NT - 08.09.1984, Blaðsíða 26
teignamarkadur
Laugardagur 8. september 1984 26
Breytt greiðslukerfi að þróast á fasteignamarkaðinum:
Lægri útborganir og verð-
trygging með 3,5-4% vöxtum
til 6*8 ára, segir Friðrik Stefánsson hjá Þingholti
■ „Ég tel Ijóst að það sé nýtt,
eða kannski réttara að segja
breytt kerfi að þróast í þessum
viðskiptum. Mér fínnst ýmis-
legt benda til að útborgunar-
hlutfallið sé að færast niður,
sennilega yfir línuna og að
eftirstöðvarnar fari þá jafn-
framt yfir í vcrðtryggingu,
sennilega með fremur lágum
vöxtum, þ.e. 3,5 til 4%
vöxtum. Maður verður tölu-
vert var við það í tilboðum sem
koma, að það er verið að
bjóða þessi kjör“, sagði Frið-
rik Stefánsson hjá Fasteigna-
sölunni l'ingholti, þegar hann
var spurður nýjustu frétta af
fasteignamarkaðinum.
Með verðtryggingu eftir-
stöðva sagði Friðrik algengt að
þær dreifðust þá á um 6-8 ár.
Á útborgunarhlutfallinu gæti
verið allur gangur. „Hún getur
farið alveg niður í um 50%, en
algengt að hún sé einhvers
staðar á milli 50 og 65%, eða
eins og við segjum, að um
þessar mundir er allt til í þessu
dæmi.“
Verðmatið á íbúðum sagði
Friðrik þó ennþá byggja á
hefðbundnu kjörunum og var
hann því spurður hvaða áhrif
verðtryggingin hefði á heildar-
verðið.
„Meðan verðbólgan var
mikil var algengt að heildar-
verðið lækkaði um 10-15% ef
menn greiddu eftirstöðvarnar
verðtryggðar, en nú er það
jafnvel á hinn kantinn, að það
fari í það að með lægri útborg-
un og verðtryggingu þá hækki
heildarverðið eitthvað. Mér
kæmi ekki á óvart að þegar
kjörin breytast svona muni
verðið fikrast eitthvað upp og
þá miða ég við þessa lágu
vexti sem ég nefndi áðan. Með
hærri vöxtum hlyti verðið hins
vegar að lækka,“ sagði Friðirk.
Varðandi vextina kvaðst hann
því miður óttast að fólk átti sig
almennt ekki nógu vel á því
hve hvert prósennt í raunvöxt-
um skiptir miklu máli. Sé fólk
ekki því betur upplýst sé sú
hæ*ta fyrir hendi að það fari
jafnvel í stórum stíl að skrifa
undir verðtryggð bréf með
hæstu lögleyfðu vöxtum en
þeir séu 10% nú. Og 10%
raunvextir eru líklega hæstu
vextir sem bjóðast í heiminum
um þessar mundir."
Friðrik kvaðst ekki verða
var við neitt óhemju mikla
eftirspurn eftir litlu íbúðunum,
sem getið var um í blaðinu nú
í vikunni. Bæði séu þær dýrar
og eins komi til, að með lækk-
uðum útborgunarkjörum ráði
■ Fæstir byggja sér hús án
þess að eiga íbúð fyrir til að
selja. Miklar byggingar-
framkvæmdir og mikil sala á
einingahúsum skapa því stór-
aukið framboð eigna á fast-
eignamarkaðinum þar sem
Friðrik í Þingholti segir nú
meira framboð eigna en oft
áður og jafnframt séu þær
betri.
NT-raynd: Róbcrt
fólk líka frekar við útborgun í
þriggja herbergja íbúðum sem
eru jafnframt hlutfallslega
ódýrari en tveggja herbergja
íbúðir.
Hjá Friðriki kom fram, að
lækkuð útborgun og verðtrygg-
ing eftirstöðva læknar þó ekki
öll vandamál. Verðtryggð lán
hvíli nú orðið á nærri því
hverri einustu íbúð. Séu verð-
tryggðar eftirstöðvar settar
framarlega á veðið geti farið
svo að kaupendur hafi ekki
næg veð til að setja fyrir t.d.
lífeyrissjóðs- og húsnæðismála-
lánum sem þeir þurfa aðtaka.
„Þetta eru því allt flókin mál,“
sagði Friðrik.
Kenndir verða: .. •
barna- og samkvæmisdansar
fyrir börn frá 4. ára aldri.
I Einnig Brons- Silfur- og Gull-
' flokkar.
Diskódansar fyrir krakka frá
7 ára til 12 ára.
Hjón, cinstaklingar, sauma-
klúbbar, fyrirtæki og lokaðir
hópar fyrir þá sem vilja.
Byrjendur og framhald.
Einnig Brons- Silfur- og Gull-
flokkar.
Allir nýjustu samkvæmis-
dansar, gömludansarnir,
rokk, tjútt og fleira.
Nýtt í Dansstudio Sóleyjar.
Hjón og einstaklingar.
Byrjcndur og framhald.
Sérnámskeid:
Fyrir ballið — Eldhressir
föstudagstímar.
i 12 tímar í rokki.
Kennslustaðir: L
Artún v/Vagnhöfða.
Gerðuberg Breiðholti.
Sigtúni 9 I Dansstudio Sóleyjar
Sértímar fyrir hrcssar konur
á öllum aldri, léttir og góðir
dansar við góða tónlist.
Innritun daglega frá kl. 10—12 og frá kl. 13—19 nema sunnudaga í síma 11007
Afhending skírteina fyrir alla staði í Ártúni laugardaginn 22. sept. kl. 13—17 f i
Munið íjölskyldu afsláttinn! Auður ^HafClldsdÓiiÍT
dansskóli