NT

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

NT - 18.07.1984, Qupperneq 23

NT - 18.07.1984, Qupperneq 23
Miðvikudagur 18. júlí 1984 23 Raðauglýsingar Útlönd ökukennsfa Ökukennsla og æfingatímar Kenni á Audi ’82. Nýir nemendur geta byrjað strax og greiða aðeins tekna tíma. Æfingatímar fyrir þá sem hafa misst réttindi. Æfing í borgarakstri. Greiðslukjör. Lærið.þarsem reynsJan er mest. .Símar 27716 og 74923. Ökuskóli Guðjóns Ó. Hanssonar. . _ . fundir Verkakvenna- félagið Framsókn Félagsfundur fimmtudaginn 19. júlí kl. 20.30 í Iðnó. Fundarefni: 1. Uppsögn á kaupliðum samning- anna. 2. Önnur mál. Sýnið skírteini við innganginn. Stjórnin atvinna - atvinna Getum tekið börn í sveit á aldrinum 7-10 ára. Upplýsingar í síma 99-6910. Borgarneshreppur - Aðalbókari Starf aðalbókara hjá Borgarneshreppi er laust til umsóknar. Umsóknir um starfið þurfa að hafa borist skrifstofu Borgarneshrepps fyrir 2. ágúst n.k. Allar nánari upplýsingar veitir undirritaður Borgarnesi 17. júlí 1984 Sveitarstjórinn í Borgarnesi Atvinna 2 menn óska eftir að taka að sér mótarif í aukavinnu. Upplýsingar í síma 75108. ^^Starf fram- ^kvæmdastjóra Starf framkvæmdastjóra Náttúruverndarráðs er laust til umsóknar frá 1. september nk. Laun skv. launakerfi opinberra starfsmanna. Umsóknir með ítarlegum upplýsingum um menntun og fyrri störf óskast sendar formanni Náttúruverndarráðs á skrifstofu ráðsins, Hverfisgötu 26,101 Reykjavík, fyrir 5. ágúst nk. Náttúruverndarráð. Mitterrand stokkar upp: Ný stjórn tekur við í Frakklandi Vafasamt að kommar fái að fljóta með Paris-Reuter. ■ Pierre Mauroy forsætisráð- herra Frakklands baðst í gær lausnar fyrir ráðuneyti sitt og varð Mitterrand forseti þegar við beiðninni og fól Laurent Fabius, iðnaðarráðhera að mynda nýja ríkisstjorn. Fabius er aðeins 37 ára að aldri og yngsti forsætisráðherra Frakk- lands á síðari tímum. Það hefur lengi legið í loftinu að stjórnarskipti yrðu í Frakk- landi en samt kom á óvart hve snögglega málið gekk fyrir sig. Það var ekki fyrr en undir kvöld að tilkynning var gefin út um að forsetinn hefði fallist á lausnar- beiðnina. Nýji forsætisráðherr- ann mun ekki leggja ráðherra- lista sinn fyrir forsetann fyrr en í dag. Fabius hefur verið náinn sam- starfsmaður Mitterrands og hef- ur forsetinn mikla trú á honum. í mars s.l. var starfssvið embætt- is hans fært út og jafnframt því að vera iðnaðaráðherra var hann gerður að ráðherra tækni- legra framfara. Miklar vangavéltur eru nú uppi um hvort kommúnistar verði áfram í frönsku ríkis- stjórninni. Þeir hafa orðið fyrir miklum áföllum undanfarið og hlutu aðeins 11% atkvæða í nýafstöðnum kosningum til Evrópuþingsins og hefur fylgi þeirra ekki verið svo lítið í 60 ár. Sósíalistaflokkurinn hefur þingmeirihluta og þarf því ekki kommanna við. Efnahagsörðugleikar steðja að frönsku stjórninni og illa hefur gengið að efna kosninga- loforðin sem heitið var fyrir kosningarnar 1981. Tvö ár eru nú til næstu þingkosninga og mun Mitterrand telja að ekki veiti af að stokka upp stjórnar- stefnuna og mynda stjórn nteð nýjum mönnum og nýjum hug- myndum. Verkefni nýju stjórnarinnar verður að endurnýja iðnaðinn og auka framleiðsluna, vinna bug á sívaxandi atvinnuleysi og koma efnahagsmálunum á réttan kjöl. Það var mikið áfall fyrir ríkis- stjórn Mauroy þegar Mitterrand lét draga til baka frumvarp um breýtingar á menntamálunum og þrengja að einkaskólum. Frumvarp þetta olli miklum mót- mælurn og í fyrradag bauðst menntamálaráðherrann til að segja af sér og var búist við að forsætisráðherra tæki afstöðu til afsagnarinnar í gær. En ekki kom til þess þar sem allt ráðu- neytið sagði af sér. Fabian hefur verið undir sér- stökum verndarvæng Mitterr- ands, og hann hefur látið hafa efitr sér að enginn maður sé betur til þess fallinn en Fabian, að útfæra hugsanir sínar. Hinn ungi forsætisráðherra á erfitt ■ Skæruliðar í Perú sem kenna sig við Maó formann gerður margar árásir í fyrrinótt og m.a. rufu þeir rafstraum á nokkrum stöðum og varð þriðj- ungur landsins rafmagnslaus um skeið. Aðaláherslu lögðu skæru- liðarnir á að ráðst á sovésk fyrirtæki og stofnanir í stærstu borgunum. í Lima og Ariqueba sprungu að minnsta kosti 15 sprengjur. Meðal bygginga sem skemmd- ust voru skrifstofur Aeroflot og Novosti fréttastofunnar og ■ Mitterrand forseti hefur endaskipti á ríkisstjórninni og velur nú nýja menn með nýjar hugmyndir. verkefni fyrir höndum. Hann þarf að vekja tiltrú á sósíalista- flokknum á ný, en hún hefur farið mjög þverrandi á tveggja ára stjórnarferli þeirra, en áður höfðu sósíalistar verið utan stjórnar í 25 ár. Stjórnmálarýnendur í París segja að val Mitterrands sýni að forsetinn ætli sér að fara eigin götur til að endurskapa efna- hagsmálin og leita þar nýrra leiða og færa staðnaða hugmynda- fræði sósíalista í nútímahorf. Ekkert hefur verið látið uppi um hvorl einhverjir af fráfar- andi ráðherrum verði í nýju stjórninni, en talsamður Fabi- ans sagði í gærkvöldi að alltaf væri rúm fyrir góða menn eins og Delros fjármálaráðherra. En stöðnuð hugmyndafræði stend- ur honum ekki fyrir þrifum. bækistöðvar menningartengsla Sovétríkjanna og Perú. Maoist- arnir telja Sovétríkin heims- valdasinnuð og þykir þeim nóg um sambandið sem þau hafa við stjórnvöld í Perú og þá hernað- araðstoð sem Rússarnir veita þeim. Samkvæmt hernaðarlegum heimildum hafa Sovétmenn af- hent Perú 50 Sukhoi orustuflug- vélar, 40 þyrlur og 350 skrið- dreka. Bandarískir þingmenn staðhæfa að mörg hundruð so- véskra hernaðarráðgjafa séu í landinu. Gallup: Reagan og Bush hafa 14%forskot Washington-Reutcr. ■ I síðustu Gallupskoðana- könnun, sem birt var í gær kom í Ijós að Reagan forseti og Bush varaforseti hafa 14% meira at- kvæðafylgi en Mondale og Ferr- aro, sem er fyrsta konan sem tilnefnd er varaforsetaefni í Bandaríkjunum. Útkoman í skoðanakönnuninni sýndi að Reagan-Bush myndu sigra Mondale-Ferraro með 53% atkvæða á móti 39%. 47% kvenna sem spurðar voru sögðust mundu kjósa Reagan-Bush og 45% kvenna sögðust veita Mondale- Ferraro atkvæði sitt í forsetakosn- ingum. Meðal kjósenda af karlkyninu sögðust 59% kjósa Reagan-Bush og 34% Mondale-Ferraro. Öryggislína risaveldanna endurnýjuð Washington-Reuter. ■ Bandaríkjamenn og Sovét- menn hafa komið sér saman um að endurnýja og bæta tæknilega beinu línuna milli Hvíta hússins og Kremlar. Um þá línu geta æðstu ménn ríkjanna haft beint samband með örstuttum eða eng- um fyrirvara ef hættuástand skapast. Beina línan verður bæði gegn- um símalínu og gervihnetti og er hægt að hafa samband hvort sem er með venjulegum símtölum og um fjarrita. Einnig á að verða hægt að senda landakort og skýr- ingarmyndir um þessa öryggislínu til að tryggja að komið verði í veg fyrir mögulegan misskilning. Thatcher í erfiðleikum London-Reuter. ■ Sáttanefnd hélt í gær 90 mínútna langan fund mcð fulltrúum hafnar- verkamanna og atvinnu- rekenda, en enginn árang- ur varð af þeim viðræðum. Thatcher forsætisráð- herra var harðlega gagn- rýnd af bæði vinstri og hægri mönnum í gær og hefur stjórn hennar aldrei áður átt jafn litlu gengi að fagna. Bretlandi er nánast í hafnbanni og inn- og útflutningur á sjó hefur stöðvast. Perú: Maoistar ráðast á sovéskar stofnanir Lima-Reuter. NT óskar eftir að ráða í eftirtalin störf: Beitingamenn Okkur vantar beitingamenn um borð í Faxa G.K. 44 til grálúðuveiða í júlí og ágúst. Upplýsingar í síma 97-8880 og á kvöldin í síma 97-8922. Búlandstindur h.f. Djúpavogi. Kaupfélagsstjóri Starf kaupfélagsstjóra við Kaupfélag Hvamms- fjarðar Búðardal er laust til umsóknar. Umsóknarfrestur er til 27. júlí n.k. Allar upplýsingar um starfið veitir Halldór Þórðar- son, Breiðabólstað í síma 93-4207. Útlitsteiknara til að annast útlitsteiknun (layout). Nauðsynlegt að viðkomandi hafi starfsreynslu og þekkingu á þessu sviði. Auglýsingateiknara til að annast hönnun og uppsetningu efnis o.fl. sem til fellur í auglýsingadeild okkar. Nauðsynlegt að viðkomandi hafi starfsreynslu í uppsetningu og gerð auglýsinga og geti unnið sjálfstætt. NT er ungt og lifandi dagblað í stöðugri þróun og örum vexti. Hjá fyrirtækinu starfa um 100 manns og er lögð rík áhersla á góðan starfsanda. Vinsamlegast sendið umsóknir með upplýsingum um aldur, menntun, fyrri störf og hugsanlega meðmælendur til NT c/o Haukur Haraldsson, pósthólf 8080 128 Reykjavík. Farið verður með allar umsóknir sem trúnað- armál.

x

NT

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: NT
https://timarit.is/publication/305

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.