NT - 10.09.1984, Page 2
ffi'
Mánudagur 10. september 1984
Reykvíkingar kaupa flesta nýju bílana...
Og selja „sveitamönn-
unum“ gömlu skrjóðana
■ Rauði þráðurinn í bflavið-
skiptum landsmanna virðist sá,
að höfuðborgarbúar kaupa
flesta nýju bílana en selja síðan
landsbyggðamönnum þá gömlu,
þar sem ævidagar þeirra eru svo
endanlega taldir. Þetta við-
skiptamunstur má í grófum
dráttum lesa út úr skýrslu Bif-
reiðaeftirlits ríkisins 1983 um
fjölda ökutækja, nýskráningar
og afskráningar úr sér genginna
ökutækja, a.m.k. hvað varðar
s.l. ár. Hvert Reykvíkingar eða
landsbyggðamenn gerí svo betri
bflakaup skal ekki dæmt um
hér.
Af um 40.500 ökutækjum
Reykvíkinga um síðustu áramót
voru 2.854 nýskráð á árinu eða
um 1 afhverjum 14ökutækjum,
en hlutfall afskráðra var aðeins
um 1 af hverjum 37. Af hins
vegar um 43.500 ökutækjum
landsbyggðarmanna (utan
Reykjaneskjördæmis) voru að-
eins um 1.700 nýskráð eða 26.
hvert en hlutfall afskráðra var
hins vegar 1 af hverjum 22, þ.e.
hærra en nýskráðu bílanna.
Á einstökum stöðum á lands-
byggðinni voru hlutföllin þó
miklu verri en þetta. Þannig
voru t.d. afskráð alls 105 öku-
tæki í Barðastrandarsýslu (1 af
hverjum 11) en aðeins 31 ný-
skráð í staðinn, á Akranesi 155
afskráð en aðeins 65 nýskráð, á
Seyðisfirði og N-Múlasýslu 90
afskráð en 41 nýskráð og í
Strandasýslu 32 afskráð en að-
eins 16 nýskráð. í ellefu öðrum
umdæmum voru afskráð öku-
tæki allt að tvöfalt fleiri en þau
sem ný komu í staðinn.
Íbúafj. % Ökutæki % | z % Afskrán. %
Reykjuncs 55.255 23,2 24.723 22,7 1.459 24,2 965 24
Reykjavik 87.309 36,7 40.520 37,3 2,854 47,4 1.087 27
Landsbyeeðin 95.511 40,1 43.502 40 1.705 28,3 1.980 49
238.175 108.758 6.018 4.032
■ Gins og sjá má á þessari töflu er fólksfjöldi og bflaeign
Reykvíkinga annars vegar og landsbyggðarinnar hins vegar (utan
Reykjaneskjördæmis) hlutfallslega svipuð. Af nýskráðum ökutækj-
um í landinu á síðasta ári var hins vegar nær helmingurinn skráður
á R-númer og hátt í þrefalt fleirí en þeir bflar sem afskráðir voru,
en af þeim var aðeins um fjórðungurínn í Reykjavík. Á landsbyggð-
inni snérust tölurnar heldur betur við. Þar var um helmingurínn af
öllum afskráðum ökutækjum, sem voru jafnframt nær 300 fleiri en
nýskráð ökutæki, en af þeim eignuðust landsbyggðamenn aðeins
um fjórðunginn á síðasta árí. í Reykjaneskjördæmi eru hins vegar
öll hlutföll mjög svipuð; íbúafjöldi, bflafjöldi, nýskráningar og
afskráningar gamalla ökutækja. Bflum á Keflavíkurflugvelli er
sleppt í töflunni.
Laxá á Asum
Veiðitímabilinu í Laxá á
Ásum lauk á hádegi laugardag-
inn 1. september síðastliðinn.
625 laxar fengust úr ánni í
sumar, sem er lélegt miðað við
undanfarin sumur, en samt sem
áður ágætis veiði, þegar á það
er litið, að allir þessir fiskar
hafa fengist á tvær stangir.
Veiði fór bæði snemma og
mjög vel af stað í byrjun
sumars, og laxinn var óvenju
vænn. En þegar aðalveiðitím-
inn byrjaði í júlí, tók fyrir
laxagöngurnar. Smálaxinn
brást og kom ekki nema í mjög
litlum mæli. Ágústmánuðurvar
einnig tregur. Laxá á Ásum
hefur skipað sérstakan sess
meðal íslenskra laxveiðiáa sem
besta veiðiá landsins miðað við
veidda laxa á stöng. Þrátt fyrir
hrunið í sumar heldur hún
trúlega því sæti áfram. Árið
1978 var toppveiðiár í Laxá.
Þá veiddust í henni 854 laxar á
tvær stangir, og alveg með
ólíkindum hvað getur veiðst af
laxi í þessari litlu á. f fyrra
veiddust 1050 laxar.
Vatnsdalsá
Nú eru komnir 569 laxar á
land úr Vatnsdalsá og töluvert
af bleikju. Á laugardag kom
einn 22 punda lax og veiddist
hann á Garry númer 6. Veiði-
maðurinn var Guðjón Tómas-
son. Laxveiðin í Vatnsdalsá
hefur verið með alversta móti í
sumar, ekki verið svona slæm
síðan 1976, en þá veiddist 571
fiskur í ánni. í fyrra fengust 879
laxar í Vatnsdalsá. 1978 var
gott laxveiðiár þar, eins og
víða annars staðar. Þá fengust
úr ánni 1466 laxar.
25 punda lax úr
Stóru-Laxá
31. ágúst síðastliðinn veidd-
ist 25 punda lax á Bergsnös á
fyrsta og öðru svæði í Stóru-
Laxá. Laxinn gein við flugunni
Black Sheep. Sveinn Ingason
heitir veiðimaðurinn sem var
svo heppinn að takast á við
þennan stóra fisk. Eftir því
sem Veiðihornið kemst næst,
mun þetta vera stærsti laxinn
úr ánni í sumar.
Innkaupaferðir til islands:
Kanarnir koma
- á vegum Flugleiða
■ Flugleiðir hafa skipulagt
innkaupaferðir til Islands
fyrir íbúa Chicago svæðisins,
í samvinnu við bandaríska
aðila. Hér er um að ræða 3-4
daga ferðir og kemur fyrsti
hópurinn undir lok þessa
mánaðar. Verður boðið upp
á þessar ferðir út nóvem-
bermánuð.
Að sögn Sigfúsar Erlings-
sonar, framkvæmdastjóra
markaðssviðs Flugleiða, hef-
ur bókast prýðilega vel í
ferðirnar; meira en búist var
við. Ætla má, að það séu
einkum ullarvörur alls
konar, sem muni freista
bandarísku ferðalanganna
hvað mest. Auk búðarápsins
verður þeim þó boðið upp á
styttri ferðir út frá Reykja-
vík, eins og til Gullfoss og
Geysis, Vestmannaeyja og
annarra staða, sem farið er
til með ferðamenn á þessum
tíma árs.
Gert er ráð fyrir, að 40-50
manns verði í hverjum hópi
og sagði Sigfús, að tilraunir,
sem gerðar voru með slíkar
ferðir í fyrra bentu til þess,
að í þær færi miðstéttarfólk,
sem komið væri af léttasta
skeiði.
„Við erum ánægðir með
undirtektirnar og vonumst
til að geta útvíkkað þetta
síðar,“ sagði Sigfús Erlings-
son.
Lánamál íslenskra námsmanna:
„Við fáum ekkert lán-
verðum að hætta námi“
- Bankarnir taka ekkert mark á útreikningum Lánasjóðsins bjóða 10% fjárþarfar
- Rætt við tvo íslenska námsmenn, sem nú haf a hrökklast f rá námi í Bandaríkjunum
■ Eins og kunnugt er þá hafa
lánamál íslenskra námsmanna
verið í brennidepli að undan-
förnu, í kjölfar þeirrar yfirlýs-
ingar menntamálaráðherra að
námsmenn á fyrsta ári skuli
leita sér fyrirgreiðslu innan
bankakerfisins, en ekki í Lána-
sjóði íslenskra námsmanna. Á
hinn bóginn hefur engin trygg-
ing fengist fyrir því að náms-
1 brotajárn
í Bretlandi
■ Þessir gömlu og lúnu síðu-
togarar bíða nú í Reykjavíkur-
höfn sinnar síðustu siglingar.
Góssið sem farið verður með í
erlenda höfn að þessu sinni
verður þó ekki annað en slátrið
úr þessum félögum - brotajárn
í bræðslu. Þeir heita Ársæll, 24
ára, gaflarí og Birgir 21 árs, en
hann er að vestan, frá Patró.
Nýlega gerðu einhverjir
óþokkar það skemmdarverk að
kveikja í flakinu af Ársæli sem
er eftir enn óhrjálegra en áður.
Því er það að Stálfélagið sem
haft hefur niðurrif þessara skipa
á verkefnalista um nokkurra
ára skeið, er knúið til þess að
flýta framkvæmdum og fá er-
lenda. aðila til verksins. Verða
þeir fluttir út fyrir veturinn.
Árin 1980 og 1981 var eigendum
veitt fé úr Úreldingasjóði og
Aldurslagsjóði fyrir að leggja
þeim og rífa. Nú eru í landinu
18 togarar 14 ára og eldri, sá
elsti frá 1957.
NT-mynd.: Róbert
menn fái umrædda fyrirgreiðslu
og nú virðist sem afleiðingar
þessarar menntastefnu séu að
koma í Ijós.
NT hitti að máli tvo náms-
menn sem mikið hafa reynt að
fá fyrirgreiðslu innan bankanna,
án árangurs. Þeir eru báðir á
þrítugsaldri - annar með sex
manna fjölskyldu á framfæri -
og hugðust leggja stund á málm-
rannsóknanám í Oklahóma,
Bandaríkjunum. Báðir urðu
þeir frá að hverfa sökum
fjárskorts, eftir þriggja vikna
dvöl erlendis.
Bréf frá LÍN er marklaust í
augum bankastjóranna
„Við höfum þrætt allar stofn-
anir, másegja,þ.á.m. utanríkis-
ráðuneytið, fjármálaráðuneytið
og menntamálaráðuneytið. En
það gengur ekkert. Eina vonin
er að utanríkisráðuneytið geti
e.t.v. útvegað íslenskum náms-
mönnum tímabundið atvinnu-
leyfi í Bandaríkjunum svo menn
geti staðið undir eigin fram-
færslu. En við núverandi að-
stæður fáum við ekki að vinna
þar þó við viljum, því náms-
menn hafa ekki atvinnuleyfi úti“
sögðu þeir féiagar í samtali við
NT. Hvorugur vildi láta nafns
síns getið, af ótta við hugsanleg-
ar afleiðingar.
Hvaða svór hafið þið fengið
í bönkunum?
„Við fáum einfaldlega ekkert
lán. Okkur var sagt að það
þýddi ekkert að koma með bréf
frá lánasjóðnum, það héfði ekk-
ert að segja. Þetta er mjög dýrt
nám sem við hyggjumst stunda,
skólagjöldin eru 500$. Lána-
sjóðurinn áætlaði fjárþörfina á
þriðja hundrað þúsund, en okk-
ur voru boðin þrjátíu til fimmtíu
þúsund". „Það breytti heldur
engu þó ég hefði meðmælabréf
frá ýmsum stofnunum þar sem
áhersla var lögð á að þetta væri
þarflegt nám. Það vantar fólk
sem er menntað á þessu sviði“,
segir annar þeirra. „Þetta ævin-
týri hefur nú þegar kostað mig
fjögur hundruð þúsund. Ég
þurfti t.d. að selja alla búslóð-
ina mína á hálfvirði, áður en ég
kom heim“, bætir hann við.
Peningunum kastað í ann-
að
„Okkur þótti helv..., hart að
lesa það í íslensku blöðunum á
leiðinni heim frá Bandaríkjun-
um, að íslenski sendiherrann í
Washington hefði fengið 750
þús. króna lán fyrir sundlaug og
að aðstoðarmaður hans hefði
fengið tvær og hálfa milljón
fyrir einbýlishúsi. Svo er ekki
hægt að framfleyta íslenskum
námsmönnum sem berjast í
bökkum. Þrjúhundruð þúsund
eru jú há upphæð. en samt er
það þannig að það rétt nægir í
Bandaríkjunum. Skólagjöldin
eru gífurlega há. Þarna eru
engar gangstéttir, engir strætis-
vagnar, og 30 km. í skólann.
Maður verður að eiga bíl, og
bílinn þarf að tryggja, að maður
tali ekki um fjölskylduna. Þetta
tekur maður af láninu sínu og á
fullt í fangi með að láta enda ná
saman."
Hvað hyggist þið
taka til bragðs?
„Ég ætla að reyna að komast
út aftur, því ég vil ekki gefast
upp. Þetta er búið að kosta það
mikið að ég verð að sjá einhvern
árangur af allri fyrirhöfninni,“
segir fjölskyldumaðurinn.
„Ég hef gefist upp í bili. Það
verður ekkert nám hjá mér á
næstunni... ekki næstu árin.
Enda get ég ekki séð að ég geti
byrjað eftir áramót. Ég hef ekki
skilað neinum einingum á haust-
önninni, því ég varð að hætta
svo það væri að byrja upp á
nýtt. Þá upphefst sami leikur-
inn, býst ég við. Ég get ekki
staðið í því að ferðast á milli
landa upp á von og óvon, eða til
einskis," segir hinn.
„En við treystum að sjálf-
sögðu á það, að námsmenn
berjist með kjafti og klóm til að
breyta ástandinu. Það má ekki
eiga sér stað að sama vitleysan
endurtaki sig í janúar, eða næsta
haust.“
Forsætisráðherra:
Heimsækir
Jórdaníu
og ísrael
■ Steingrímur Hermannsson,
forsætisráðherra, fór utan á
laugardagsmorgun áleiðis til
Jordan, þar sem hann hefur
þegið boð stjórnvalda, ásamt
nokkrum öðrum erlendum
stjórnmálamönnum um aðtaka
þátt í viðræðum um ástaiid og
horfur fyrir botni Miðjarðar-
hafs.
Hann mun jafnframt fara til
ísraels, þar sem honum hefur
verið boðið að flytja ávarp við
opnun ársþings Alþjóðasam-
bands frjálslyndra stjórnmála-
flokka. Forsætisráðherra er
væntanlegur heim n.k. sunnu-
dag.