NT - 28.07.1984, Síða 2
Laugardagur 28. júlí 1984 2
Gengislækkun og vaxtahækkun:
„Fljótlegur bana-
biti útgerðarinnar11
Segir Hjálmar Gunnarsson, útgerðarmaður í Grundarfirði
■ „Ég veit ait menn eru m.a.
að tala um gengislxkkun og
vaxtahækkun. En ég tel það
liggja á borðinu að það yrði
fljótlegur banabiti útgerðarinn-
ar. Með gengislxkkun hxkka
öll aðföngin, olían, veiðarfxrin,
tryggingarnar og fleira og með
vaxtahxkkun í kjölfarið spring-
ur þetta endanlega", sagði
Hjálmar Gunnarsson, útgerð-
armaður í Grundarfírði í samtali
við NT í gær.
í Grundarfirði hófust sumarfrí
sjómanna s.l. þriðjudag meö
því að þeir lónduðu 360 tonnum
af fiski úr skipum á staönum.
„Pegar aflinn hefur verið unninn
fær verkafójk 3 vikna sumarfrí
- enda vcl að því komið þar sem
slcitulaus vinna hcfur verið hcr
viö fiskvinnslu síðan í janúar -
unniö alla daga frá kl. 6 að
morgni nema 2 laugardaga",
sagði Hjálmar. „Nei, við erum
ckki að stræka á einn nc neinn
- heldur hreinlega að gefa sjó-
mönnum og landverkafólki
sumarfrí eftir geysilegt vinnu-
álag það sem af er árinu. Árum
saman hefur ekki verið framleitt
meira hcr í Grundarfirði en
nú“, sagði Hjálmar.
Nýtt íslenskt snjóbræðslukerfi
KÓBRA
Við höfum snjóbræðslurörin
Við höfum tækniþekkinguna
Við leggjum kerfið
Við gerum heildartilboð í efni og Iögn
Við höfum lægsta verðið
Opið laugardag
Pípulagnir sf.
Kópavogur - sími 77400.
Skemmuvegur 26 L (bak við Stórmarkaðinn)
Blaðberar
óskast
fyrir eftirtaldar
götur
Sólvallagötu
Ásvallagötu
Vesturvallagötu
Grjótagötu
Suðurgötu
Tjarnargötu
Vesturgötu
Ránargötu
Tryggvagötu
Bakkastíg
Rauðarárstíg
Háteigsveg
Síðumúla 15 sími: 686300
Ekki taldi hann að margir
Grúndfirðingar færu að heiman
í sumarfríinu - nema hvað
nokkrir ætluðu í Kerlingarfjöll á
skíði. Margir hafi fengið skíða-
hakteríuna þegar lyfta var reist
í Grundarfirði s.l. veturog langi
nú aðCndrnýja kunnáttuna. Um
utanferðir væri hins vegar ekki
mikið að ræða. „Ég held að fólk
ætli hreinlega að vera heima og
hvíla sig, enda þarf það þess."
Hjálmar lét vel af afla-
brögðum. Togarinn Sigurfari
II hafði landað 175 tonnum s.l.
þriðjudag og hafði þá
2.400 tonn frá áramótum.
mikið sé því farið að saxast
kvótann, þannig aö menn verði
að fara að huga að sér. „Reynd-
ar verðum við að treysta á það
að fá einhvern viðbótarkvóta að
sumarfríum loknum," sagði
Hjálmar.
Ekki hefur sólskinið laðað
fólk út úr frystihúsunum að
undanförnu. Hjálmar sagði að
ekki hefði sést til sólar í Grundar-
firði í þrjár vikur samfleytt -
heldur verið stöðug suðlæg áti
nteð úrkomu og þoku. Gras-
spretta í sveitinni er hins vegai
geysimikil, en mönnunt hefui
gengið heyskapurinn misjafn-
lega - sumum vel, en öðrum
miður.
■ í Grundarfírði hefur verið sleitulaus vinna 6 daga vikunnar frá
kl. 6 á morgnana nema hvað frí hefur gefíst 2 laugardaga. Fólk er
því vel komið að 3 vikna sumarfríum sem nú eru að hefjast á skipum
og í fískvinnslu.
Stórliðin
í sömu deild?
■ Knattspyrnumennirnir í
Hildibrandi í Vestmannaeyj-
um eru vinsælir í Eyjum fyrir
skringileg og skondin uppá-
tæki í kringum keppnina í 4.
deildinni í knattspyrnu. Þar
nægir að nefna klæðnað
liðsins, hálfsíðar buxur og
nærbuxnableikar treyjur, auk
vörubílspallaflutnings á
völlinn, vélhjólaskrúðakstur,
hljómsveitarleiks fyrir leik og
í hléi og svo mætti lengi telja.
Er nú svo komið að Hildi-
brandar fá ékki færri áhorf-
endur í Eyjum en sjálfar knatt-
spyrnuhetjur staðarins, ÍBV.
Eyjamenn hafa einnig tekið
eftir því, að Hildibrandarnir
standa sig vel í leikjum, eru
nú efstir í B-riðli 4. deildar, og
stefna hraðbyri á úrslitakeppni
og jafnvel sæti í 3. deild. Hins
vegar hefur ÍB V gengið heldur
illá í 2. deildarkeppninni fram
undir þetta. Höfðu menn á
orði lengi fram eftir sumri í
Eyjum, að líklegast mundu
stórliðin tvö ÍBV og Hildi-
brandur, mætast í 3. deildinni
að ári.
Augnablikið
byrjaði
■ Og úr því farið var að tala
um Hildibranda, er ekki úr
yegi að geta þess að upphafs-
menn að skringilegum upp-
átækjum í kringum fjórðu-
deildarleiki voru piltar í
Kópavogi, flestir ættaðir úr
Breiðabliki. Stofnuðu þeir fé-
lag sem nefnt'var Augnablik.
Þegar á leið fóru skringileg
uppátæki að skjóta upp kollin-
um, sérstaklega á keppnis-
tímabilinu 1983. Þá fóru
Augnabliksmenn hópreiðir á
Trabantbílum sínum og Jónas-
ar vallarstjóra til leiks, fóru á
útileiki á svörtum límosínum,
mættu á síðustu stundu og
þannig má lengi telja, jafnvel
í sjálfstæðum dropum. — í
sumar hafa Augnabliksmenn
liins vegar látið lítið á sér bera
og segir einn heimildarmanna
Dropateljara í félaginu það
vera vegna þess að Augna-
bliksmenn hafi einbeitt sér að
hinu innra starfi, farið í úti-
legur og skemmtiferðir saman,
haldið sjálfum sér veislur
o.s.frv. Hildibrandarnir skutu
svo upp kollinum í vor, og nú
hefur verið ráðgerð viðureign
félaganna í hálfleik í leik
Breiðabliks og Þórs frá Akur-
eyri í Kópavogi í dag.
Hvaða lið?
Eitt sinn er dregið var íBik-
arkeppni Knattspyrnusam-
bands íslands hringdi þjálfari
eins annarrardeildarliðsins til
skrifstofu Kiiattspyrnusam-
bandsins og spurði hvaða lið
hans lið hefði fengið í fyrstu
umferð. „Augnablik", sagði
sá sem svaraði á skrifstofunni,
æ>g lagði á. Þjálfarinn beið
■lengi uns hann gerði sér grein
fyrir því að enginn var í
símanum lengurc Hann
hringdi því aftur og allt fór á
sömu leið. Hann hringdi því í
þriðja sinn og hóf mál sitt á
svofelldum orðum: Hvurn
andsk... á það að þýða að
afgreiða mann með því að
segja alltaí augnablik og skella
svo á??? - Misskilninginn
tókst að leiðrétta um síðir.
Fyrirlidinn
fangelsaður
■ Enn af Augnabliki. Eitt
sinn er Augnablik átti heima-
leik vildi svo til er dómarinn
var að heilsa fyrirliðum lið-
anna í upphafi leiks, að tveir
einkennisklæddir lögreglu-
menn komu, tóku fyrirliðann
fastann og fóru með hann.
Voru bæði dómarinn, leik-
menn og áhorfendur klumsa
yfir aðförunum, og ekkert
annað fyrir Augnabliksmenn
að gera en að skipta nýjum
leikmanni inn á og skipa nýjan
fyrirliöa.
Síðar komst upp um strák-
inn Tuma, því Áugnabliks-
menn höfðu sjálfir fundið upp
á-þessu, fengið lánaða lög-
reglubúninga og framkvæmt
allt saman.