstu 10 mán-
uðina, áður en ég komst í eigið
húsnæði...“, segir móðir á fertugs-
aldri með tvö börn á framfæri.
„Þegar ég varð einstæð móðir þurfti
ég að hætta námi til að sjá fyrir mér
og barni mínu. (Ég átti eftir þrjár
annir í stúdentinn). Mér finnst mikið
álag að þurfa að hugsa ein um uppeld-
ið.“ - Móðir á þrítugsaldri með eitt
barn á framfæri. „Það þyrftu að vera
námslán fyrir einstæða foreldra í
framhaldsskólanámi, því margir ein-
stæðir foreldrar eru svo ungir, og þó
þeir séu ungir þá geta þeir líka
bugast“, segir önnur í svipaðri að-
stöðu en til þessa hafa námslán ekki
verið veitt fyrr en á háskólastigi eða
þegar nemi hefur náð 20 ára aldri.
Stuttur afgreiðsluf restur.
Dæmi um uerð á hurð 3x3 með
öllum járnum frá kr. 28,690.
Mótordrif
frá kr. 14.700,-
ASTRA
Síðumúla 32,
sími 68-65-44.
VERÐLÆKKUN!
Á hurðum fyrir skemmur og vélageymslur
Getum nú boðið stálhurðir.
einangraðar með Polyurethane,
á stórlækkuðu verði.