NT - 08.09.1984, Blaðsíða 10
ff¥7 Laugardagur 8. aeptember 1984 10
IlIJ J^rötiMír
Rykmengun yfir
fiskvinnslunni
Anton og Friðjón unnu Sumarbridge
Sumarbridge
■ SUMARBRIDGE 1984
lýkur næsta fimmtudag. Úrslit
sl. fimmtudag urðu sem hér
segir: Stig
A) Erla Eyjólfsdóttir -
Gunnar Þorkelsson 251
Lilja Petersen -
Jón Sigurðsson 245
Leif Österby -
Sigfús Þórðarson 245
Eggert Benónýsson -
Sigurður Ámundason 241
B) Bergsveinn Breiðfjörð -
Maron Björnsson 199
Esther Jakobsdóttir -
Sigurður Sverrisson 190
Ragnar Magnússon -
Valgarð Blöndal 184
Guðm. Thorsteinsson -
Haukur Sigurðsson 167
C) Guðni Þorsteinsson -
Sig. B. I’orsteinsson 195
Bjarni Sveinsson -
Júlíus Snorrason 187
Valgerður Kristjónsd. -
Björn Theódórsson 178
Hulda Hjálmarsdóttir -
Þórarinn Andrésson 176
D) Ragna Ölafsdóttir -
Ólafur Valgeirsson 266
Gunnar Karlsson -
Sigurjón Helgason 260
Ásgeir P. Ásbjörnsson -
Friðþjófur Einarsson 233
Anton R. Gunnarsson -
Friðjón Þórhallsson 220
Meðalskor i A og D var 210
en 156 í B og C-riðlum.
Alls mættu 58 pör til leiks,
sem er heldur færra en að
undanförnu. Og lokastaða
efstu spilara í SUMAR-
BRIDGE 1984 varð þessi;
Anton R. Gunnarsson og
Friðjón Þórhallsson 23,5 stig
Helgi Jóhannsson og
Leif Österby 18,5 stig
Ragna Ólafsdóttir 15,5 stig
Sigfús Þórðarson 14,5 stig
Erla Eyjólfsdóttir,
Gunnar Þork., Páll Vald.,
og Jón Þ. Hilmarss., 14 stig
Frá Bridgesambandi
islands
■ Eins og mörgum mun
kunnugt mun Bridgesamband
íslands í samvinnu við Sam-
vinnuferðir/Landsýn og Flug-
leiðir, gangast fyrir opnu tví-
menningsmóti í lok septem-
ber. Þetta verður veglegasta
keppni í bridge hér á landi til
þessa. Heildarverðmæti
vinninga verður yfir 100.000
kr.
í 1. verðlaun verða ferðir
fyrir sigurvegarana á'ölympíu-
mótið í bridge, sem haldið er í
Seattle í USA.
Spilað verður í Tónabæ v/
Skaftahlíð og verður spilað
allan laugardaginn 29. septem-
ber og eftir hádegið á sunnu-
deginum 30. september.
Keppnisstjóri verður Agnar
Jörgensson.
Veitt verða riðlaverðlaun í
lokin, en stefnt er að þátttöku
miklum fjölda para. Mót þetta
er haldið til styrktar landslið-
inu okkar sem fer á Ölympíu-
mótið í haust. Áríðandi er að
spilarar láti skrá sig hið allra
fyrsta hjá BSÍ eða hjá félögun-
um á spilakvöldum í septem-
ber. Útanbæjarspilurum er
bent á að Bridgesambandið og
Flugleiðir hafa gert með sér
samkomulag um flug spilara á
þetta mót, sérstaklega hagstætt
fyrir BSÍ.
Allir bestu spilarar landsins
munu taka þátt í þessu móti,
þannig að vegur þess verði sem
mestur. Spilað verður um
meistarastig. Þátttökugjald á
par er kr. 2.000.
Siglfirðingar
unnu Akureyringa
■ Um síðustu helgi fór fram
á Siglufirði bæjarkeppni í
bridge milli Siglfirðinga og Ak-
ureyringa. Heimamenn sigr-
uðu með 664 stigum gegn 636.
Jón Sigurbjörnsson, for-
maður Bridgefélags Siglufjarðar
tjáði fréttaritara að þessi
keppni hefði farið fram árlega
undanfarin ár, og ávallt fyrstu
helgina í september. Fimm
sveitir kepptu frá hvorum aðila
í þetta skiptið og var keppnin
allan tímann jöfn og spenn-
andi. Bestum árangri einstakra
sveita náði sveit Valtýs Jóns-
sonar, Siglufirði. Keppt var
um veglegan farandgrip seni
Sparisjóður Siglufjarðar gaf á
sínum tíma og munu heima-
menn varðveita gripinn næsta
árið.
Bridgedeild
Breiðfirðinga
■ Aðalfundur bridgedeildar-
innar verður haldinn sunnu-
daginn 9. september kl. 14.00
í Hreyfilshúsinu.
Spilamennska hefst síðan
fimmtudaginn 13. september
með einskvölds tvímenning.
Spilað verður í Hreyfilshúsinu
og hefst spilamennska kl.
19.30.
Bridgefélag
Hafnarfjarðar
Aðalfundur félagsins verður
haldinn föstudaginn 14. sept-
ember í Slysavarnarhúsinu við
Hjallahraun, og hefst hann kl.
20.00. Á dagskrá eru venjuleg
aðalfundarstörf, svo og verð-
launaafhending fyrir 1983-
1984. Mánudaginn 17. sept.
hefst vetrarspilamennskan af
fullum krafti og verður vænt-
anlega byrjað með eins kvölds
tvímenningi til upphitunar:
Bridgefélag
Breiðholts
Þriðjudaginn 4. sept var spil-
aður eins kvölds tvímenningur
í tveimur 10. para riðlum. Röð
efstu para varð þessi:
A. riðill.
1. Jakob Kristinsson -
Stefán Jóhannesson 143
2. Þórarinn Árnason -
Gunnl. Guðjónsson 137
3. Guðjón Jónsson -
Friðrik Jónssonl22
4. Flosi Sigurbjörnsson -
Þórir Flosason 117
B. riðill.
1. Ragnar Ragnarsson -
Stefán Oddsson 133
2.-3. Hjálmar Pálsson-
Þorst. Kristjánsson 128
2.-3. Kristján Jóhannesson -
Guðjón Guðm.sson 128
4. Ragnar Hermannsson -
Hjálmtýr Baldurss. 126
Meðalskor í báðum riðlum 108
Næsta þriðj udag verður spil-
aður eins kvölds tvímenning-
ur, en þriðjudaginn 18. sept.
hefst hausttvímenningur fé-
lagsins. Spilað er í Gerðubergi
kl. 19.30 stundvíslega og eru
allir velkomnir meðan húsrúm
leyfir. Keppnisstjóri er Her-
mann Lárusson.
Bridgeklúbbur hjóna
Starfsemi félagsins hefst
með eins kvölds tvímenning
þriðjudaginn 11. september,
kl. 19.45. Spilað er hálfsmán-
aðarlega í Hreyfilshúsinu.
Frá Bridgefélagi
Selfoss og nágrennis
Vetrarstarfsemin hefst 13.
september. Byrjað verður á
tveggja kvölda tvímenningi til
upphitunar. Síðan verður
Hraðsveitakeppnin, með stutt-
um leikjum. Þá kemur Hösk-
uldarmótið og endað með ein-
menningi fyrir jól. Eftir ára-
mót er byrjað með G.Á.B.
Barómeter. Að honum lokn-
um verður Aðalsveitakeppnin.
Ef tími vinnst til eftir hana
verður hugað að stuttri
skemmtilegri keppni í vetrar-
leik.
Nýir einstaklingar sem hafa
áhuga á að koma og spila með
félaginu eru hvattir til að hafa
samband við eftirtalda stjórn-
armenn:
Guðlaugu í sima 2051, Vil-
hjálm í síma 2255, Eygló í
síma. 1848.
t
Faðir okkar, tengdafaðir og afi
Jóhannes Dagbjartsson, bifvélavirki
Álfhólsvegi 43, Kópavogi
verður jarðsunginn frá Aðventkirkjunni Ingólfsstræti 19,
mánudaginn 10. september n.k. kl. 13.30.
Halldór Laufland Jóhannesson Rannveig Skaftadóttir
Kolbrún Sigríður Jóhannesd. Guðmundur Sigurðsson
cgbarnabörn
<iuðmundur Sv. Hermannsson
verður ekkert gert í málinu af okkar hendi, segir Framleiðsluráðið
■ Kykmökkur af sandhlæstri í
Daníelsslipp við Nýlendugötu
hefur að undanförnu legið yfir
inöttökuplani Hraðfrvstistöðvar-
innar við Mýrargötu og sest þar í
augu og vit manna. Þvegnir fiski-
kassar og pönnur hefur orðið
svart á því að standa á planinu.
Auk þess hefur rykið, sem
samanstendur af sandi og máln-
ingu, smogið inn um opna glugga
bæði í Hraðfrystistööinni og
Bæjarútgeröarfrystihúsinu, sem
stendur þarna rétt við. Að sögn
verkamanna í móttöku Hrað-
frystistöðvarinnar varð mcngun-
arinnar ekki vart í vinnslusalnum
fyrr en sandurinn og málningar-
flyksur fóru að hrynja niður á
starfsfólkið. Þá var og gluggan-
um lokað.
„Þetta er eins og mistur hérna
yfir og maður er með þetta í
augum og að bryðja þetta uppi í
sér,“ sagði einn verkamannanna
sem NT ræddi við. í samtali við
Jón Geirsson, yfirverkstjóra,
kvaðst hann ekki álíta að hér
væri um mjög alvarlegt mál að
ræða. „Það skeði í gær að þá fauk
hérna sandur á planið en það var
ekki tekið á móti fiski í gær. Við
þurfum reyndar að þvo upp kassa
og það er náttúrlega til óþæginda.
En þetta hefur ekki verið neitt
mál fram að þessu,“ sagði Jón.
Að sögn verkamanna sem blaðið
ræddi við hefur þetta mistur legið
yfir öðru hvoru nú síðustu tvær
vikur.
í samtali við forsvarsmenn
Daníelsslipps kom fram að þcir
hafa ákveðið að hætta sandblæs-
tri um stundarsakir vegna þessa
máls en slippurinn hefur þó ekki
fengið neinar kröfur um að það
verði gert. „Ég veit ekkert um
þetta nema það sem hann sagði
mér þessi maður frá Framleiðs-
lueftirliti og hef enga skýrslu
séð,“ sagði Ingvar Einarsson for-
stjóri í slippnum. Á undanförn-
um fimm árum hafi fjögur skip
verið sandblásin í Daníelsslipp.
Sinnuleysi stofnana?
í vikunni var Fram-
leiðslueftirliti sjávarafurða til-
kynnt um þetta en enn sem
■ Pönnurnar voru sömuleiöis alsctlar rykinu.
á borðið hjá neytandanum og
afskiptum opinberra aðila af
þeirri hlið málsins er lokið, eða
hvað!
komið er hefur stofnunin ekkert
aðhafst.
„Við höfum ekkert gert í þessu
máli, nema bara talað við slipp-
stöðvarstjórann," sagði Jens
Hjörleifsson, deildarstjóri í
Framleiðslueftirliti, og kvaðst
líta svo á að málinu væri lokið frá
þeirra hendi. „Nú þekki ég ekki
hvaða eiturefni cru í þessu og
það verður ekkert meira gert í
þessu máli af okkar hendi. Ef
þetta er eitthvað í sambandi við
hollustuhætti þá er það Heil-
brigðiseftirlitsins að athuga það.
Við höfum ckkert gert nema að
hafa samband við þá,“ sagði Jens
ennfremur.
„Ef fiskurinn mengast af sandi
þá heyrir það undir Framleiðs-
lueftirlitið en ef málið er að
starfsfólkið fái sandinn í sig þá er
■ Hér sést inn í Daníelsslipp þar sem togarinn Farsæll er næst
fiskvinnslunni í dráttarbrautinni. í beinu framhaldi af bárujárns-
veggnum lengst til hægrí á myndinni tekur við frystihús
Bæjarútgerðarinnar þar sem menn hafa einnig haft nasaþef af
mcnguninni.
það Vinnueftirlitsins. Mengunin
er okkar og ef að þetta verður
áframhaldandi vandamál þá
verður að gera eitthvað í þessu,“
sagði Tryggvi Þórðarson sem hef-
ur með þetta mál að gera hjá
Heilbrigðiseftirlitinu. Eftirlitið
hefur ekki ráðist í neinar aðgerð-
ir vegna þessa máls.
Sigurður Þórarinsson, deildar-
tæknifræðingur hjá Vinnueftirliti
hafði ekkert heyrt um þessi mál
þegar NT hafði samband við
hann í gærdag. Aðspurður um
hvað væri í þeim rykmekki sem
dreifist frá sandblæstrinum sagði
Sigurður að þar væri að líkum
fyrst og fremst um að ræða efnin
sem verið er að hreinsa af skip-
inu, málning, ryð og óhreinindi.
Þá þyrlast sandurinn mjög mikið
með en á hverri klukkustund
dælir háþrýstidælan 250 kílóum
af sandi. „Þetta er ekkert hollt en
ég held að þetta sé nú ekki
beinlínis eitrað,“ sagði Sigurður.
í öllu falli er það enn ókannað
mál hvort sandur og málning hafi
komist í fisk sem senn er kominn
■ Þessir kassar Hraðfrystistöðvarinnar voru hvítþvegnir þegar
þeim var raðað upp á planinu. Nokkrum dægrum seinna voru
allir efstu kassarnir orðnir svartir af sandi og öðrum óhreindindum
vegna þess að í slippnum handan við þilið var verið að sandblása
togarann Farsæl. Fjærst á myndinni sjáum við í stýrishús Farsæls.
Innfellda myndin sýnir ofaní fiskikassa.