NT - 10.09.1984, Page 32
Við tökum við ábendingum um fréttir allan sólartiringiinn.
Greiddar verða 1000 krónur fyrir hverja ábendingu sem leiðir
til fréttar í blaðinu og 10.000 krónur fyrir ábendingu sem leiðir
til bitastæðustu fréttar mánaðarins. Fullrar nafnleyndar er gætt
■ Hópur af gömlum frjálsíþróttakcmpum kom í gær saman á Laugardalsvelli, þar sem fram fór Öldungamót Frjálsíþróttasambands-
ins. Þar var keppt í mörgum greinum, og gamalkunnir taktar sýndir. Á myndinni sést einn eitilharöur, sem keppt hefur víða fyrir
hönd íslands, Valbjörn Þorláksson, stökkva langstökk. Það er efeki að sjá að Valbjörn hafi neinu gleymt... NT-myndir Róben.
Knapp kominn
WT Tony knapp landsliðs-
þjálfari íslands í knatt-
spyrnu kom til landsins í
gær. Knapp kom ásamt
flestum íslensku at-
vinnumannanna, en þeir
verða sjö í landsliðshópn-
um gegn Wales.
Landliðshópurinn kom
saman í gær á Hótel Loft-
leiðum, þar sem liðið
snæddi kvöldverð. Síðan
hélt liðið austur á Laugar-
vatn, þar sem dvalist
verður í Húsmæðraskól-
anum til þriðjudags-
kvölds. Þá mun landslið-
ið koma til Reykjavíkur
og dvelja á Hótel Loft-
leiðum fram að lands-
leiknum gegn Wales, sem
hefst klukkan 18.15.
Arsenal burstaði
Englandsmeistarana
- sjá allt um ensku knattspyrnuna bls. 31
Hver fellur í 2.
deild ásamt KA?
- sjá bls. 30 og um íslensku knattspymuna bls.
25,26 og 27
Stuttgart vann
Bielefeld 7-2
- bls. 30 - íþróttir bls 25-32
Sjö atvinnumenn með gegn Wales:
Sigurður
í hópinn
■ Sigurður Grétarsson,
sem nú hefur gert samn-
ing við gríska fyrstudeild-
arliðið í knattspyrnu, Ir-
agles Þesaloniki, oghefur
undirbúið sig af krafti
undir komandi keppnis-
tímabil þar undanfarið,
verður í landsliðshópi ís-
lands gegn Wales næst-
komandi miðvikudags-
kvöld. Sigurður kemur í
stað Arnórs Guðjohnsen,
sem ekki getur tekið þátt
í leiknum.
Áður hafði ein breyting
verið gerð á landsliðs-
hópnum, Karl Þórðarson
kom inn í stað Lárusar
Guðmundssonar sem
ekki getur verið með
vegna meiðsla.
Landsliðshópinn skipa
því eftirtaldir leikmenn:
Markverðir eru Bjarni
Sigurðsson Akranesi og
Þorsteinn Bjarnason
Keflavík. Aðrir leikmenn
eru Atli Eðvaldsson Fort-
una Diisseldorf, Árni
■ Sigurður Grétarsson.
Sveinsson Akranesi, Ár-
sæll Kristjánsson Þrótti,
Ásgeir Sigurvinsson VFB
Stuttgart, Guðmundur
Þorbjörnsson Val, Janus
Guðlaugsson Fortuna
Köln, Karl Þórðarson
Akranesi, Magnús Bergs
Eintracht Braunschweig,
Pétur Pétursson Feye-
noord, Ragnar Margeirs-
son Keflavík, Sigurður
Grétarsson Iragles Þessa-
loniki, Sigurður Lárusson
Akranesi, Sævar Jónsson
CS Brugge og Þorgrímur
Þráinsson Val.
Sjö atvinnumenn leika
því með gegn Wales.
Anderlecht vann Beveren 2-1 og er efst:
Stórleikur Arnórs
- Arnór lagði upp glæsimark og gott mark dæmt af honum
■ Arnór Guðjohnsen knatt-
spyrnumaður hjá Anderlecht í
Belgíu átti stórleik með liði sínu
á laugardag, er það sigraði aðal-
keppinauta sína, Beveren 2-1.
Arnór lék skínandt vel í fyrri
hálfleik, og lagði þá upp glæsi-
legt mark sem Alex Czermatin-
sky skoraði. Síðan skoraði Arn-
ór gott mark í síðari hálfleik,
sem dæmt var af vegna rang-
stöðu. Þótti sá dómur mjög
orka tvímælis að því er heimildir
NT herma. Anderlecht er nú
efst í belgísku 1. deildinni, eftir
sigurinn á Beveren. Beveren
hafði fyrir umferðina á laugar-
dag jafnmörg stig og Ander-
lecht, Ghent og FC Brugge, en
Ghent og Brugge gerðu jafntefli
á laugardag.
„Þetta gekk mjög vel hjá
mér, ég fékk að byrja leikinn og
lék með þar til á 75. mínútu
þegar ég bað um að mér yrði
skipt útaf vegna þess að ég var
að fá krampa í hægri fótinn“,
sagði Arnór í samtali við NT í
gær.
Alex Czerniatinsky skoraði
bæði mörk Anderlecht, hið
fyrra eftir að Arnór hafði stöðv-
að sókn Beveren, þotið með
boltann upp undir vítateig þar
sem hann gaf boltann og fékk
hann síðan aftur út á kant.
Þaðan gaf Arnór glæsisendingu
beint á kollinn á Czerniatinsky
sem skoraði með góðum skalla.
Czerniatinsky skoraði svo
síðara markið mjög glæsilega,
lék í gegn um vörn Beveren, á
markvörðinn við endalínuna,
þaðan sem hann skaut í fjar-
stöng og inn.
Arnór á að leika aftur með
Anderlecht- á miðvikudag í
bikarkeppninni. Hann sagði að
mikil pressa hefði verið á sér um
að fara ekki í landsleik íslands
og Wales, af hálfu þjálfara og
stjórnar Anderlecht. „Ég er að
berjast fyrir sæti mínu í liðinu,
og get því hreinlega ekki komið.
Ég hef átt við meiðsli að stríða
lengi, og nú fyrst er þetta farið
að ganga. { slíkri stöðu getur
maður ekki annað en verið
kyrr, ekki síst þar sem mjög
eindregnar óskir eru þar að
lútandi frá þjálfaranum“, sagði
Arnór.
Arnór sagði að hann hefði
langað mikið til að koma, og
væri tilbúinn að leika með®ís-
lenskaliðinu í leikjum þess í
undankeppni HM eftir Wales-
leikinn ef óskað væri eftir Sævar Jónsson og félagar hjá
honum.svofremisemþeirrækj- Cercle Brugge gerðu jafntefli
ust ekki á leiki Anderlecht. við Mechelen, 2-2 á laugardag.
■ Arnór Guðjohnsen átti stórleik með Anderlecht, en mun ekki
geta leikið með íslenska landsliðinu gegn Wales,