NT - 08.09.1984, Page 32
Laugardagur 8. september 1984 32
Útvarp kl. 16.20:
Byltingarmaður frá Nicaragua
■ Einar Ólafsson, skáld og
bókavörður, mun á sunnudag-
inn flytja erindi um byltingar-
manninn Augusto Sandino frá
Nicaragua í útvarpinu. Erindi
þetta hefst klukkan tuttugu
mínútur yfir fjögur.
Einar sagði að honum hefði
þótt forvitnilegt að kynna sér
sögu þessa Sandino, sem sand-
inistahreyfingin héti eftir, og
væri erindið afrakstur þeirrar
kynningar. Sandinistahreyfingin
hafi verið við völd í 5-6 ár, en
fólk vissi almennt lítið um
manninn sem hreyfingin héti
eftir.
„Ég segi frá manninum, og
jafnframt er saga Nicaragua
rakin að nokkru. Sandino mynd-
aði skæruliðahreyfingu árið 1930
og barðist í nokkur ár. A þeim
tíma urðu þeir atburðir, sem
urðu rætur þess sem er að
gerast núna. Somozaættin
komst til valda um þær mundir
og var við völd allt til 1979, er
Sandinistahreyfingin, sem var
ný hreyfing og ekki nema
óbeint framhald af hreyfingu
Sandinos 50 árum áður, komst
til valda. Égsegi sögu Sandinos
og hreyfingar hans og Nicar-
agua frá 1909, þegar Banda-
ríkin hófu fyrst afskipti af land-
inu, og til 1936 þegar Somoza
komst til valda.
í landinu voru flokkadrættir
áður en Bandaríkin fóru að
skipta sér af, en þeir mögn-
uðust svo og enduðu í borgara-
styrjöld á þeim árum er Sand-
ino var með hreyfingu sína.“
Einar sagði að þegar liann
hefði verið að leita að heimild-
um hefði hann komist að raun
um að helstu bækur um sögu
Nicaragua byggjast á skjölum
Bandaríkjahers frá þessum
árum. Nicaraguabúa sjálfir
liafa lítið fjallað um sína sögu
hingað til, en núna hefur þó
verið sett upp sagnfræðistofnun
í Managúa, höfuðborg
landsins.
En hvernig er ástandið núna
í Nicaragua?
„Það eru kosningar í
vændum. Þær verða núna seint
í haust. Það hefur staðið til
síðan 1979aðhaldakosningar,
og núverandi stjórn hefur verið
gagnrýnd fyrir að draga að
halda kosningar. Það skýtur
nokkuð skökku við því að saga
þingræðis í Nicarauga fram að
byltingunni var grátbrosleg.
Þegar Somoza var kosinn 1936
fékk hann á annað hundrað
þúsund atkvæði en andstæðing-
urinn um 100.
Núverandi Sandinistastjórn
vildi fyrst reyna að reisa landið
úr rústum áður en kosið yrði.
í raun er það óheiðarlegt að
krefjast þess að rokið sé í
kosningar þegar landið er í
rústum og völdin í höndum
almennrar byltingarhreyfingar
fólksins. Auk þess er enn styrj-
öld í landinu að meira eða
minna leyti.
Þetta er sósíalísk bylting,
sem þarna hefur orðið, og víða
hefur maður horft á þær úr-
kynjast og verða að einsflokks-
kerfi, eins og á Kúbu, en
Sandinistar tala um fjölflokka-
kerfi og frelsi til að halda uppi
frjálsum stjórnmálasam-
tökum. Það eru ótal útvarps-
stöðvar og ótal blöð í landinu,
en þó hefur verið nokkur rit-
skoðun, sem aðallega hefur
beinst gegn einu blaði, La
Prensa.
Bandaríkin halda uppi
stöðugum ógnunum og óska þess
ekki að þarna komist á fót
lýðræðislegt, sósíalískt ríki, og
því er ástandið erfitt og verður
að halda uppi neyðarlögum og
einhverri ritskoðun. Þetta gæti
festst í sessi, en það eru líka
sterk öfl sem vilja halda uppi
frelsi og lýðræði.“
■ Sandinistar í átökum við gagnbyltingarmenn á landamærum Nicaragua
Sjónvarp kl. 22.10 á sunnudagskvöld:
Tónleikar í Bústaðakirkju
- PéturJónasson
og Hafliði M.
Hallgrímsson
■ Síðastádagskrásjónvarps-
ins á sunnudagskvöldið er tón-
leikar í Bústaðakirkju, síðari
hluti. Þetta er mynd frá L.ista-
hátíð 1984.
Það eru þeir Hafliði M.
Hallgrímsson og Pétur Jónas-
son sem leiká á selló og gítar.
Báðir eru þeir viðurkenndir
meistarar á sín hljóðfæri og
ætti áhugamönnum um „klass-
íska“ tónlist að vera þessi
dagskrá kærkomin.
■ Hafliði Hallgrímsson
Sjónvarp kl. 20.50 á sunnudagskvöld:
■ Úr uppfærslu á ballettinum Öskubusku í Þjóðleikhúsinu, en
Öskubuska fjallar um svipað tema og Gisella, að vísu með öðrum
endi.
■ 'Gisella í Harlem nefnist
stuttur fréttaþáttur um nýstár-
lega uppsetningu á þekktu
ballettverki, sem sýndur verð-
ur í sjónvarpinu á sunnudags-
kvöld.
Þessi ballett, Gisella, er
klassískur rómantískurballett,
sem m.a. hefur verið sýndur
hér á landi. Þessi uppfærsla er
óvenjuleg að ýmsu leyti. Allir
dansarar eru svartir á hörund.
Einnig hefur verkið verið fært
frá 18. aldar Evrópu til Louisi-
ana í Suðurríkjum Bandaríkj-
anna fyrir þrælastríðið. Ástar-
ævintýrið er ekki milli prins og
sveitarstúlku, heldur vel stæðs
kreóla og dóttur leysingja. En
frumþættir verksins eru enn til
staðar, félagslega gjáin milli
elskendanna, og það að mað-
urinn afneitar Giselle, en tekur
sér konu af eigin stétt.
Þegar unnið var að þessu
verki komust aðstandendur
þess að ýmsu merkilegu varð-
andi sögu Lousiana, sem aldrei
hafði komist í sögubækurnar.
Á þessum tíma, fyrir þræla-
stríðið, var vel stæð stétt svartra
manna - kallaðir frjálsir menn
og litaðir - og frjálsir svertingj-
ar frá Haiti og Karíbahafi, sem
fluttu til New Orleans. New
Orleans var þá meira evrópsk
borg en amerísk. Þessi svarta
yfirstétt hafði sama lífsstíl og
standard og hvítu plantekru-
eigendurnir. Þeir áttu plant-
ekrur, þræla, og öll börn þeirra
voru alin upp annað hvort í
Frakklandi eða Englandi og
voru fremur evrópsk en ame-
rísk. Aþessu byggir ballettinn.
■ Pétur Jónasson
Laugardagur
8. september
7.00Veöurtregnir. Fréttir. Baen.Tón-
leikar. Þulur velur og kynnir. 7:25.
Leikfimi. Tónleikar.
8.00 Fréttir. Dagskrá. 8.15 Veður-
fregnir. Morgunorð - Rósa Svéin-
bjarnardóttir talar.
8.30 Forustugr. dagbl. (útdr.). Tón-
leikar.
9.00 Fréttir. Tilkynningar. Tónleikar.
9.30 Óskalög sjúklinga. Helga Þ.
Stephensen kynnir. (10.00 Fréttir.
10.10 Veðurfregnir). Óskalög
sjúkiinga, frh.
11.20 Súrt og sætt. Þáttur fyrir ungl-
inga. Stjórnendur: Sigrún Halldórs-
dóttir og Erna Arnardóttir.
12.00 Dagskrá. Tónleikar. Tilkynning-
ar.
12.20 Fréttir. 12.45 Veöurfregnir. Til-
kynningar. Tónleikar.
13.40 íþróttaþáttur Umsjón: Ragnar
Örn Pétursson.:
14.00 Á ferð og flugl. Þáttur um
málefni liðándi stundar i umsjá
Ragnheiðár Davíðsdóttur og Sig-
urðar Kr. Sigurðdsonar.
' 15.10 Listapopp - Gunnar Salvars-
son. (Þáttúrinn endurtekinn kl.
24.00).
16.00 Fréttir. Dagskrá. 16.15 Veður-
fregnir;,
16.20 Draumaströndin" eftir. And-
rés Indríðason 1. þáttur: „Maður
er og verður íslendingur" Leik-
( stjöri: Stefán Baldursson. Leikend-
ur: Arnar Jónsson, Kristbjörg Kjeld,
Tinna Gunnlaugsdóttir, Steinunn
Jóhannesdóttir, Guðbjörg Þor-
bjarnardóttir, Hjalti Rögnvaldsson
og Axel Gomez. (1. þáttur endur-
tekinn föstudaginn 14. sept., kl.
21.35).
17.10 Frá Mozart-hátíðinni i Frank-
furt í júni s.l. Evrópska kammer-
sveitin leikur. Stjórnandi: SirGeorg
Solti. Einsöngvari: Kiri Te Kanawa.
a. Sinfónía í D-dúr K.504. b.
Óperu- og konsertaríur.
18.00 Miðaftann i garðinum með
Hafsteini Hafliðasyni.
18.15 Tónleikar. Tilkynningar,
18.45 Veðurtregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Kvöldf réttir. Tilkynningar.
19.35 „Vertu maður til að standa
við þína skóðun* Guðrún Guð-
laugsdóttir raeðir við Baldvin Síg-
urðsson. (Áður útv, 1977),
20.00 Manstu, veistu, gettu. Hitt og
þetta fyrir stelpur og stráka. Stjórn-
éndur: Guðrún; Jónsdóttir og Mál-
fríður Þórarinsdóttir.
20.40 „Mangi gamli í skúrnum",
smásaga eftir Hildi Gústafsdótt-
ur Helga Ágústsdóttir les.
21.15 Harmonikuþáttur Umsjón:
Sigurður Alfonsson.
21.45 Einvaldur í einn dag Samtals-
þáttur í umsjá Áslaugar Ragnars.
22.15 Veðurfregnir. Fréttir. Dagskrá
morgundagsins. Orð kvöldsins.
22.35 Kvöldsagan: „Að leiðarlok-
um“ eftir Agöthu Christie Magn-
ús Rafnsson les þýðingu sina (16).
23.00 Létt síglld tónlist
23.50 Fréttir. Dagskrárlok.
24.00 Næturútvarp frá RÁS 2 til kl.
03.00.
Laugardagur
8. september
24.00-00.50 Listapopp. Endurtekinn
þáttur frá Rás 1. Stjórnandi: Gunn-
ar Salvarsson.
00.50-03.00 Næturvaktin Stjórnandi
Einar Gunnar Einarsson.
Rásir 1 og 2 samtengdar kl. 24.00
og heyrist þá í Rás 2 um allt land).
Laugardagur
8. september
16.30 íþróttir Umsjóharmaður Bjarni
Felixson
18.30 Þytur í laufi 4. Ævintýri á ánni
Breskur'brúðumyndaflokkur í sex
þátturrr. Þýðandi Jóhanna ÞráínS-
dóttir.
18.50 Enska knattspyrnan Umsjón-
armaður Bjarni Felixson.
19.45 Fréttaágrip á táknmáli
20.00 Fréttir og veður
20.25 Auglýsingar og dagskrá
20.35 Heima er best Annar þáttur.
Breskur gamanmyndaflokkur i sex
þáttum. Aöalhlutverk: William
Gaunt og Patricia Garwood. Þýð-
andi Guðni Kolbeinsson
21.00 Fjársjóður hertogans. Endur-
sýning (Passporl to Pimlico)
Bresk bíómynd frá 1949. s/h Leik-
stjóri Henry Cornelius. Aðalhlut-
verk: Stahley Holloway, Margaret
Rutherford, Hermipne Baddeley
og Paul Dupuis. Ibúar Pimlico-
hverfis í Lundúnum ákveða að
stofna sjálfstætt riki eftir að þar
finnst fjársjóður frá tímum Búrg-
undarhertoga. Þýðandi Öskar Ing-
imarsson.
22.20 Móðir, kona ..læknir (Docteur,
Francoise Gailland). Frönsk bíó-
mynd frá 1976. Leikstjóri Jean-
Louis Bertucelli. Aðalhlutverk:
Annie Girardot, Francoise Perier,
Jean-Pierre Cassel, Isabel Hupp-
ert og Josephine Chaplin. Franco-
ise Gailland er yfirlæknir og próf-
essor við sjúkrahús i París. Hún er
gift háttsettum embættismanni og
eiga þau tvö efnileg börn. Þetta
litur vel út á yfirboðinu en ekki er
allt sem sýnist. Þýðandi Ólöf Pét-
ursdóttir.
00.00 Dagskrárlok