NT


NT - 29.07.1984, Síða 5

NT - 29.07.1984, Síða 5
i;i Sunnudagur 29. júlí 1984 þar og ákærður fyrir að hafa stolið fornmenjum. Þá hafði liann fundið einhverja hausa sem höfðu dottið af styttum og lágu á jörðinni, og hann greip þessa hausa og ætlaði að fara með þá heim til Frakklands. En þá komu einhverjir hraðbrun- andi menn og færðu hann í svartholið, og það voru horfur á því að hann myndi dúsa þar árum saman, og kannski verða til í dýflissunni. Konan flýtti sér heim til Frakklands og fékk alla helstu rithöfunda franska til þess að skrifa undir tilmæli til stjórnvalda þarna fyrir austan að sleppa þessu skáldi. Og þar voru í fremstu röð svona ólíkir menn einsog André Gide og André Breton, súrrealistapáf- inn. Og það tókst að ná honum út. En hann skrifaði um merki- lega hluti fyrir utan sínar skáld- sögur. Ffann skrifaði um listina, hafði geysilega mikla þekkingu og sýn yfir list á öllum tímum og skrifaði til dæmis hugvekjur þar sem hann leiðir saman kannski franska miðaldalist og forna list frá Asíu, og tengir svo við samtíma okkar. Flann sýnir flestum mönnum betur að forn list er líka samtímaleg að listin heldúr áfram og að manneskjan er eilíf. Já, í beinum skilningi þannig að hún haldi áfram að vera til. Það er nú það brýnasta í heiminum í dag, að koma í veg fyrir að manneskjan fremji sjálfsmorð. Það er unga fólkið sem verður að sjá um að bjarga heiminum, það verður hver kynslóð að gera það. Og ég hefði gaman að fá að vera með í því, ef það er hægt að npta mann. Því sjáðu til manneskjan þarf að verða eilíf og má aldrei hætta að vera til, þó við hættum sem einstaklingar einhvern tímann. Illu heilli. Eg veit að ég fæ ekki alltaf að vera til, „eitt sinn skal hver deyja“, eins og Þórir Jökull sagði þegar hann var höggvinn.“ Og það verður þögn í stofunni á meðan maðurinn á þakinu ber í það mörg högg og þung. Það er einsog maður rati á það sem manni hentar hverju sinni „Já, ég er búinn að flækjast dáldið núna í ár“, segir Thor, þegar höggin eru dáin út. „Ég fór til Noregs í vor, það var svona ferð til að tala yfir Norð- mönnum, flytja erindi. Tilefnið var að „Fljótt, fljótt sagði fuglinn", kom þt í Noregi, og einhverjir sem höfðu lesið bók- ina vildu fá mig til að koma og flytja erindi. Ég var nú svo heppinn að það var mjög góður maður sem þýddi hana, góður vinur minn, Knut Ödegárd, sem er ágætt skáld. Hann þýddi bókina svo vel að hann fékk helstu verðlaunin sem eru veitt þarna í Noregi fyrir að þýða bækur, og það gladdi mig nátt- úrlega mikið, því það er ekkert áhlaupaverk að þýða svona bók. Það minnir mig á annan norskan höfund sem ég kynntist fyrir fjöldamörgum árum. Það var fyrir tilviljun, þó það sé nú stundum einsog það sé engin tilviljun, heldur að hlutirnir fylgi einhverjum mynstrum, og maður rati á það sem manni hentar vel hverju sinni. Þá var ég veturlangt í Kaupmanna- höfn, eða ekki alveg veturlangt, ég hafði verið á sjó þá, fyrst á togara og síðan háseti á Gull- fossi. Þetta var 1953, síðan hef ég ekki verið á sjó, en ég sakna þess alltaf. Ég var á sjó fram í febrúarbyrjun, og svo vorum við í Kaupmannahöfn konan mín og ég, hún var þar fyrir Ríkisútvarpið hérna, og við vor- um þar eitthvað fram á sumarið. Ég var að reyna að skrifa, það er eini staðurinn sem ég hef verið og lítið fundist ganga að skrifa. Ég veit ekkert hvernig stóð á því, en staðurinn örvaði mig ekkert, en eitthvað var maður samt að setja saman. Já, mér hefur verið sögð saga af rithöfundi sem fór um allan heim og var að leita að einhverj- um stað þar sem hann gæti skrifað, og það gekk nú erfið- lega, en endaðiú að hann fann skíðahótel einhvers staðar, ég man nú ekki hvar það var, en þar gat hann loks skrifað. Og hann var búinn að fara um allan heiminn áður en hann fann það. Það var alveg öfugt með mig, Kaupmannahöfn var eini stað- urinn þar sem ég átti dáldið erfitt með að skrifa. Þetta var kaldur vetur, og maður var eflaust bara of sæll þá. Ég veit það ekki, ég hef nú stundum verið sæll síðan og getað skrifað fyrir því. En í Kaupmannahöfn, þar var norskur kunningi minn að segja mér frá þessum höfundi, Tarjei Vesás sem skrifaði á sitt eigið afbrigði af nýnorsku. Eg leit á eitthvað sem hann hafði skrifað. Og allt í einu rann upp fyrir mér að þarna væri maður sem ég kynni að eiga erindi við. Og mér fannst hann nokkuð góður höfundur, þá voru fáir höfundar á Norðurlöndum sem ég hafði áhuga á. Haf og himinn, fugl ogfugl Annars er París eiginlega sú borg sem ég hef mestar mætur á. Mér finnst að við íslendingar eigum að sækja í miðsetur heimsins. Ekkert að vera að hokra í útjöðrum menningar- innar heldur fara beint í menn- ingarmiðjuna, og muna eftir því að Island var stórveldi í bókmenntum til forna. Já, og sem á höfund eins og Halldór Laxness. Fólk sem kemur frá landi sem hefur alið mann eins og Laxness, sem hefur alist upp við að lesa höfund eins og hann, hefur enga afsökun fyrir því að vera smátt í sér. Maður verður stundum hissa á hvað rithöfund- ar hér geta komist upp með að vera smáir í sér, en þeir verða þá að láta eins og fjöllin séu ekki til, láta eins og þúfurnar séu tindarnir. Það er auðvitað hægt að hagræða hlutunum. Utaf því sem ég var að segja um sjóinn þarna áðan, ég er stundum að hugsa að ef ég hefði ekki þetta starf sem er mitt starf og lífsfylling, þá held ég að ég myndi helst vilja vera á sjó. Það togar alltaf í mig. Ég kann vel við félagsskap á sjó, og sem betur fer fæ ég stundum að sigla með skipum, sumir af mín- um gömlu skipsfélögum eru skipstjórar, sem eru að vísu að fara í land, margir hverjir. En mér finnst skemmtilegt að sigla nokkra daga og spjalla við þá sem hafa gert þetta að ævistarfi sínu að vera á sjó. Það verður oft svo sérstakt og skemmtilegt andrúmsloft um borð í skipum og það byggist á því að maður er manns gaman, og það er tími til að hugsa. Þú stendur kannski og horfir út á sjóinn tímunum saman. Þá kvikna í manni marg- ar hugmyndir, þegar ekkert er nema haf og himinn, og svo fugl og fugl, og svo mennirnir í skipinu sem maður er á. Én nú er komið vídeó, ég vona að það verði ekki til að trufla hugsunina. Það er dálítið varhugavert, að minnsta kosti svona í byrjun, á meðan ný- næmið er. En ég held ekki að bókin verði drepin. Það er allt annað að lesa góða bók en horfa á vídeó. Það er náttúrlega verst fyrst, á meðan þetta er nýlunda, og þái. verður þetta voðaleg áþján. Fólk situr dæmt fyrir framan þetta og gónir, og kemur svo örþreytt á morgnana til vinnu, því þær eru svo strang- ar þessar vídeóskyldur og áþján. Þetta sýgur úr fólki sál- ina, svo fer það að uppgötva það smám saman að það er allt að linast upp og visna, því það beitir sér ekki neitt, situr bara og lætur mata sig. Maður eflist ekki nema af því að taka á. Maður verður bara aumingi ef maður tekur ekki á, andlega og líkamlega. Annars ge.tur vel verið að svona hafi verið talað um sjónvarpið þegar þáð kom fyrst, og reyndar útvarpið líka þegar það kom. Sumir tala meira að segja svona um blöðin. skamma þau og segja að það sé allt of mikill pappír í blöðunum hjá ykkur. Það er ógurlega mikið verk að lesa öll þessi blöð sem eru gefin út hérna, ef manni finnst að maður þurfi að lesa þau frá orði til orðs." Gat í tímann „En þetta er voðaleg hugsun, þetta með að vera að drepa tímann. Það er alltaf verið að höfundi eins og Laxness, en svo þegar Boyer þýddi íslands- klukkuna sáu þeir hvers þeir höfðu farið á mis. Það var að vísu þýdd Sa|ka Valka fýrir mörgum árunt, en það getur verið að sú þýðin'g hafi verið of akademísk". \,Já", segi ég og fer svo eitthvað að draga í efa að Frakkar geti haft mikinn áhuga á því sem er að gerast á" einhverri eyju útí Atlantshafi. „Nei, það er alrangt", Thor ltampar „l’Europe", „það er hægt að fara frá íslandi og leggja undir sig heiminn. Það tekur náttúrlega langan tíma, það tekur langan tíma fyrir þann sem ætlar sér að skrifa líka að selja skip og flugvélar". Og svo sagði hann iíka að eina vonin væru svona frekar lítil forlög, þar sem ennþá eru menn sem liafa ást á bókmenntum og vilja berjast fyrir það sem þeir trúa á. En þeir geta kannski lifað nokkur ár, svo eru þeir drepnir með ýmsu móti, eða þá gleyptir af stórum forlögum. Þar ræður samsæri þeirra sem skortir hugrekki til að gera eins og hjartað býður. Við sundlaugina með viskýglas Svo er kominn iðnaður um- agitera fyrir því hvernig fólk geti drepið tímann. í blöðunum eru kannski einhverjir skarfar að segja álit sitt á því scm er í útvarpi og sjónvarpi, og þá eru þctta iðulega einhverjir sem eru alveg í vandræðunt með sig, geta einskis notið ef eitthvað er lagt á þá. Það er alltaf verið að skammast, ef býðst eitthvað sem nærir sálina. fóík segist vera svo þreytt eftir vinnuvik- una að um helgina vilji það bara hafa eitthvað létt og skemmti- legt. Og hugsjónin um eitthvað skemmtilegt virðist heimta að það sé bara helst ekki neitt. Bara gat í tímann. Að maður sé dauður á meðan. Það sé svona einskonar sjálfsmorð. En hvað er tíminn nema tækifæri okkar til að skynja að við séum til? Og ef það er tekin frá okkur tilfinn- ingin um að við séum til, og drepinn fyrir okkur tíminn, þá er það bara sjálfsmorð. Er hægt að hrópa húrra fyrir því að verða sálarlaus svo og svo lengi, í staðinn fyrir að njóta þess að hafa sál, finna hana jafnveþfá byr undir vængi og geta svifið? Er það ekki betra en að vera settur niður í einsog eitthvert gat einsog gerast útí geimnum, þessa svörtu pytti útí geimnum. Vilja þeir hafa svoleiðis í sjón- varpinu og vídeó? Eins og er í svörtu pyttunum útí geimnum þar sem allt verður að engu? Mér finnst að hlutverk fjöl- miðlanna ætti að vera að næra sálina. En svo er verið að elta uppi eitthvert fólk sem er í öngum sínum og leiðist svona ógurlega, og láta það lýsa leiða sínum. Af hverju ekki að reyna að ná í einhverja sem njóta þess að vera til? Má ekki spyrja þá líka?“ Að berjastfyrir það sem maður trúir á Á borðinu fyrir framan mig liggja staflar af bókum og tíma- ritum, þar á meðal franskt tíma- rit með efni eftir íslenska höf- unda. „Já, þetta hérna er „L’Eur- ope“, ákaflega vandað og virt tímarit", segir Thor þegar ég fer að forvitnast um hvað þetta sé. „Þetta eintak er svona sýnishorn af íslensku efni. Sá sem hefur séð um það er þessi ágæti maður Régis Boyer, sem er ákaflega vel að sér um íslenskar bók- menntir, feykilega gáfaður og duglegur maður. Hann hefur þýtt fornsögur og íslandsklukk- una. Það var furðulegt að Frakkar höfðu ekki áttað sig á heimsbókmenntir á íslensku, og þaö er erfitt. Það tekur svo íangan tíma að koma því á framfæri erlendis, þýða þaö, og það eru fáir sem geta þýtt erfíð- an texta úr íslensku. Menn eins og vinur minn Knut Ödegárd eru fágætir, og nú er ég ekki að segja það vegna þess að hann hefur þýtt bók eftir mig, en hver er sjálfum sé næstur. og það er mikið fagnaðarefni fyrir höfund ef það kemur stórhuga maður, eins og Knut og leggur í að þýða erfiða bók eftir hann. „Fljótt, fljótt sagði fuglinn" er nú þannig verk sem er erfitt að þýða. Og þetta gerir hann án þess að hafa fengið nokkurn úgefanda að bókinni fyrir fram. Ög það sama er að segja um ungan Ámeríku- mann, það er ungur maður frá New York af írskum ættum, John O’Kane. Síðast þegar ég vissi kunni hann vel 13 tungu- mál, og hann lagði í að þýða þessa sömu bók, „Fljótt, fljótt sagði fuglinn", án þess að hafa nokkurn útgefanda að henni. Síðan borgaði Unesco honum þýðingarlaun, og nú er hún loksins að koma út vestanhafs. Það tók sinn tíma. Það eru svo mikil vandræði um alla veröld útaf því að útgefendur vilja hafa metsölubækur, best sellers, og það er yfirleitt á kostnað bók- menntanna. Og vegna þess hvernig ástandið er, eru þessi stóru, gömlu, margfrægu forlög hvert eftir annað að gefast upp á því að gefa út raunverulegar bókmenntir, og eru komin í metsölubókaæðið. Þá verður maður svo hissa þegar það gerist sem hefur gerst núna, að bók eins og „Nafn rósarinnar" eftir Umberto Eco hefur orðið metsölubók í hverju landinu á fætur öðru, meira að segja í Bandaríkjunum. Þetta erskáld- saga sem segir frá klaustri á miðöldum, eiginlega klausturs- krimmi, en helvíti gáfaður höf- undur. Hann er frægur sem málvísindamaður, heimspek- ingur og miðaldafræðingur, sér- staklega þékktur sem málvís- indamaður þangað til þessi skáldsaga kom út eftir hann og fór þessa miklu sigurför. Það vekur manni bjartsýni. Það er sem sagt hægt að selja bækur þó þær séu bókmenntir. Það er óvænt og gleður mann. En það sagði einu sinni við mig góður vinur minn sem er enskt ljóðskáld, Ted Hughes, heitir hann, eitt besta Ijóðskáld á Englandi. Hann sagði einu sinni við mig: „Þú verður að vera þolinmóður Thor. Gerðu þér grein fyrir því að þeir sem eru að selja og gefa út bækur eru hverfis metsölubækurnar, það er sagt að þeir hafi á sínum snærum menn sem eru á álíka kaupi og leikarastjörnurnar í Hollywood þegar að það var sem allra vitlausast þar, og menn græddu á því að vera sem allra vitlausastir og búa til syona dellu fyrir heimsmarkaðinn. Þessir menn þeir búa til ein- hverjar bækur sem slá í gegn á hverju misseri, því þetta á sko að vera eins og 10 á toppnum, einsog í útvarpinu. Þar er alltaf einhver voðaleg plága, 10 á toppnum, og það er bara argvít- ugur bissnes. En þetta má sem sagt ekki endast nema misserið og þessir menn þarna þeir hafa kannski marga menn í vinnu svo þeir þurfa ekkert að gera annað en sitja við sundlaugina sína með viskýglas í hendi. Svo koma ungir menn sem hafa kannski einhverja hæfileika til að skrifa en ekki tápið til að berjast fyrir því, og þeir segja þeim hvað þeir eiga að gera og stoppa þá ef þeir ætla að setja eitthvað vit í það. Þetta er kannski ágætt fyrir höfunda sem ekki hafa þrekið til þess að berjast, og svo halda bókmennt- irnar áfram hjá höfundum sem ekki er hægt að drepa. Nei það er nú engin lygi að við séum bókmenntaþjóð, ég held að við séum svona á milli vita. Ef forlag eins og „Svart á hvítu" lifir af þá er það merki um að við séum bókmennta- þjóð. Og svo er annað sem mér finnst vera tákn um að við séum ennþá bókmenntaþjóð, og það er frásagnargleðin sem er hjá mörgum.Maður kemur uppí sveit, situr í bíl með einhverjum vöruflutningabílstjóra, eða er um borð í skipi, og þá er allt í einu farið að segja manni sögu. Auðvitað þarf það ekki að fara saman að segja sögur og skrifa þær, stundum fer það alls ekki saman, en mér finnst samt eins og þessi frásagnargleði sé merki i um að við séum ennþá bók- menntaþjóð." . Því sálin, hún ferðast hœgar „Og nú erum við ekki lengur langt frá öllu öðru, heimurinn hefur skroppið saman. Ég fór til Japan í vor, ég flaug frá Osló til Kaupmannahafnar, og síðan áfram til Bangkok og þar sat ég í tvo tíma í flughöfninni og horfði á fólkið. Svo hélt ég áfram ferðinni með Thai fólki, með Thailendingum, það var gott að fljúga með þeirn. Þetta var voða elskulegt fólk, stjan- aði við mann og gerði manni allt til yndis í vélinni. Og allt í einu var ég kominn til Manilla á Filippseyjum, og enn var flogið, og þá komst ég til Japans, sem var mikið ævintýri sem ég mun fjalla um s'ðar. .Vonandi kemst ég einhvern- timann aftur til Japans. Það er erfitt að fljúga svona langt. Stundum hef ég verið að telja mér trú um að það væri mesta óvit að fljúga yfirleitt, því sálin. hún ferðast hægar. En það er nú eins og það megi venjast því, kannski maður venjtist því einhvern tímann. En það var einfaldara að fljúga heim að því leyti að þá þurfti ekki alltaf að vera að skipta um vélar. Þegar ég fór frá Japan, þá byrjaði ég á að fljúga til Alaska og stansaði í Anchorage þar var svolítið eins og þar væri allt að verða til, hvað sem síðar verður. Síðan var flogið yfir Norðurpólinn, og ég sá Norður- pólinn. Mér skilst að það sé núna talið að þeir sem töldu sér til tekna að hafa orðið fyrstir á Norðurpólinn, keppinautarnir, hafi hvorugur komið þangað, það eru nýjustu kenningar um þetta. Peary og Scott voru það ekki þeir kallarnir? Það var að koma út bók eftir mann sem þóttist hafa sannað að sá sem þóttist hafa orðið fyrstur, hann hefði ekki komist alla leið á Norðurpólinn heldur verið í 100 kílómetra fjarlægð þaðan. Það er dálítill spölur. Það eru 200 kílómetrar á Blönduós, hann hefur átt eftir hálfa leiðina á Blönduós frá Reykjavík. Og svo flaug ég yfir Island og til Kaupmannahafnar, og síðan þaðan heim. Jú, það er soldið skrítin tilfinning að fljúga yfir Norðurpólinn, heillandi tilfinn- ing. Og mér finnst nú eitthvað afskaplega heillandi við að fljúga ef ég sé land cða sjó, ekki síst ef landið er hrikalegt eða stórbrotið. Þetta var nú mitt ævintýri í vor. En sem betur fer þarf maður ekki endilega að ferðast til þess að skrifa ævintýri og til þess að það gerist ævin- týri.“ Að njóta tilbreytingar- innar í veðrinu „Og þegar ég kem heim þá var listahátíð í gangi, og þar var nú ýmislegt skemmtilegt að gerast. Og var veðrið svo gott að það var alveg unaðslegt að vera kominn heim. Annars er ósköp gott að hér skuli ekki alltaf vera sama veðrið, maður verður að komast upp á lag með að njóta veðrabrigðanna, til- breytingarinnar í veðrinu. Hugsaðu þér ef hér væri alltaf sama veðrið, þá færi nú ljóminn af því. Og nú er Ragnar í Smára dáinn, það er mikið tjón. Maður getur ekki búist við því að það rísi annar eins maður og Ragnar, en ég vona að útgef- endur og aðrir sem ráða ein- hverju í menningarlífinu taki hann til fyrirmyndar, en ég held að það þurfi marga menn í staðinn fyrir mann eins og hann. Og nú þegar harðnar í ári þá eru sumir svo glámskyggnir að þeir halda að það eigi að byrja á því að skera niður á andlega svið- inu. Én það er alveg þveröfugt, því það er aldrei meiri þörf á að styrkja og styðja menninguna en einmitt þá. Nú ætla til dæmis einhver óheillaöfl að hætta að styðja tónlistarskóla úti á landi. En það er ekki sparnaður heldur speilvirki. Spellvirki byrjar líka á sp. Ég vona bara að það verði hrundið svona stórhættulegri atför, því hvað er verðmætara en manneskjan. Öll mannrækt er ómetandi. Það er ekki hægt að reikna svoleiðis í peningum, það er svo miklu verðmætara." Þar með slítum við talinu og ég hugsa um stafina tvo sp. Fyrir utan er sama kyrrðin og fyrr, en maðurinn á þakinu hefur klifrað eitthvað annað. L.E. NT-mynd: Árni Bjarna.

x

NT

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: NT
https://timarit.is/publication/305

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.