NT - 10.09.1984, Qupperneq 17
anz Jósef faðir hans og ríldsarfinn ungi.
iechtenstein:
n byggð á
irmagni
greiða aldrei meira en tuttugu
, prósent.
i Sala frímerkja, sem flest fara til
r erlendra safnara, er hertogadæminu
i drjúg tekjulind, eða um tíu prósent af
f þjóðartekjum. Annar stór gróðaveg-
, ur er smávægileg gjöld sem heimt eru
! af um þrjátíu þúsund pappírsfyrir-
tækjuni, sem skráð eru í Liechten-
j stein, en hafa vart önnur umsvif þar
( en póstkassa í höfuðborginni Vaduz.
í Líkt og gerist í öðrum skatta-
i paradísum reynir Liechtenstein eftir
fremsta megni að vernda eigendur
r pappírsfyrirtækjanna fyrir skattayfir-
, völdum í hinum raunverulegu heima-
i löndum þeirra. Borgarar sem gefa
, upplýsingar um fjárreiður pappírs-
[ fyrirtækja geta jafnvel átt á hættu að
lenda í fangelsi. „Við álítum skatta-
misferli ekki glæp,“ segir Hans Adam,
i „og höfum enga löngun til að vera
; samviska heimsins.“ Stjórnvöld ann-
ars staðar hafa þó kvartað sáran yfir
því að Liectenstein sé orðið ein aðal
friðarhöfn ólöglegs fjármagnsflótta.
Bankareikningur í Liechtenstein mun
þykja enn traustari og leyndardóms-
fyllri en bankareikningur í nágranna-
landinu Sviss.
Hertogafjölskyldan hagnast ekki
síst af öllu því vafasama fjármagni
sem streymir inn í landið. Hún á
hlutabréf í næst stærsta banka
hertogadæmisins, búgarða í Banda-
ríkjunum, fasteignir víða um Evrópu
og eitt vandaðasta málverkasafn í
heimi.
Hans Adam, sem hefur neitunar-
) vald í öllum málum, mun litlu breyta
eins og áður kom fram, en þó hefur
! hann sett sér viss markmið í utanrík-
; ismálum. Hann telur æskilegt að Liec-
htenstein sé ekki eins háð hinum stóra
nágranna sínum Sviss og verið hefur,
en eina sendiráð hertogadæmisins er
í Sviss. „Við verðum að fá að standa
i á eigin fótum,“ segir hann.
Bagdad-Reuter
■ íranskri farþegaþotu af gerðinni
Boeing 727, sem rænt var yfir Iran á
laugardag, var lent í gær á ókunnum
fiugvelli í Irak. Þetta er fjórða íranska
farþegaflugvélin sem rænt er á síðustu
þremur mánuðum.
Flugvélarræningjunum, hjónum
með tvö börn, var vel tekið við
komuna til Bagdad og á blaðamanna-
fundi sagði fjölsyldufaðirinn, Toufan
að nafni, að þau styddu samtök sem
vildu endurreisa keisaradæmið undir
stjórn sonar Resha Palavis, fyrrum
keisara. Þau sögðust einnig styðja
Shapour Baktiar, fyrrum forsætisráð-
herra, sem nú er í útlegð í París, en
aðspurður fordæmdi hann flugrán
sem baráttuaðferð gegn Khomeini-
stjórninni. Flugvélarræningjunum
var strax veitt pólitískt hæli í Irak.
Eins og áður segir var vélinni rænt
á laugardag og flogið til íraks með
viðkomu í Bahrain og Kairó. í Kairó
var vélin í tíu tíma, og þar fengu 52
farþegar, þar á meðal barnshafandi
kona, að fara frá borði.
írakar skýrðu frá því að farþegar
vélarinnar hefðu verið fluttir á hótel
í Bagdad og myndu á næstu dögum
fara í skoðunarferðir á helga staði
múhameðstrúarmanna. Þeini væri
frjálst að fara aftur til íran eða dvelja
áfram í írak. Sömu málsmeðferð
fengu um tvö hundruð farþegar ír-
anskrar flugvélar sem rænt var og
flogið til írak í lok ágústmánaðar. Þá
ákváðu fjórir farþegar að snúa ekki
aftur til heimalandsins, að sögn
Rauða krossins.
PÁÐGJAFTMW
FARARSDÓRIÞINN
IFRUMSKÓGIVAXTA
5PYmU HAflh im Á HVAÐA REIKNIIIG PÚ EKjIR AÐ LECöCjM
PÁÐOJAFINN 5ÉP FUÓTT FIVAÐ ÞÉF EF FYFIF BE5TU.
FI/\MH RfEÐUB ÞÉB NEILT.
Inn á hvaða reiHning átt þú að leggja ? Lagðir þú inn á réttan reiHning í gær?
Hvort hentar þér betur hjá oHHur sparireiHningur með 26%> ársávöxtun
eða 5pari5Hírteini með 26% ársávöxtun ?
Wið erum eHHi undrandi þótt þú standir ráðþrota í vaxtamálum.
5purningarnar um áwöxtun fjár hafa aldrei werið ein5 erfiðar og einmitt nú.
Með því að spyrja Háðgjafann í ÚtwegsbanHanum
færðu swör sem 5Hýra hwað þér er fyrir be5tu. Hann ræður þér heilt.
BÁÐOJAFim EB TVÍMfELALAU5T FABAB5TJÓBI ÞIHÍ1
í VAXTAFRUM5KÓ(jlNUM.
bomdu á einhwern afgreið5ÍU5tað ÚtwegsbanHans
og spyrðu eftir Ráðgjafanum.
ÚTVEGSBANKINH
EINN BANKI • ÖLL MÓNUSTA