NT - 13.08.1984, Side 9
Mánudagur 13. ágúst 1984 ' '9
Nýjar rannsóknir á mögu-
leikum á gerð jarðganga
■ Rannsóknir hafa farið fram á
möguleikum á að grafa jarðgöng á
mörgum fjallvegum bæði á Vestfjörð-
um og Austfjörðum á vegum Vega-
gerðar ríkisins og hefur skýrslu með
níðurstöðum þessara rannsókna verið
skilað til ráðherra.
„Með þessu er verið að athuga
möguleika á jarðgangagerð á þessum
stöðum, sem menn hafa talað mikið
um og stjórnmálamenn vilja vita
hverjir eru. Hins vegar þýðir þetta út
af fyrir sig ekki að þessi jarðgöng
verði gerð," sagði Snæbjörn Jónas-
son, vegamálastjóri. Við kannanir
þessar sagði hann hafa komið í Ijós
hvaða kostir eru fýsilegir og hverjir
síður, en möguleikar eru mjög mis-
jafnir milli hinna ýmsu staða.
Varðandi kostnað við jarðganga-
gerð sagði hann erfiðara um að segja
á þessu stigi, því langt sé síðan
Vegagerðin hafi látið grafa jarðgöng.
Nýjar vélar og tæki hafi t.d. konrið
fram síðan unnið var að göngununr í
Oddsskarði og um Stráka. „En við
búumst við að fá nýjar upplýsingar af
framkvæmdunum við Blönduvirkjun
á þessu ári og því næsta og einnig
stendur til hjá okkur að gera göng um
Ólafsfjarðarmúla eftir einhvern tíma
og þá bætast okkkur enn nýjar upplýs-
ingar,“ sagði Snæbjörn.
Á Vestfjörðunr hafa verið kannaðir
möguleikar á göngum úr Ónundar-
firði út í Súgandafjörð og úr Súganda-
firði í Skutulsfjörð.
Á Austfjörðum hafa verið rannsak-
aðir möguleikar á gerð ganga á
fjölmörgum leiðumi: Á milli Breiðdals-
víkur og Stöðvarfjarðar, frá Stöðvar-
firði yfir í Fáskrúðsfjörð, frá Fáskrúðs-
firði yfir í Reyðarfjörð og frá Reyðar-
firði voru skoðaðir möguleikar á
gangagerð yfir í Norðurdal, sem ligg-
ur ytir í Breiðdal. Þá varathugað með
göng frá Eskifirði og yfir í Mjóafjörð,
sem yrðu að vísu tvenn göng, þ.e. frá
Eskifirði í Fannardal og þaðan í Mjóa-
fjörð, og jafnframt frá Norðfirði yfir
í Mjóafjörð. Einng var kannaður
möguleiki á jarðgöngum frá Mjóa-
firði yfir í Seyðisfjörð og síðan frá
Seyðisfirði undir Fjarðarheiði í átt að
Egilsstöðum.
Arnarflug
tekur við
umboði KLM
■ Arnarflug tekur í næstu viku við
aðalumboði á íslandi fyrir hollenska
flugfélagið KLM, elsta starfandi
flugfélagið í heiminum. Samningar
um umboðið voru undirritaðir um
síðustu mánaðamót, en tveir af yfir-
mönnum KLM á sviði sölumála í
Evrópu eru væntanlegir hingað 14.
ágúst til frekari viðræðna við Arnar-
flug um sölu og kynningarmál.
Arnarflug hefur frá upphafi áætlun-
arflugs síns til Hollands annast sölu á
farseðlum og farmflutningum KLM
og félögin nýta sameiginlega
CORDSA-þjónustutölvuna til far-
skráningar og upplýsingamiðlunar.
Nú verður sölustarfsemin fyrir KLM
á íslandi aukin og einnig er í undir-
búning auglýsinga- og kynningarstarf
um þjónustu KLM.
KLM flýgur til um 120 staða í 75
löndum.
Sjávarútvegs-
sýningin:
Ekkert
fljótandi
hótel
■ Hverfandi líkur eru nú á því, að
skemmtiferðaskip verði notað sem
fljótandi hótel í Reykjavíkurhöfn, í
tengslum við sjávarútvegssýninguna,
sem verður haldin undir lok septem-
ber.
Enska sýningafyrirtækið ITE, sem
skipuleggur sýninguna hefur verið að
kanna möguleika á þessu, en ekki er
talið að margir útlendingar muni
treysta sér til að sigla með skipinu
fram og til baka vegna sýningarinnar.
Mikill áhugi er fyrir sjávarútvegs-
sýningunni erlendis og er þegar orðið
erfitt að finna gistingu á hótelum
borgarinnar á meðan hún stendur
yfir.
Þrír vilja
Hvanneyri
■ Þrír sóttu um skólastjórastöðuna
við Bændaskólann á Hvanneyri: Ingi-
mar Sveinsson, bóndi á Egilsstöðum
og Sveinn Hallgrímsson, ráðunautur
hjá Búnaðarfélagi íslands. Þriðji um-
sækjandinn óskaði nafnleyndar.
■ Guðjón Smári Agnarsson.
■ Einar Kristinn Jónsson, við-
skiptafræðingur, tók við starfi fram-
kvæmdastjóra Samtaka áhugafólks
um áfengisvandamálið l. ágúst síðast
liðinn. Hann hefur yfirumsjón með
allri starfsemi og rekstri SÁÁ, sem
reka m.u. sjúkrastöðina að Vogi,
endurhæfingastöðvarnar að Sogni og
Staðarfelli og fræðslu- og leiðbeining-
arstöð í Síðumúla í Reykjavík.
Einar hefur áður starfað hjá Arn-
arflugi og Endurskoðun h.f., en frá
árinu l9Sl hefur hann verið sölu- og
markaðsstjóri hjá Pennanum, s.f.
Eginkona hans er Kristín Einarsdóttir
og eiga þau eitt barn.
■ Stjórn launamálaráðs BHM hefur
í ályktun mótmælt vaxandi skattbyrði
á einstaklinga, og sagt ríkisstjórnina
hafa aukið hlutdeild skatta af tekjum
alls þorra háskólamenntaðra ríkis-
starfsmanna um 30 til 60 prósentustig
frá því í fyrra.
Birgir Björn Sigurjónsson, hag-
fræðingur BHM, sagði í samtali við
NT að þessar hækkunartölur væru
byggðar á meðaltalsdæmum um tekj-
ur háskólamenntaðra ríkisstarfs-
manna sem hefðu frá 15 til 20 þúsund
krónur í mánaðarlaun. Síðan væri
þróun kauptaxta borin saman við
breytingar á bæði beinum og óbeinum
sköttum, sem hækka með hækkandi
verðlagi. „Það er ljóst að þetta er
■ Einar Kristinn Jónsson.
Einar tekur við starfinu hjá SÁÁ af
Vilhjálmi Þ. Vilhjálmssyni.semgegnt
hefur framkvæmdastjórastarfinu síð-
ast liðin scx ár.
■ Helgi Þórisson, útgerðartæknir,
hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri
Hraðfrystihúss Stöðvarfjarðar h.f.
Hann tekur við starfinu l. september.
Helgi var áður framkvæmdastjóri
Krossvíkur h.f., sem gerir út sam-
nefndan togara frá Akranesi.
Helgi tekur við framkvæmdastjóra-
starfinu á Stöðvarfirði af Guðjóni
Smára Agnarssyni, sem hefur verið
ráðinn framkvæmdastjóri Síldar-
vinnslunnar h.f. í Neskaupstað frá
sama tíma.
gífurleg aukning skattbyrðinnar,"
sagði Birgir Björn.
I ályktun stjórnar launamálaráðs-
ins segir að íaunaskriðs gæti ekki
meðal starfsmanna ríkisins, og því
hafi laun þeirra dregist langt aftur úr
öðrum launþegahópum.
Stjórnin mótmælir fyrirhugaðri
vaxtahækkun, sem það segir muni
valda stórfelldum kostnaðarauka hjá
heimilunum, sem hafi í vaxandi mæli
þurft að fjármagna húsnæðiskostnað
og framfærslu með lánum, en greiðslu-
byrði háskólagenginna manna hafi
hækkað langt umfram aðra vegna
aukins námskostnaðar á undanförn-
um árum.
Nýir framkvæmdastjórar
BHM mótmælir:
Skattbyrði auk-
ist um 30 til 60%
Samtök kvenna á vinnumarkaði:
Stigamenn þjóðfélagsins
aldrei frjálsari
■ „Aldrei hafa stigamenn þjóðfé-
lagsins notið þvílíkra hlunninda og
nú. Ríkisstjórnin hefur með aðgerð-
um sínum unnið rösklega að því að
auka stéttarskiptinguna í þjóðfélag-
inu svo að engum getur nú dulisl
lengur aö í landinu búa tvær þjóðir.
Þeir sem ráða fjármagninu annars
vegar og hins vegar hinir sem vinna
myrkranna á milli,” segir í ályktun
frá Samtökum kvenna á vinnumark-
aðinum.
Þar er mótmælt harðlega nýjustu
aðgerðum ríkisstjórnarinnar. Vaxta-
hækkanir þyngja afborgunarbyrði
þeirra sem eru að trvggja sér þá
frumþörf að hafa þak yfir höfuðið.
Konur á vinnumarkaðinum segja að
nú njótum við „þess jafnréttis að borga
óskerta skatta af launum okkar" og
nú þegar skattskrá liggur fyrir blasir
við allsherjar gjaldþrot heimilanna,
þrátt fyrir loforð ríkisstjórnarinnar
um skattalækkanir, minnkandi verð-
bólgu og bætt lífskjör.
Mælirinn er fullur og samtökin
efna til aðgerða föstudaginn 17.
ágúst. Skorað er á konur að hafa
samband í síma 21500 frá 9. ágúst
milli 6 og ,S síðdegis.
VARAHLUTIR - AUKAHLUTIR
HEILDSALA - SMÁSALA
PÓSTSENDUM SAMDÆGURS
BÆNDUR
BÍLAVERKSTÆÐI
OG AÐRIR EIGENDUR
LAND-ROVER BIFREIÐA
ATHUGIÐ!
HÖFUM ÚRVAL VARAHLUTA OG
BODDÝHLUTA í LAND-ROVER
EINNIG VARAHLUTI í RANGE-
ROVER OG MITSUBISHI
ÞEKKING OG REYNSLA
TRYGGIR ÞJÓNUSTUNA
<s VARAHLUTIR HF Fvrir japanska hila
Daihatsu
Datsun Vutnsdœlur - Vtiinslásur
lionda \ 'ifiureimtir - Tímttri'imnr
Isu/u Sinritiriir - Allmunorur
Ma/da Kvi’ikjukerfi - Trumljús
Mitsuhishi Hremsiulieiur Du’luseii
Suliarii Bremsuhorúur - Bremsnklossur
Sll/llki Trumbreui - (irill - Siuduriir
I iiMila á Dutsun o. fl. o.ji.
© VARAHLUTIR H1
Armúla 22 - Sími
Fæst í teak og beyki.
Cabina rúmsamstæðan
er komin
Verð kr. 12.600.-
Dýnustærðir 200x90 teak
191 x92 í beyki
Húsgögn oa
. . . Suðurlandsbraut 18
jnnrettmgar simi 6-86-900